
Bólivía og Paragvæ hafa lokið endanlegri afmörkun sameiginlegra landamæra ríkjanna, nærri níu áratugum eftir að ferlið hófst í kjölfar blóðugs stríðs þeirra á milli. Samkomulag náðist í La Paz í Bólivíu í gær.
Ríkin háðu Chaco-stríðið á árunum 1932 til 1935 vegna yfirráða yfir hinu víðfeðma og þurra Chaco Boreal-svæði. Talið er að á bilinu 80 til 100 þúsund manns hafi látið lífið í átökunum. Bólivía missti að stríðinu loknu landsvæði sem samsvarar meira en helmingi núverandi landsvæðis Paragvæ.
Bólivía og Paragvæ undirrituðu friðar- og landamærasamning árið 1938 og hófst þá langt ferli við að afmarka um 755 kílómetra löng landamæri ríkjanna.
Utanríkisráðuneyti Bólivíu greindi frá því að tækninefndir ríkjanna hefðu nú lokið afmörkun landamæranna í heild eftir 88 ára vinnu.
Fulltrúar sameiginlegrar landamæranefndar ríkjanna funduðu í La Paz síðustu þrjá daga. Þar voru meðal annars bornar saman landfræðilegar upplýsingar sem aflað hafði verið á vettvangi með nákvæmum drónum og fyrirliggjandi landfræðileg gögn.
Síðasti óleysti hluti landamæranna var um 3,5 kílómetra kafli meðfram Rio Negro, sem á upptök sín í Bólivíu. Samkomulag náðist um þann kafla á fundunum.
Stjórnvöld í Bólivíu segja niðurstöðuna loka sögulegum kafla og treysta samskipti ríkjanna á grundvelli gagnkvæms trausts og samstarfs. Paragvæsk stjórnvöld hafa jafnframt lagt áherslu á umfangsmikla vinnu sérfræðinga við erfiðar aðstæður á afskekktum landamærasvæðum.