Kanadíska stórsöngkonan Céline Dion kom aðdáendum sínum rækilega á óvart í París aðfaranótt laugardags þegar hún steig berfætt upp á BMW-bifreið og tók lagið fyrir hóp fólks sem hafði safnast saman til að fagna henni.
Dion hafði skömmu áður lokið öðru tónleikakvöldi sínu í París. Þegar hún kom út beið hennar fjöldi aðdáenda sem lék eitt þekktasta franska lag hennar, Pour que tu m'aimes encore.
Viðtökurnar virtust hafa mikil áhrif á söngkonuna. Hún steig upp á bifreiðina og söng lagið fyrir viðstadda í um tvær mínútur við mikinn fögnuð. Dion var berfætt meðan á óvæntu atriðinu stóð og lét sér ekki nægja að standa á bílnum heldur lagðist hún einnig niður á þakið, bæði á bakið og magann, á meðan aðdáendur fylgdust með.
Atvikið kemur skömmu eftir tónleika hennar í Nanterre, úthverfi Parísar. Þar steig hún á svið í upphafi 26 tónleika dvalar sinnar í Frakklandi og brast í grát þegar áhorfendur fögnuðu endurkomu hennar.
Dion hefur undanfarin ár glímt við sjaldgæfan taugasjúkdóm, svokallað stiff person syndrome, og fjallaði ítarlega um veikindi sín í heimildarmyndinni I Am: Celine Dion.
Tónleikarnir marka stórt skref í endurkomu söngkonunnar á svið eftir um sex ára hlé frá eigin tónleikaferðum. Miðað við móttökurnar í París virðist endurkoma hennar hafa vakið mikla gleði meðal aðdáenda hennar.
The car is the stage 😂@celinedion pic.twitter.com/TMBimbg4qn
— Céline Dion Addicts (@LesRedHeads) September 18, 2026

