Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Fasteignasali tapaði fyrir Kringlunni

Rekstrar­félag Kringlunnar hélt því fram að kostnaðurinn væri hluti af sameig­in­legum rekstrar­kostnaði

Kringlan
Kringlan Mynd: Víkingur

Héraðs­dómur Reykja­víkur hefur sýknað Rekstrar­félag Kringlunnar af kröfum Híbýla ehf. vegna húsgjalda sem fyrir­tækið taldi sig hafa ofgreitt vegna auglýsinga- og kynningar­starfsemi Kringlunnar. Híbýlum var jafnframt gert að greiða 1,6 milljónir króna í máls­kostnað.

Híbýli krafðist aðallega endur­greiðslu á rúmlega 1,7 milljónum króna auk vaxta. Til vara var krafist tæplega 965 þúsund króna og til þrauta­vara rúmlega 110 þúsund króna.

Híbýli er staðsett í skrifstofu­húsnæði í Kringlunni en eigandi þess er Ingibjörg Þórðar­dóttir, stjórnar­formaður félagsins og löggiltur fasteigna­sali.

Ágrein­ingurinn snerist um þann hluta húsgjalda sem fór í auglýsinga- og kynningar­starfsemi Kringlunnar. Híbýli taldi að slíkur kostnaður tengdist fyrst og fremst verslunum og veitinga­stöðum og að fyrir­tækinu væri ekki skylt að taka þátt í honum.

Rekstrar­félag Kringlunnar hélt því hins vegar fram að kostnaðurinn væri hluti af sameiginlegum rekstrar­kostnaði samkvæmt samþykktum félagsins.

Héraðs­dómur vísaði meðal annars til dóms Hæstaréttar frá október 2025 í sambærilegu máli. Þar var komist að þeirri niður­stöðu að heimilt væri að skilgreina auglýsinga- og kynningar­kostnað sem sameiginlegan kostnað Kringlunnar.

Lykil­atriði í máli Híbýla var hvort félagið hefði vitað eða mátt vita af fyrir­komulaginu þegar húsnæðið var keypt árið 2014. Dómurinn taldi sannað að Ingibjörg hefði þá haft vitneskju um gjald vegna markaðs­kostnaðar og haft tækifæri til að kynna sér grundvöll gjald­tökunnar nánar.

Dómurinn benti sérstak­lega á að Ingibjörg væri löggiltur fasteigna­sali með áratuga­reynslu og hefði því mátt gera sér grein fyrir mikilvægi þess að afla upplýsinga um gjald­tökuna áður en kaupin voru frágengin.

Rekstrar­félag Kringlunnar var því sýknað af öllum kröfum Híbýla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning