Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjóbókin fékkst afhent – Ekkert skrifað um Covid fyrr en á leið í land – „Einhver pest í gangi“

Sjóbókin fékkst afhent – Ekkert skrifað um Covid fyrr en á leið í land – „Einhver pest í gangi“
Júlíus Geir­munds­son ÍS var kall­aður í land eftir alvar­legt hópsmit um borð.

Sjó­dag­bók frysti­tog­ar­ans Júliusar Geir­munds­sonar ÍS fékkst loks afhend fyrir hér­aðs­dómi í gær eftir að lög­menn skip­stjór­ans og útgerð­ar­innar höfðu hafnað því að afhenda bók­ina á grund­velli per­sónu­verndar. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs vakti athygli hversu lítið er þar fjallað um Covid-hópsmitið og veik­indi skip­verj­anna fjöl­mörgu eftir að veiran hafði grass­erað um borð í þrjár vikur. Það var ekki fyrr en á 21. degi túrs­ins sem orðið Covid kemur fyrir, fram að því hafði verið skrifað að um borð væri ein­hver pest í gangi.

Þetta rímar við það sem Einar Valur Krist­jáns­son, fram­kvæmda­stjóri Hrað­frysti­húss­ins Gunn­varar, sem gerir út skipið, hefur full­yrt. Hann hefur látið hafa eftir sér að ástæðan fyrir því að tog­ar­anum var ekki fyrr snúið til lands hafi verið sú að útgerðin hafi ekki þekkt hvað Covid er. Hann hefur sagt að ekki sé hægt að útskýra ákvarð­anir skip­stjór­ans, Sveins Geir Arn­as­sonar, en áhöfn­ina bað hann afsök­unar.

Stétt­ar­fé­lög áhafn­ar­innar á frysti­tog­ara­naum Júlíusi Geir­munds­syni tóku höndum saman og kærðu útgerð­ina til lög­reglu. Tilefnið er frægur Covid-túr tog­ar­ans þar sem útlit er fyrir að veikum sjó­mönnum hafi verið haldið á sjó svo vikum skipti og skikk­aðir til að vinna. Þá hefur útgerðin orðið upp­vís að því að hlýða ekki sótt­varn­ar­lækni á Vest­firði sem gaf ítrekuð til­mæli þess efnis að tog­ar­anum yrði stýrt í land svo áhöfnin kæm­ist í sýna­tökur. Það var ekki gert fyrr en þremur vikum eftir brott­för.

Áður hafa útgerðin og skip­stjór­inn þrá­ast við að afhenda sjó­dag­bók tog­ar­ans og var deilt um afhend­ingu hennar fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­ness. Þar var einnig tek­ist á um fyr­ir­huguð sjó­próf og þar full­yrtu tví­menn­ing­arnir að þeir myndu ekki taka þátt í vitna­leiðslum sjó­próf­anna þar sem þær sæta saka­mála­rann­sókn hjá lög­regl­unni á Vest­fjörðum. Þar sem þeir hafa stöðu sak­born­inga í lög­reglu­rann­sókn þurfa þeir ekki að bera vitni fyrir sjó­próf­unum sem fram fara á mánu­dag­inn kemur.

Nærri helm­ingur áhafnar fyrsti­tog­ar­ans Júlíusar Geir­munds­sonar frá Ísafirði, hefur nú risið upp gegn skip­stjóra sínum, Sveini Geir, sem stýrði hinum fræga Covid-túr skips­ins sem Mannlíf greindi fyrst frá. Hann hefur sjálfur neitað að mæta í sjó­próf og var það kornið sem fyllti mæl­inn hjá skip­verj­unum sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs.

„Þarna var verið að spila með líf manna og menn voru bara drullu­heppnir að það dó eng­inn.“

Áhöfn tog­ar­ans sendi í vik­unni bréf til útgerð­ar­innar þar sem þeir lýsa yfir van­trausti á skip­stjóra tog­ar­ans. Þar er kraf­ist þess að Sveinn láti af störfum. Þar kemur fram að meiri­hluti skip­verja standi að baki bréfs­ins en ekki er stað­fest hve margir þeir séu.

Val­mundur Val­munds­son, for­maður Sjó­manna­sam­bands Íslands, skilur ekk­ert í hegðun útgerð­ar­innar. Hann segir að skorað hafi verið á útgerð­ar­sjó­r­ann, Valdimar Stein­þórs­son, til að mæta fyrir sjó­prófin en það hafi ekki enn feng­ist stað­fest. „Ég er satt að segja ansi hissa yfir þessu, bæði hvernig útgerðin og skip­stjór­inn haga sér. Ég er búinn að vera lengi í þessu og hef aldrei orðið vitni að öðru eins. Það virð­ist vera sem þeir kom­ist upp með það að bera ekki vitni í sjó­próf­unum en ég held að þeir séu að skjóta sig í fót­inn með þessu í stað­inn fyrir að mæta auð­mjúkir og biðj­ast afsök­unar,“ segir Val­mundur og bætir við:

„Það er það sem mér hefur fund­ist vanta upp á. Það er eng­inn að fara skjóta neinn eða hengja fyrir þetta heldur gengur þetta út á að ná fram sann­leik­anum. Við þurfum að geta lært af reynsl­unni svo þetta komi ekki fyrir aftur því þetta er svo grafal­var­legt mál. Þarna var verið að spila með líf manna og menn voru bara drullu­heppnir að það dó eng­inn. Skip­stjóri og yfir­menn útgerðar þurfa bara að standa sína plikt og bera ábyrgð á sínum gjörðum.“

Sveinn sagð­ist ekki hafa neitt um málið að segja þegar blaða­maður spurði hann út í van­trausts­yf­ir­lýs­ing­una á hendur sér en hann hefur ítrekað neitað að tjá sig um málið við Mannlíf. Hann hefur sjálfur frá­beðið sér sýnd­ar­rétt­ar­höld vegna túrs­ins sem ætluð séu til þess eins að smána sig opin­ber­lega. Hann seg­ist þó ekki ætla að skor­ast undan ábyrgð í mál­inu, því hélt hann fram í til­kynn­ingu sem hann lögð var fram í hér­aðs­dómi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi