Minnst 21 lést þegar tvær smárútur og jeppi lentu í hörðum árekstri á þjóðvegi í Western Cape-héraði í Suður-Afríku á sunnudagskvöld.
Slysið varð á veginum milli Leeu-Gamka og Prince Albert, um 380 kílómetra norðaustur af Höfðaborg. Road Traffic Management Corporation, RTMC, sem fer með umferðaröryggismál í landinu, staðfesti á mánudag að 21 hefði látist af völdum áverka sem þeir hlutu í slysinu.
Samkvæmt suðurafrískum fjölmiðlum varð áreksturinn um klukkan 21:30 að staðartíma á sunnudag. Loka þurfti veginum í kjölfarið á meðan viðbragðsaðilar störfuðu á vettvangi.
Lögregla hefur hafið rannsókn á slysinu vegna gruns um manndráp af gáleysi. Þá voru nokkrir aðrir farþegar fluttir á sjúkrahús, en ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um líðan þeirra.
Suður-Afríka býr yfir einu þróaðasta vegakerfi Afríku en banaslys í umferðinni eru þar tíð. Hraðakstur, gáleysislegur akstur, óörygg ökutæki og lítil notkun öryggisbelta eru meðal helstu orsaka.
Alls létust 11.485 manns í umferðarslysum í Suður-Afríku árið 2025, rúmlega fimm prósentum færri en árið áður. Flestir hinna látnu voru gangandi vegfarendur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir