
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og í nótt. Meðal annars var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna gruns um heimilisofbeldi þar sem einnig var tilkynnt um líkamsárás og eignaspjöll.
Þá barst lögreglu tilkynning um hópslagsmál í bílakjallara. Þegar lögreglumenn komu á vettvang voru flestir þeirra sem höfðu tekið þátt í átökunum farnir. Þeir sem enn voru á staðnum vildu ekki tjá sig um atvikið og samkvæmt dagbók lögreglu voru engar kröfur gerðar vegna málsins.
Ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og annar ökumaður var staðinn að hraðakstri. Sá síðarnefndi mældist á 117 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund.
Lögreglu bárust einnig tilkynningar um ónæði og háreysti í fjölbýlishúsi og um grunsamlegar mannaferðir.
Að lokum þurfti lögregla að hafa afskipti af óvelkomnum einstaklingi í verslunarmiðstöð. Viðkomandi var vísað þaðan á brott.
