Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Leigubílstjórar vilja bætur vegna COVID-19

Leigubílstjórar vilja bætur vegna COVID-19

„Það eru allar skoð­anir á því að leigu­bíl­stjórar séu snið­gengnir þegar kemur að bóta­úr­ræðum stjórn­valda. Við leigu­bíl­stjórar erum ekki reiðir en upp­lifum svolitla mis­munun, það verður að segja það. Þetta er tals­vert ósann­gjarnt,“ segir Daníel Orri Ein­ars­son, for­maður Bif­reiða­stjóra­fé­lags­ins Frama.

„Bíl­stjórar eru óþol­in­móðir og vilja fá svör.“

Sökum þess að leigu­bíl­stjórar eru flestir sjálf­stæðir atvinnu­rek­endur sem halda úti rekstri á eigin kenni­tölu virð­ast þeir illa passa inn í hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda vegna COVID-19. Útilit er fyrir að aðeins örfáir leigu­bíl­stjórar hafi fengið vil­yrði fyrir hluta­bóta­leið stjórn­valda. Flestir þeira virð­ast aftur á móti hafa fengið höfnun frá Vinnu­mála­stofnun. For­stjóra stofn­un­ar­innar þykir leitt að hafa ekki getað aðstoðað leigu­bíl­stjór­ana betur á meðan far­ald­ur­inn hefur gengið yfir.

Falla illa að regluverki

Daníel Orri bendir á að leigu­bíl­stjórar hafi flestir orðið fyrir 80 til 90 pró­senta sam­drætti síð­ustu mán­uði. Aðspurður hvort urgur sé í leigu­bíl­stjórum vegna máls­ins segir hann það alveg ljóst og segir það mjög leið­in­legt því bíl­stjór­arnir hafi sinnt mik­il­vægri þjón­ustu á COVID-tímum. „Bíl­stjórar eru óþol­in­móðir og vilja fá svör. Við höfum þurft að halda úti rekstri í fram­lín­unni vegna COVID og fyrir fólk í neyð og það höfum við gert alfarið á eigin kostnað. Við höfum verið til staðar í þágu almenn­ings. Þarna er vandi sem við höfum bent á og liggur á að leysa,“ segir Daníel Orri.

Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­n­unar, stað­festir vand­ann og bendir á að stofn­unin starfi aðeins eftir settur reglum sem hafi orðið til þess að leigu­bíl­stjórar falli utan úrræð­anna. „Þetta er alveg rétt hjá þeim, þeir falla mjög illa inn í reglu­verkið og við getum ekk­ert annað gert en starfað eftir því. Við getum því ekki breytt neinu þótt okkur þyki eitt­hvað ósann­gjarnt fyrir þennan hóp­inn eða hinn,“ segir Unnur.

Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­n­unar.

Taka lán til að keyra áfram

Aðspurður segir Daníel Orri það því miður ekki mögu­leika fyrir flesta bíl­stjóra að skila inn leyf­unum tíma­bundið því þeir séu skuld­bundnir til að halda úti rekstri vegna nið­ur­fell­ingar vöru­gjalda á bif­reiðum þeirra. „Sú leið að leggja inn leyfið gengur ekki. Af því við höfum verið til staðar í almanna­þjón­ustu þá eru skila­boðin sem við fáum frekar slæm, að hafa ekki þennan örygg­is­ventil eins og aðrir. Bíl­stjórar ganga margir á eigin sjóði, nýta yfir­drátt­ar­heim­ild eða taka lán í bönkum til þess að geta haldið rekstr­inum áfram. Staðan eins og hún er núna er ekk­ert sér­stak­lega jákvæð en við búumst við því að geta fengið ein­hvern stuðn­ing eins og aðrir,“ segir Daníel Orri.

Unnur segir að þónokkrir leigu­bíl­stjórar hafi leitað til stofn­un­ar­innar und­an­farið og segir leitt að hafa ekki getað hjálpað þeim betur. „Þetta er vanda­mál, þetta er það. Mér finnst það mjög leitt en þannig eru bara lögin og regl­urnar. Hvað leigu­bíl­stjór­ana varðar hafa þeir viljað halda áfram vinnu þrátt fyrir mik­inn sam­drátt og ég skil vel þá stöðu. Ég átta mig á því að þarna hefur verið ákveð­inn ómögu­leiki í gangi en þetta fer von­andi að verða búið núna,“ segir Unnur.

Lestu allt um málið í Mannlífi.

Lesa Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð