Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þetta ætlar ríkisstjórnin að gera til að bregðast við COVID-19 veirunni

Allt gert verður til að verja afkomu fyr­ir­tækja og fólks­ins í land­inu. Stjórn­völd munu greiða allt að 75% launa þeirra sem lækka tíma­bundið í starfs­hlut­falli. Greiðslu opin­berra gjalda frestað. Fyr­ir­tæki fá greiðslu­frest eftir því sem þörf krefur. Þá verður lækkun banka­skatts flýtt. Þetta er á meðal þess sem kom fram á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í Hörpu rétt í þessu, þar sem hún kynnti frek­ari björg­un­ar­að­gerðir til að örva efna­hags- og atvinnu­lífið, undir yfir­skrift­inni Við­spyrna fyrir Ísland, vegna þess skaða sem COVID-19 kór­óna­veiran er að valda á Íslandi.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Ísland, hóf fund­inn og sagði aðgerð­irnar sem voru kynntar taka mið af því að horft sé næstu vikna og mán­aða en þær verði end­ur­skoð­aðar á næst­unni. Hún sagði mark­mið þeirra vera að verja afkomu fólks­ins í land­inu, verja afkomu fyr­ir­tækja í land­inu, vernda grunn­stoðir sam­fé­lag­ins og loks sé það við­spyrna íslensk sam­fé­lags sem skipti ekki síst máli. Mik­il­vægt sé að íslenskt sam­fé­lag geti náð við­spyrnu hratt.

Nefndi for­sæt­is­ráð­herra að aðgerðir Seðla­banka Íslands sé mik­il­vægar fyrir hag­stjórn­ina. Þær veiti fyr­ir­tækjum nauð­syn­legt súr­efni í bar­átt­unni framundan og séu í takt við aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar. Þá hafi verið ákveðið að flýta opin­berum fram­kvæmdum rík­is­sjóðs. Fjár­fest­ing­arnar séu fjöl­breyttar og litið sé til fram­tíðar í þeim efnum.

Aðgerðir upp á 230 milljarða

Mannlíf greindi frá því á mánu­dag að rík­is­stjórnin væri langt komin með vinnu að aðgerð­ar­pakka til að takast á við á þá stöð­u sem er komin upp í sam­fé­lag­inu vegna COVID-19 veirunnar og að hann yrði til­kynntar núna í vik­unni. Heim­ildir Mannlífs hermdu að umræddar aðgerðir mið­uðu að því að styðja enn frekar við íslenskt atvinnu­líf og þá sér­stak­lega fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu og minni og milli­stór fyr­ir­tæki. Samkvæmt heim­ild­unum var talið að umræddar aðgerðir snér­ust um millj­arða, jafn­vel tugi millj­arða.

Nú hefur komið í ljós að aðgerð­irnar verða í tíu þáttum, eins og greint var frá á fund­inum. Í máli Katrínar kom fram að þær snú­ast um 230 millj­arða króna, eða tæp­lega 8% af lands­fram­leiðslu. Katrín sagði þær sýna að rík­is­stjórnin sé til­búin til að standa með fólk­inu í land­inu, ekki síst þegar vá steðji að.

Risavaxinn pakki fyrir íslenskt atvinnulíf

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra, sem ávarp­aði fund­inn eftir að Katrínu lauk máli sínu, sagði aðgerð­irnar vera stærstu efna­hags­að­gerðir sög­unnar á Íslandi. Hann sagði mik­il­vægt að tryggja afkomu fólks sem fer í skert starfs­hlut­fall og að rík­is­stjórnin væri reiðu­búin að verja háum fjár­hæðum til þess. Greiðslu opin­berra gjalda hafi verið frestað, upp á rúm­lega 70 millj­arða. Hann greindi frá því að fyr­ir­tæki fái greiðslu­fresti eftir því sem þörf krefur, allt fram á næsta sumar.

Fjár­fest­inga­á­tak verður fjár­magnað beint af rík­is­sjóði með fjár­auka­laga­heim­ild en einnig í gegnum opin­ber fyr­ir­tæki sem geta flýtt fram­kvæmdum. Að sögn Bjarna mun átakið, sem er undir áskrift­inni Fjár­fest­ing­ar­á­tak til fram­tíðar, nema um 20 millj­örðum.

Þá sagði Bjarni stjórn­völd ætla að flýta lækkun banka­skatta. Óeðli­legt væri að vera með sér­tækan banka­skatt um leið og fallið væri frá kröfu um arð­greiðslur og bankar hvattir til þess að standa með sínum við­skipta­vinum.

Hjálpa fyrirtækjum að standa í skilum

Í sam­hengi við þetta má nefna að á vef Stjórn­ar­ráðs­ins kemur fram að í ljósi minnk­andi umsvifa munu stjórn­völd í krafti hluta­starfa­leið­ar­innar „greiða allt að 75% launa starfs­fólks sem lækkar í starfs­hlut­falli, að hámarki 700 þús­und kr., og gera þannig launa­fólki og atvinnu­rek­endum kleift að halda ráðn­ing­ar­sam­bandi“. Úrræðið gildi næstu tvo og hálfan mánuð en reynslan af úrræð­inu verður end­ur­metin í maí. Með því að hjálpa fyr­ir­tækjum að standa í skilum og við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi launa­fólks og vinnu­veit­enda sé hægt að stytta þann tíma sem fyr­ir­tæki þurfa til að ná við­spyrnu á ný.

Gott samstarf við sveitarfélögin

Sigurður Ingi Sig­urðs­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, tók einnig til máls á fund­inum og sagði sveit­ar­fé­lögin sömu­leiðis ætla að fresta gjald­dögum á fast­eigna­gjöldum fyr­ir­tækja og þau séu eins reiðu­búin til sam­starfs um fjár­fest­ing­ar­á­form. Sigurður Ingi sagð­ist telja að íslenska þjóðin kom­ist hraðar í gegnum þetta ástand sem er komið upp vegna COVID-19 veirunnar en margar aðrar þjóðir.

Heimild til að taka út séreignasparnað og sérstakur barnabótauki

Á vef Stjórn­ar­ráðs­ins segir að afkoma heim­il­anna sé í brennid­epli aðgerð­anna. Þegar hafi verið tryggðar greiðslur til ein­stak­linga í sótt­kví, sem sé grund­vall­ar­at­riði til að hjálpa fólki að taka ábyrgar ákvarð­anir til að draga úr útbreiðslu veirunnar. Hluta­starfa­leið­inni sé ætlað að verja störf og afkomu fólks við þreng­ingar á vinnu­mark­aði. Heimild verði veitt til að taka út sér­eign­ar­sparnað að hámarki 800 þ.kr. á mán­uði í 15 mán­uði og end­ur­greiðslur vegna við­halds­vinnu við heim­ili og frí­stunda­hús­næði hækk­aðar úr 60 pró­sent í 100 pres­ent. End­ur­greiðslu­úr­ræðið verði auk þess útvíkkað til heim­il­is­þjón­ustu og tekin upp ný heim­ild fyrir þriðja geir­ann svo­kall­aða, „sem nær m.a. til almanna­heilla- og íþrótta­fé­laga, til end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts vegna vinnu fólks við bygg­inga­fram­kvæmdir á þeirra vegum“.

Loks verði greiddur út sér­stakur barna­bóta­auki 1. júní 2020 með öllum börnum undir 18 ára aldri. For­eldrar með lægri með­al­tekjur en 927 þús. kr. á mán­uði árið 2019 fá 40 þús. kr. á hvert barn og aðrir 20 þús kr.

Aðgerðapakkinn inn á borð hjá Alþingi seinna í dag

Þess má geta að Mannlíf hafði fyrst fjöl­miðla, greint frá fyrsta aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar, á sunnu­degi fyrir tæpum tveimur vikum. Stjórn­völd kynntu þær áætl­anir síðan á þriðju­dag í síð­ustu viku. Rík­is­stjórnin kynnti núver­andi aðgerða­pakka fyrir for­ystu­fólki stjórn­ar­and­stöðlu­flokk­anna í Stjórn­ar­ráð­inu klukkan ell­efu í morgun. Klukkan fjögur kemur síðan aðgerða­pakk­inn inn á fund efna­hags-og við­skipta­nefndar Alþingis.

Á vef Stjórn­ar­ráðs­ins eru aðgerð­irnar útli­staðar með eft­ir­far­andi hætti:

  • Ríkið greiðir allt að 75% launa fólks næstu mán­uði
  • Rík­is­á­byrgð á brú­ar­lánum til fyr­ir­tækja
  • Frestun og afnám opin­berra gjalda
  • Ferða­þjón­usta styrkt
  • Sér­stakur barna­bóta­auki með öllum börnum
  • Heimild til úttektar sér­eign­ar­sparn­aðar
  • End­ur­greiðsla virð­is­auka­skatts vegna fram­kvæmda
  • Fram­kvæmdum flýtt og fjár­fest í tækni­innviðum
  • Umfang aðgerða um 230 millj­arðar króna

Fréttin verður upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina