1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

9
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

10
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Til baka

Sky Lagoon langdýrasta baðlónið

Verð á aðgangi að íslenskum baðlónum gæti hækkað allt að tæplega 1.800 krónum

Sky Lagoon
Sky Lagoon
Mynd: Laurenmcl/Wikipedia

Verð á aðgangi að íslenskum baðlónum gæti hækkað um rúmar 500 krónur og allt að tæplega 1.800 krónum verði virðisaukaskattur hækkaður í 24 prósent og rekstraraðilar velti hækkuninni að fullu út í verð til neytenda.

Þetta kemur fram í greiningu hjá Heimildinni í nýjasta tölublaði þeirra.

Talsverður verðmunur er nú á aðgangi að vinsælum baðstöðum landsins. Gamla laugin á Flúðum, Secret Lagoon, er ódýrust þeirra sem bornir voru saman. Þar kostar almennur aðgangur fyrir fullorðna 4.500 krónur. Miðað við 24 prósenta virðisaukaskatt og óbreyttar tekjur rekstraraðila án skatts gæti verðið hækkað í 5.027 krónur, eða um 527 krónur.

Hálendisböðin í Kerlingarfjöllum kosta nú 5.500 krónur en verðið gæti farið í 6.144 krónur. Hjá Hvammsvík, þar sem verð er á bilinu 5.900 til 9.900 krónur, gæti aðgangurinn kostað 6.591 til 11.059 krónur. Hjá Laugarás Lagoon gæti verð á sama hátt hækkað úr 6.900–9.900 krónum í 7.708–11.059 krónur.

Algengt verð fyrir aðgang að baðlónum er nú um 7.500 til 8.000 krónur. Laugarvatn Fontana, Skógarböðin og Sjóböðin á Húsavík rukka 7.490 krónur fyrir grunnmiða fullorðinna. Verðið gæti hækkað í 8.367 krónur. Aðgangur að Vök gæti farið úr 7.690 í 8.591 krónu og hjá Krauma úr 7.900 í 8.825 krónur.

Jarðböðin við Mývatn, Earth Lagoon Mývatn, rukka nú 7.900 til 11.900 krónur og gæti verðið farið í 8.825 til 13.294 krónur. Ódýrasti aðgangur að Reykjaböðum gæti sömuleiðis hækkað úr 7.900 í 8.825 krónur.

Mesta hækkunin í krónum talið yrði hjá dýrustu baðlónunum. Ódýrasti aðgangur að Bláa Lóninu gæti hækkað úr 11.990 í 13.394 krónur. Hjá Sky Lagoon gæti ódýrasti miðinn farið úr 14.990 í 16.746 krónur, sem er 1.756 króna hækkun.

Misjafnt er þó hvað innifalið er í aðgangseyri og því er verðsamanburðurinn ekki að öllu leyti sambærilegur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg
Innlent

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna
Menning

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna

Fjöll gefur út nýtt lag af væntanlegri plötu
Menning

Fjöll gefur út nýtt lag af væntanlegri plötu

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

Óboðinn og óvenjulegur gestur stökk inn um gluggann
Myndband
Heimur

Óboðinn og óvenjulegur gestur stökk inn um gluggann

Klappstýrur kæra My Chemical Romance
Heimur

Klappstýrur kæra My Chemical Romance

Góð bók gæti gert meira fyrir þig en þú heldur
Menning

Góð bók gæti gert meira fyrir þig en þú heldur

Björgvin Birgisson er fallinn frá
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

Kosningar í Ísrael breyta litlu um framtíð Palestínumanna
Heimur

Kosningar í Ísrael breyta litlu um framtíð Palestínumanna

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur
Myndir
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys
Innlent

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Innlent

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg
Innlent

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys
Innlent

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

Loka auglýsingu