Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Selja íbúð í Kópavogi með draumaútsýni

Húsið var reist árið 2005

Fellahvarf 16
Fella­hvarf 16

Glæsileg 135,8 fermetra efri sérhæð við Fella­hvarf 16 í Kópavogi hefur verið sett á sölu. Ásett verð eignarinnar er 126,9 milljónir króna en hún er í fallegu klasahúsi sem reist var árið 2005.

Um er að ræða fjögurra til fimm herbergja íbúð með sérinngangi og víðáttu­miklu útsýni til suðurs yfir Elliða­vatn og til fjalla. Íbúðin er í Hvörfunum í Kópavogi, í lokuðum botnlanga skammt frá fjöl­breyttum útivistar­svæðum.

Í eigninni eru þrjú svefn­herbergi en mögulegt er að útbúa fjórða svefn­herbergið með því að minnka stofu­rýmið. Alrými íbúðarinnar er rúmgott og skiptist annars vegar í stóra stofu með setu- og borðstofu og hins vegar sjónvarps­stofu. Úr stofunni er gengið út á rúmgóðar svalir sem snúa til suðurs og bjóða upp á útsýni yfir Elliða­vatn og nágrennið.

Eldhúsið er með vönduðum innréttingum, graníti á borðum, undir­felldum vaski og stórri eldhús­eyju. Innfelld lýsing er víða í íbúðinni. Þá er þar rúmgott baðherbergi auk þvotta­herbergis og geymslu inn af eldhúsinu.

Fyrir framan húsið er hellulögð stétt með snjó­bræðslu og sameiginleg bílastæði eru á lóðinni. Tvö sérmerkt bílastæði fylgja eigninni og eru þau staðsett á fram­lóðinni næst inngangi.

Stutt er frá Fella­hvarfi í leik- og grunn­skóla og íþrótta­svæðið við Kórinn er í göngufæri. Þá eru verslun og þjónusta í næsta nágrenni auk hjóla- og göngu­leiða við Elliða­vatn.

Ásett verð, 126,9 milljónir króna, jafn­gildir rúmlega 934 þúsund krónum á fermetra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“