1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

3
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

4
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

5
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

6
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

7
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

8
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

9
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

10
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Til baka

Leyndarmál langlífis leynist í fimm hversdagslegum matvælum

Þetta borðar elsta fólk í heimi á hverjum degi

Gamalt fólk
Einfaldleikinn í fyrirrúmi
Mynd: Unsplash/Junior Reis

Viltu ná hundrað ára aldri? Lykillinn að heilbrigðu og löngu lífi gæti verið mun einfaldari og ódýrari en margir halda. Samkvæmt sérfræðingum sem rannsakað hafa elsta fólk í heimi þarf hvorki dýr fæðubótarefni né flókna heilsubylgju til; lausnin leynist í fimm algengum matvælum sem finna má í flestum eldhúsum.

Rannsakendur á vegum samtakanna Blue Zones, undir forystu rithöfundarins Dan Buettner, hafa um árabil rannsakað svokölluð „Blá svæði“ (e. Blue Zones). Þetta eru svæði í heiminum þar sem fólk lifir óvenju lengi og nýtur góðrar heilsu fram á efri ár. Eitt elsta og þekktasta svæðið er Barbagia-héraðið í fjallabyggðum Sardiníu á Ítalíu, en þar nær hlutfall karla sem fagna hundrað ára afmæli sínu hæstu hæðum á heimsvísu.

Sérfræðingar Blue Zones bendir á fimm hversdagslegar matvörur sem reglulega eru á borðum hjá þessum langlífu eyjaskeggjum:

1. Favabaunir (hestabaunir)

Fava baunir
Mynd: Unsplash/Amirmasoud

Baunir og aðrar belgjurtir eru hornsteinninn í mataræði allra langlífustu samfélaga heims. Á Sardiníu eru favabaunir notaðar daglega í súpur og kássur, en þær eru stútfullar af jurtapróteini og trefjum. Þær eru meðal annars lykilhráefni í hinni frægu minestrone-súpu svæðisins. Sem dæmi má nefna Melis-systkinin frá Sardiníu, sem komust í Heimsmetabók Guinness fyrir samanlagðan aldur (861 ár á níu systkin), en þau borðuðu minestrone-súpu og súrdeigsbrauð á hverjum einasta degi.

2. Cannonau rauðvín

Rauðvín
Mynd: Unsplash/Rikkia Hughes

Það kemur mörgum á óvart að rauðvín sé á listanum. Cannonau er sérstakt staðbundið rauðvín af eyjunni, gert úr Grenache-vínberjum, sem er einstaklega ríkt af andoxunarefnum. Lykilatriðið er þó hófsemin: fólk drekkur lítið magn með mat og ávallt í góðra vina eða fjölskyldu hópi. Sérfræðingar undirstrika að fólk eigi ekki að byrja að drekka áfengi vegna þessa, heldur sýni þessi vani fram á mikilvægi þess að njóta máltíða í góðum félagsskap.

3. Ólífuolía

Ólífuolía
Mynd: Unsplash/Seval Torun

Hágæða ólífuolía (extra virgin) er dásömuð í hinu klassíska Miðjarðarhafsmataræði. Á Sardiníu er henni dreypt ríkulega yfir nánast hvern einasta rétt áður en hann er borinn fram, frekar en að hún sé eingöngu notuð til steikingar. Olían tryggir líkamanum holla, einómettaða fitu.

4. Pane carasau (örþunnt flatbrauð)

Pane_carasau
Mynd: Wikipedia

Á tímum þar sem margir óttast kolvetni, sýna Sardiníubúar fram á annað. Pane carasau er örþunnt, stökkt hefðbundið brauð sem fjallahirðar hafa borðað kynslóðum saman. Það er gert úr heilkorni og er langt frá því að vera mikið unnin matvara. Mataræði eyjaskeggja sýnir að óunnin gæðakolvetni, grænmeti og ávextir eiga fullt erindi á diskinn, á meðan kjöt er aðallega sparað fyrir hátíðisdaga.

5. Tómatar

Tómatar
Mynd: Unsplash/Clay Banks

Sólþroskaðir tómatar eru sál ítalskrar matargerðar. Þeir eru ódýrir, aðgengilegir og ríkir af C-vítamíni og kalíumi. Þeir eru hægeldaðir í sósur, pastarétti og minestrone-súpuna og spila stórt hlutverk í að vernda heilsuna.

Lífsstíllinn skiptir mestu máli

Þótt þessi matvæli séu holl, vara sérfræðingar við því að halda að það eitt og sér að setja þau í innkaupakörfuna tryggi að maður nái 100 ára. Mataræðið er aðeins hluti af stærri mynd.

Íbúar á Bláum svæðum deila ákveðnum lífsstíl, sem kallast „Power Nine“. Þar á meðal er náttúruleg hreyfing í hversdeginum (eins og að ganga í fjallendi eða sinna garðyrkju), að hafa skýran lífstilgang, halda streitu í lágmarki, borða sig aðeins 80% saddan og setja fjölskylduna og sterkt samfélagslegt tengslanet ávallt í fyrsta sæti.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætó hefur aldrei verið verri
Skoðun

Brynjar Birgisson

Strætó hefur aldrei verið verri

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Loka auglýsingu