
Landsréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um ítrekuð kynferðisbrot gegn stúlku undir 15 ára aldri. Maðurinn hefur þegar játað brotin við yfirheyrslur hjá lögreglu.
Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði áður úrskurðað manninn í gæsluvarðhald til 7. október að kröfu lögreglu. Samkvæmt rannsókn málsins greindi stúlkan frá því að maðurinn hefði haft kynmök við sig sex til átta sinnum síðan um páska, en maðurinn sjálfur fullyrti að skiptin hefðu verið tíu. Héraðsdómari taldi gæsluvarðhald nauðsynlegt með vísan til almannahagsmuna, þar sem um mjög alvarleg brot væri að ræða en við þeim liggur allt að 16 ára fangelsi.
Taldi barnaverndarsjónarmið ekki duga fyrir almannahagsmuni
Maðurinn kærði niðurstöðuna til Landsréttar sem sneri úrskurðinum við á mánudag. Í rökstuðningi Landsréttar kemur fram að dómstóllinn telji skilyrði um almannahagsmuni ekki uppfyllt í þessu máli.
Landsréttur benti á að Héraðsdómur hefði fyrst og fremst samþykkt gæsluvarðhaldið vegna þess að barnaverndaryfirvöld lýstu yfir erfiðleikum við að halda manninum og stúlkunni aðskildum. Stúlkan hafi sjálf sótt í samskipti við manninn. Að mati Landsréttar voru þessir erfiðleikar barnaverndar ekki nægjanleg lagaleg rök til þess að svipta manninn frelsi á grundvelli almannahagsmuna og var honum því sleppt úr haldi.
