
Teymið að baki VAL-rannsókn við Háskóla Íslands hefur nú fengið nægilega marga til að skrá sig sem mögulega viðtakendur peningagreiðslna í tengslum við rannsóknina. Skráningu viðtakenda hefur því verið lokað, að því er fram kemur á vef Háskóla Íslands.
Rannsóknin snýr að mannlegri hegðun og því hvernig fólk tekur ákvarðanir í daglegu lífi. Í hluta hennar taka þátttakendur meðal annars ákvarðanir um hvernig peningum er skipt milli þeirra sjálfra og ókunnugrar manneskju. Sumar þessara ákvarðana leiða til raunverulegra greiðslna og því þarf raunverulegt fólk að vera hinum megin við valið.
Ef til greiðslu kemur nemur upphæðin á bilinu 1.450 til 4.350 krónum. Hvort greiðsla berst og hversu há hún verður ræðst af handahófsvali og ákvörðun þess þátttakanda sem viðtakandinn er paraður við. Þátttakandinn fær engar upplýsingar um hver viðtakandinn er.
Í tilkynningu Háskóla Íslands kemur fram að nægilega margir hafi nú skráð sig sem mögulegir viðtakendur og því sé ekki lengur tekið við skráningum.
Þátttakendum í aðalrannsókninni kunna meðal annars að bjóðast tímabilskort á afslætti, svo sem strætókort, líkamsræktarkort, sundkort eða Menningarkort. Sumir geta jafnframt fengið peningagreiðslur og óskað eftir persónulegri endurgjöf um eigin ákvarðanatöku að rannsókn lokinni.
Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands.
