1
Innlent

„Að tala svona um starfsfólk sitt er fyrir neðan allar hellur“

2
Pólitík

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist

3
Heimur

13 ára drengur lést eftir að hafa tekið þátt í hættulegu samfélagsmiðlaæði

4
Fólk

77 sóttu um en Brynhildur fékk hnossið

5
Innlent

Glæpamenn ætluðu að hittast á þekktum veitingastað í miðborginni

6
Innlent

Leigusalinn lenti í leigjanda úr helvíti

7
Innlent

Gummi Emil ósáttur við múslima, innflytjendur og „vinstri libba“

8
Innlent

Tveggja pilta saknað frá heimilum sínum í Borgarnesi

9
Fólk

Selja íbúð í Kópavogi með draumaútsýni

10
Heimur

Loftklæðning hrundi ofan á farþega í skelfingarflugi

Til baka

Þorvaldur hótaði ítrekað að myrða lögreglumenn og börn þeirra

„The next time I get a long gun, I will kill every cop I can,“ og bætti síðar við: „Before I die I´m going to kill couple of you motherfuckers.“

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Þorvaldur Harry Þorvaldsson hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekaðar hótanir í garð lögreglumanna á árunum 2023 til 2025. Meðal annars hótaði hann að skjóta lögreglumenn, drepa börn þeirra og kýla tennurnar úr einum þeirra.

Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, 17. september. Þorvaldur var ákærður fyrir þrjú brot gegn valdstjórninni.

Í fyrsta tilvikinu hafði Þorvaldur verið handtekinn í Reykjavík og færður í lögreglubifreið. Þar hrækti hann á öxl lögreglumanns með þeim afleiðingum að hrákinn kastaðist á hægri kinn hans.

Við flutning á lögreglustöðina við Hverfisgötu hótaði hann síðan þremur lögreglumönnum lífláti. Sagði hann meðal annars:

„The next time I get a long gun, I will kill every cop I can,“ og bætti síðar við: „Before I die I´m going to kill couple of you motherfuckers.“

Hótanirnar héldu áfram í fangamóttöku lögreglustöðvarinnar. Þar sagðist Þorvaldur ætla að reyna að drepa alla lögreglumenn sem hann fyndi næst þegar honum yrði sleppt úr haldi.

„Next time I get locked up, when you let me I am going to try to kill every fucking pig I find, I mean that seriously…get me a long gun,“ sagði hann samkvæmt ákærunni.

Þegar verið var að færa hann í fangaklefa hótaði hann jafnframt að drepa lögreglumenn og börn þeirra.

„When I get a long gun I gurantee you I am going to kill at least five of you motherfuckers,“ sagði Þorvaldur og bætti við: „No I am threatening to kill your children.“

Í öðru tilviki var Þorvaldur handtekinn í Austurstræti. Við flutning á lögreglustöð hótaði hann lögreglumanni líkamsmeiðingum.

„Next when I see you and I am sober I am going to beat the shit out of you,“ sagði hann og bætti við: „I will take your teeth out.“

Í þriðja tilvikinu hótaði hann tveimur lögreglumönnum eftir handtöku. Sagði hann meðal annars: „I´m going to kill you.“

Þorvaldur mætti ekki við fyrirtöku málsins 8. september þrátt fyrir að ákæra og fyrirkall hefðu verið löglega birt.

Fram kemur í dómnum að Þorvaldur eigi nokkurn sakaferil að baki en eldri brot hafi ekki haft áhrif á refsingu þar sem langt sé um liðið. Hann hafði meðal annars árið 2016 hlotið fimm mánaða fangelsisdóm fyrir brot gegn valdstjórninni.

Refsing Þorvaldar var ákveðin þriggja mánaða fangelsi. Fullnustu refsingarinnar er frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hann almennt skilorð.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Leyndarmál langlífis leynist í fimm hversdagslegum matvælum
Fólk

Leyndarmál langlífis leynist í fimm hversdagslegum matvælum

Þetta borðar elsta fólk í heimi á hverjum degi
Ættarnafn ömmunnar varð að langri deilu við stjórnvöld
Innlent

Ættarnafn ömmunnar varð að langri deilu við stjórnvöld

Sló lögreglumann með síma og mætti ekki fyrir dóm
Innlent

Sló lögreglumann með síma og mætti ekki fyrir dóm

Ráðgáta Alzheimer mögulega leyst
Fólk

Ráðgáta Alzheimer mögulega leyst

Stórhætta á að Vogur lokaði
Innlent

Stórhætta á að Vogur lokaði

Trump hótar Evrópu viðskiptasliti vegna Kanada
Heimur

Trump hótar Evrópu viðskiptasliti vegna Kanada

Sleppt úr gæsluvarðhaldi þrátt fyrir játningu um ítrekuð kynmök við stúlku undir 15 ára
Innlent

Sleppt úr gæsluvarðhaldi þrátt fyrir játningu um ítrekuð kynmök við stúlku undir 15 ára

Fasteignasali tapaði fyrir Kringlunni
Innlent

Fasteignasali tapaði fyrir Kringlunni

Kennari sakaður um að káfa á nemendum og sýna þeim klám
Heimur

Kennari sakaður um að káfa á nemendum og sýna þeim klám

Sorphirðan kostaði 117 milljónum of mikið
Innlent

Sorphirðan kostaði 117 milljónum of mikið

Svarta krúttbomban á Selfossi kostar sitt
Myndir
Fólk

Svarta krúttbomban á Selfossi kostar sitt

Jón Ögmundur Þormóðsson er fallinn frá
Minning

Jón Ögmundur Þormóðsson er fallinn frá

Innlent

Ættarnafn ömmunnar varð að langri deilu við stjórnvöld
Innlent

Ættarnafn ömmunnar varð að langri deilu við stjórnvöld

Þjóðskrá synjaði umsókninni þar sem amman lést árið 1990
Fasteignasali tapaði fyrir Kringlunni
Innlent

Fasteignasali tapaði fyrir Kringlunni

Sló lögreglumann með síma og mætti ekki fyrir dóm
Innlent

Sló lögreglumann með síma og mætti ekki fyrir dóm

Þorvaldur hótaði ítrekað að myrða lögreglumenn og börn þeirra
Innlent

Þorvaldur hótaði ítrekað að myrða lögreglumenn og börn þeirra

Stórhætta á að Vogur lokaði
Innlent

Stórhætta á að Vogur lokaði

Sleppt úr gæsluvarðhaldi þrátt fyrir játningu um ítrekuð kynmök við stúlku undir 15 ára
Innlent

Sleppt úr gæsluvarðhaldi þrátt fyrir játningu um ítrekuð kynmök við stúlku undir 15 ára

Loka auglýsingu