
Grunnskólakennari í Flórída í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn og ákærður fyrir alvarleg brot gegn ungum nemendum sínum. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa sýnt stúlkum klámfengið efni og nektarmynd af sjálfum sér auk þess að hafa snert þær með óviðeigandi hætti.
Maðurinn heitir Cesar Oriol Cardoso og starfaði við Sunset Park Elementary School. Samkvæmt handtökuskýrslu lögreglu sagði ein stúlknanna rannsakendum að Cardoso hefði sýnt henni ýmsar óviðeigandi myndir og myndskeið. Þar á meðal hafi verið mynd af honum nöktum fyrir framan spegil þar sem kynfæri hans sáust.
Stúlkan sagði hann einnig hafa sýnt sér klámfengið myndskeið af ungum dreng og fullorðinni konu.
Í skýrslunni kemur jafnframt fram að stúlkan og annar nemandi hafi eitt sinn verið að leika sér þegar Cardoso á að hafa slegið þær báðar á rassinn. Hann hafi síðan sagt í gamansömum tón að héldu þær áfram að óhlýðnast myndi hann slá þær aftur á rassinn.
Önnur stúlka sagði Cardoso hafa tjáð sér að hann vildi kyssa hana. Þegar hann hafi reynt að gera það hafi hún snúið höfðinu undan. Þá er hann sakaður um að hafa sagt nokkrum stúlkum að þær væru fallegar og reynt að strjúka þeim um hárið.
Skólayfirvöld í Miami-Dade-sýslu segjast líta ásakanirnar mjög alvarlegum augum.
Cardoso hefur meðal annars verið ákærður fyrir brot gegn nemendum í krafti valdastöðu sinnar, fyrir að sýna ólögráða einstaklingi ósæmilegt efni og fyrir kynferðislega ósæmilega háttsemi gagnvart barni yngra en 16 ára.
