Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gabríela: „Þjóðþekktir ofbeldismenn eru góðvinir fjölmiðlafólks og beita tilfinningaklámi“

Gabríela: „Þjóðþekktir ofbeldismenn eru góðvinir fjölmiðlafólks og beita tilfinningaklámi“

„Við höfum fundið það mjög sterkt að ein­stak­lingar sem hafa á því tök leita gjarnan í sviðs­ljósið til að lýsa sig sak­lausa og sverta mann­orð þolenda sinna. Það er þeim mjög auð­velt þar sem við búum í litlu sam­fé­lagi og miklar líkur á að lands­þekktir menn séu í vin­fengi við fjöl­miðla­fólk,” segir Gabríela Bryndís Ernu­dóttir hjá Líf án ofbeldis en sam­tökin hafa látið sig miklu varða ofbeldi gegn konum og börnum.

Tárum beitt í tilfinningaklámi

Hún segir lítið þurfa til að þeir fái mik­inn stuðn­ing. „Oft gæta þeir þess að fara fyrr fram til að stýra umræð­unni. Það má stundum kalla þetta til­finn­inga­klám, þeir beita tárum og tala mikið um dauð­ann. Einn sagði ásak­anir vera á pari við að missa barn. Þeir fara alla leið í að stýra til­finn­ingum les­and­ans eða hlust­and­ans.

Það sem fólk er kannski ekki alltaf að átta sig á er að þegar að meintir ger­endur fara fyr­ir­fram í við­töl og lýsa sig sak­lausa eru þeir jafn­framt að lýsa yfir að þol­and­inn sé lyg­ari. Og þegar fólk tekur sterka stöðu með mönnum sem koma fram með sína útgáfu af hlut­unum er það einnig að taka afstöðu gegn þolendum.”

Hún segir að jafn­vel sé um börn að ræða í í alvar­leg­ustu til­fell­unum. „Þar er mik­ill skaði unn­inn gagn­vart þolendum.”

Sakleysi karla tekið sem staðreynd

Líf án ofbeldis hefur nýverið nafn­greint þjóð­þekktan mann sem sjálfur fékk að því er virt­ist ótak­markað rými í fjöl­miðlum til að lýsa sak­leysi sínu á kostnað meintra brota­þola og greindi Mannlíf frá því fyrr á árinu.

Meintir brotaþolar og aðstandendur þeirra fá að sama skapi ekkert rými í fjölmiðlum og mæta afskiptaleysi og áhugaleysi fjölmiðla ef þau vilja stíga fram og lýsa reynslu sinni

Gabríela segir ger­enda­með­virkn­ina í sam­fé­lag­inu vera afar umfangs­mikið og slæmt vanda­mál. „Við erum að sjá mjög skýrt hvernig þetta er síend­ur­tekið gegn konum og börnum og verðum vitni að hvernig hlut­unum er stillt upp í fyr­ir­sögnum blað­anna. Þegar karl­menn lýsa yfir sak­leysi sínu er því tekið sem stað­reynd á meðan að mun meiri fyr­ir­vari er settur á lýs­ingar þolenda á sinni reynslu.”

Gabríela telur að ger­enda­með­virknin og við­bragð sam­fé­lags­ins sé ekki bara skað­legt heldur komið á hættu­legt stig þegar ger­endur tengj­ast síðan við­kom­andi aðila fjöl­skyldu­böndum og hafa stöðu sem slíkir, eig­in­maður eða faðir. Gas­lýs­ingin verði meiri af hálfu sam­fé­lags­ins þegar um ræðir ofbeldi í nánum sam­böndum.

Viljum trúa á góðan heim

Gabríela telur að hér sé um að ræða trú fólks á að það lifi í raun í góðum heimi. „Þessir menn eru svo klókir, þeir vita nákvæm­lega hvað þeir eru að gera. Það eru engin rök að baki ofbeldi og þegar fólk sem sjálft er ekki vant að beita ofbeldi verður vitni að til­finn­inga­þrungnum yfir­lýs­ingum vill það trúa á sak­leysi manna. Sem er full­kom­lega eðli­legt því að er ekk­ert skilj­an­legt við ofbeldi. Fólk sem horfir utan að frá vill ekki trúa að „venju­legir menn“ séu færir um að beita börn og konur ofbeldi.”

Aðspurð um stöðu #metoo hreyf­ing­ar­innar telur Gabríela að til­koma hennar hafi verið mikil blessun. „Henni er aftur á móti ekki alveg lokið. Það hefur komið bakslag þar sem veist hefur verið að þolendum sem eru því afar slegnir. Ég tel að á meðan kyn­bundið ofbeldi og ger­enda­með­virkni grass­erar í sam­fé­lag­inu, þá er enn grund­völlur fyrir #metoo frá­sögnum og ég fagna því að konur haldi áfram að segja frá reynslu sinni.”

Hún telur að skapa þurfi meira rými í umræð­una um að ger­endur taki ábyrgð. „Karlmenn þurfa sjálfir að standa sterkar gegn ofbeldi. Þeir þurfa að hjálpa hverjir öðrum að hætta að beita því. Í dag virð­ist staðan vera sú að það sé mörgum karl­mönnum auð­veld­ara að styðja menn sem halda fram sak­leysi sínu í stað þess að fara fram á að þeir hætti ofbeld­is­hegðun.

Eiga ekki að lenda í mannorðsmorði

Gabríela segir lyk­il­at­riði að umræðan haldi áfram og að stúlkur sem eru beittar ofbeldi og vekji athygli á því þurfi ekki að lenda í mann­orðs­morði fyrir vikið. „Mönnum er ekki hlíft erlendis en þeim er hlíft á Íslandi. Þar spilar smæðin inn í.

Svo verður auð­vitað að líta til þess að menn sem koma fram með stór­yrtar yfir­lýs­ingar um sak­leysi sitt að fyrra bragði þurfa ekki bein­línis að vera hissa þegar þeim er svarað,” segir Gabríela Bryndís hjá Líf án ofbeldis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una