
Nicola Jane Clifford hefur verið dæmd í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á lögreglumann við skyldustörf. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur 17. september.
Samkvæmt ákæru héraðssaksóknara sló Nicola lögreglumann á vinstri vanga með farsíma sem hún hélt á. Lögreglumaðurinn hlaut eymsli og verk í kjálka af högginu. Var Nicola ákærð fyrir brot gegn valdstjórninni.
Málið var dómtekið 8. september en Nicola mætti ekki fyrir dóm þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru og fyrirkalls. Málið var því dæmt að henni fjarstaddri á grundvelli fyrirliggjandi gagna og án frekari sönnunarfærslu.
Héraðsdómur sakfelldi Nicolu fyrir brotið og ákvað refsingu hennar tveggja mánaða fangelsi. Fullnustu refsingarinnar var frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hún almennt skilorð.
Nicola var jafnframt gert að greiða allan sakarkostnað málsins, samtals 40.576 krónur.