Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kári fer yfir faraldurinn „Samskipti okkar við hið opinbera í gegnum þennan tíma voru voða skrítin“

Kári fer yfir faraldurinn „Samskipti okkar við hið opinbera í gegnum þennan tíma voru voða skrítin“

„Þessi far­aldur byrj­aði í Wuhan í Kína og það er nákvæm­lega ekk­ert sem bendir til þess að þetta hafi ekki byrjað á sama máta og aðrir far­aldrar. Það er ekk­ert sem bendir til þess að þessi veira hafi laumað sér út af rann­sókn­ar­stofu í Wuhan.“

Það má með sanni segja að Kári Stef­áns­son for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar hafi lagt sitt lóð á vog­ar­skál­arnar í bar­átt­unni við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hér á landi. Auk þess að vera upp­spretta fróð­leiks um far­ald­ur­inn.

Íslensk erfða­grein­ing hefur ásamt veiru- og sýkla­fræði­deild Land­spít­al­ans séð um grein­ingu sýna, fyr­ir­tækið réðst einnig í að rað­greina jákvæð sýni svo hægt væri að sjá hverrar teg­undar veiran væri og hvernig hún væri að smit­ast, ásamt því að vera búið að gera hinar ýmsu rann­sóknir á far­aldr­inum hér á landi og gefa út vís­inda­greinar. Og þá er sú vinna sem fyr­ir­tækið hefur lagt af mörkum þó enn ekki upp­talin.

Mannlíf sett­ist niður með Kára Stef­áns­syni og fór yfir far­ald­ur­inn á Íslandi, þátt­töku Íslenskrar erfða­grein­ingar og skoðun hans á því hvernig til hefur tek­ist hér á landi.

„Svo vitlaus að hún gæti ekki komið annars staðar frá en frá Bandaríkjunum“

Kári segir það ein­ungis vera get­gátur að far­ald­ur­inn hafi orðið til á rann­sókn­ar­stofu í Kína, get­gátur sem ekki eru studdar nokkrum upp­lýs­ingum eða gögnum.
„Ef það er rétt að veiran hafi borist þannig út, að ein­hver hafi verið að vinna með kór­ónu­veirur í leð­ur­blökum og hafi smit­ast af því og síðan farið heim til sín og smitað ein­hvern annan, so what?“

Segir hann ástæð­una fyrir því að fólk sé að velta þess­ari spurn­ingu upp ósköp ein­fald­lega þá að nýr for­seti Banda­ríkj­anna, Joe Biden, telji þörf á að þvo af sér stað­hæf­ingu Donald Trumps um að hann sé hallur undir Kínverja.

„Hann er ef til vill að reyna sann­færa þjóð sína um að hann sé það ekki með því að velta upp þess­ari fárán­legu spurn­ingu. Sem er svo vit­laus að hún gæti ekki komið ann­ars staðar frá en frá Banda­ríkj­unum, ósköp ein­fald­lega.“

Leit illa út

Að sögn Kára leit far­ald­ur­inn býsna ógn­vekj­andi út í byrjun.

„Þegar fréttir fóru að ber­ast af þessu þá hljóm­aði þetta pínu­lítið eins og fyrsti kafl­inn í sög­unni um útrým­ingu mann­kyns.“

Hann segir menn hafa þó byrjað frekar snemma að skima eftir veirunni hér á landi, þó það hafi verið gert á nokkuð mátt­leys­is­legan hátt, eins og hann orðar það sjálfur.

„Og þegar við fórum svona að skoða þetta hér fannst okkur eins og sam­fé­lagið væri ekki vel undir það búið að takast á við þetta.“

Kári segir fyr­ir­tækið hafa náð sér í þau tæki og þann efni­við sem til þurfti og það hafi tekið um fimm daga að setja upp rann­sókn­ar­stofu til að hjálpa til.

Þannig að þið áttuð ekki allan búnað sem til þurfti fyrir slíka rannsóknarstofu?

„Við áttum sum tæki, við þurftum að bæta aðeins við og eins og ég segi það tók okkur svona fimm daga að koma þessu af stað og við fórum síðan að skima í sam­fé­lag­inu almennt. Það er að segja að skima fólk sem var ekki með ein­kenni.“

Almenn­ingi var boðið að mæta í sýna­töku í Þjón­ustu­mið­stöð rann­sókn­ar­verk­efna í turn­inum í Kópavogi, sem margir nýttu sér.

„Þann 15. febr­úar á þessu ári vorum við búin að greina meiri­hluta þeirra sem voru skimaðir. Ætli það hafi ekki verið 80% af heild­ar­grein­ing­unni.“

Kári segir að fljót­lega eftir að skimun hófst á Íslandi hafi rann­sókn­ar­stofa Land­spít­al­ans hálf­part­inn gef­ist upp.

„Hún var illa tækjum búin og þegar þeir fóru að takast á við þetta þá pönt­uðu þeir sér tæki sem var erfitt að ná í og var ekki komið í gagnið fyrr en upp úr miðjum febr­úar í ár. Það er að segja að það tók þá upp undir ár að koma sér af stað, með því að nota þá aðferð sem þeir not­uðu sem að markast sjálf­sagt af því að það er allt miklu stíf­ara í þessu rík­is­batt­erí heldur en hjá okkur.“

Þá bendir Kári á, eins og fram kom í fjöl­miðlum, að tækið sem pantað var inn á Land­spít­al­ann hafi einnig bilað og segir hann að þar af leið­andi hafi deildin ekki náð að sinna því sem hún ætl­aði sér.

„En ég held því fram að þetta eigi að ein­hverju leyti rætur sínar að rekja í öðrum og mann­legri þáttum heldur en getu eins tækis, það er eitt­hvað sem er ekki alveg að virka á þeirri rann­sókn­ar­stofu og þeir þurfa ósköp ein­fald­lega að end­ur­skipu­leggja hana,“ segir hann og heldur áfram. „Því að þetta er ekk­ert flókið og þú þarft ekk­ert að gera þetta með ofboðs­lega dýrum tækjum, þú getur gert þetta með miklu ein­fald­ari tækjum.“

Þá sé þetta spurn­ing um mann­skap og skipu­lag.

„En þetta er allt saman fín­asta fólk skil­urðu og það eru allir fullir af vilja og löngun til að leggja af mörkum. En stundum innan svona kerfis eins og Land­spít­al­ans, hefur reynst erfitt að skipu­leggja svona hluti.“

En er viðbragðstími Landspítalans ásættanlegur að þínu mati?

„Nei þetta er ekki eðli­legt og ekki ásætt­an­legt en taktu eftir því það er ekki vegna þess að það sé ekki afburða fólk sem er að vinna uppi á Land­spít­ala. Land­spít­al­inn er stofnun sem hefur verið svelt fjár­hags­lega í dálítið langan tíma.“

Þá segir hann sömu­leiðis hafa gengið illa að end­ur­skipu­leggja vinn­una þannig að spít­al­inn virki eins vel og hann ætti að gera.

Í far­aldr­inum hefur lækn­is­þjón­ustan á Land­spít­al­anum, sam­kvæmt Kára, hins vegar verið mjög góð.

„Land­spít­al­inn sem klínísk stofnun virk­aði mjög vel í far­aldr­inum, það er að segja það var alveg afburða þjón­usta sem fólk fékk. Covid göngu­deildin var til að mynda alveg stór­kost­leg.“

Segir hann aðeins eina und­an­tekn­ingu vera þar á sem hafi verið Landa­kots­slysið og vitnar þar í hópsmitið sem þar varð síð­ast­liðið haust.

„Það átti rætur sínar í því að það voru ekki við­hafðar þær sótt­varnir á Landa­koti sem skildi. Þar varð Land­spít­öl­unum á í mess­unni.“

Samskiptin við hið opinbera skrítin

Það hefur lík­leg­ast ekki farið fram hjá neinum að sam­skipti rík­is­stjórn­ar­innar og Kára hafa ekki verið hnökra­laus í gegnum far­ald­ur­inn.

„Nú sam­skipti okkar við hið opin­bera í gegnum þennan tíma voru voða skrítin. Við erum með heil­brigð­is­mála­ráð­herra sem á í pínu­litlum sam­skipta­örð­ug­leikum við einka­fram­takið í heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Sífellt var verið að skipu­leggja frekara átak í skimun og í því ferli var aldrei leitað til Íslenskrar erfða­grein­ingar fyrr en búið var að setja saman skipu­lag og þá var fyr­ir­tækið beðið að sinna því, að sögn Kára.

„Þetta var svona svo­lítið klaufa­legt en það var ekk­ert illt í þessu og þetta gekk mjög vel.“

Segir hann þó að fokið hafi í þau af og til. „Okkur fannst skorta kannski pínu­lítið á virð­ingu fyrir verk­inu því það lenti alltaf á okkur. En að því slepptu, þá gekk þetta mjög vel.“

Ef litið er til baka segi Kári bar­átt­una við far­ald­ur­inn hér á landi hafa gengið vonum framar, þrátt fyrir pínu­litla hnökra hér og þar. Þótt það megi þakka það að ein­hverju leyti upp­lýs­ingum og gögnum sem komu frá Íslenskri erfða­grein­ingu, stafi vel­gengnin aðal­lega af því að fólkið í land­inu fylgdi því sem heil­brigð­is­yf­ir­völd settu fram.

„Þjóðin stóð sig mjög vel í þessu.“

Mikilvægi raðgreininganna

Eitt af þeim verk­efnum sem Íslensk erfða­grein­ing réðst í voru rað­grein­ingar. Samkvæmt Kára varð það fram­tak mik­il­væg­ara og mik­il­væg­ara með hverjum mán­uð­inum sem leið.

„Við fórum að vernda landa­mærin, þá var mjög mik­il­vægt að átta sig á því, þegar greindust fjórir, fimm, sex, sjö, átta eða níu ein­stak­lingar á ein­hverjum degi, að vita hvort það ætti rætur sínar í einu atviki. Það er að segja að það hafi einn ein­stak­lingur komið með veiruna inn í landið, eða margir.“ En þær upp­lýs­ingar fást við rað­grein­ingu.

Var það ykkar framtak að ráðast í þessar raðgreiningar?

„Já það var bara okkar fram­tak. Ég er ekki einu sinni viss um að heil­brigð­is­yf­ir­völd hafi vitað hvernig maður átti að stafa rað­grein­ing, að minnsta kosti höfðu þeir enga aðstöðu til að sinna slíku.“

Segir hann fyr­ir­tækið einnig hafa séð um grein­ingu á öllum þessum gögnum og sömu­leiðis aðstoðað sótt­varn­ar­yf­ir­völd að finna út hvað þessar rað­grein­ingar þýða. En meðal ann­ars er hægt að fá úr því skorið þegar tveir aðilar smit­ast á sama tíma af sömu veiru, hvor hafi smitað hinn.

En mun covid breyta okkur til frambúðar?

„Ég veit það ekki, ég hugsa nú að sam­fé­lagið leiti í sama far mjög fljót­lega. Ég hugsa þó að reynslan af þessu skilji svo­lítið eftir.“

Kári telur að heims­far­ald­ur­inn hljóti að koma til með að hafa áhrif á það hvernig við hugsum um heil­brigð­is­kerfið. Meira að segja var heil­brigð­is­kerfi vest­rænna þjóða ekki und­ir­búið fyrir þetta.

Tekur hann Banda­ríkin sem dæmi.

„Norður-Ameríka, þar sem að meiri­hluti nýj­unga í heil­brigð­is­þjón­ustu hefur orðið til á síð­ustu fimm­tíu árum. Banda­ríkin gátu ekki einu sinni brugð­ist við þessu almenni­lega vegna þess að heil­brigð­is­kerfin voru svo hólfuð niður.“

Kári segir að hvergi í heim­inum séu til betri háskólar, meiri tækni­geta eða meira fé til að sinna þessu.

„En háskól­arnir fengu ekki að vera með af því þeir voru ekki með leyfi sem klínískar rann­sókn­ar­stofur þannig að þeir dróg­ust aftur úr þegar kom að því að skima eftir veirunni.“

Telur hann að betra skipu­lag verði sett á þannig að hægt verði að bregð­ast miklu hraðar við og miklu effek­tí­var, eins og hann orðar það.

„Ég hugsa að menn komi til með að skipu­leggja ekki bara heil­brigð­is­þjón­ustu ein­stakra landa á miklu heild­stæð­ari hátt, heldur verði gerð til­raun til þess að sam­hæfa aðgerðir um allan heim fyrir far­aldur af þess­ari gerð.“

Hvað með bóluefnin?

„Ég held að það sé mjög lít­ill munur á þessum bólu­efnum. Ég held að ástæðan fyrir því að bólu­efni AstraZeneca hefur svona slæmt orð á sér sé að miklu leyti útaf klaufa­skap. Þó ber þess að geta að mjög fágætar auakverk­anir eru örugg­lega algeng­ari af AstraZeneca og Janssen bólu­efn­unum heldur en þessum RNA bólu­efnum.“

Segir hann að eins og fram hafi komið séu þessar fágætu auka­verk­anir aðal­lega hjá ungum konum sem bendi til þess að bólu­efnið veki kraft­meiri ónæm­is­varnir heldur en RNA bólu­efni.

„En þegar þú ert far­inn að bólu­setja tugir millj­óna manna sem að hefur aldrei gerst í sög­unni áður, þá ertu far­inn að fikta í algjörum ytri mörkum mann­legrar fjöl­breytni,“ segir Kári og heldur áfram.

„Þegar kemur að ónæm­is­kerf­inu ertu far­inn að skoða fólk sem býr til alveg ótrú­lega kraft­mikil ónæm­is­við­brögð gegn svona bólu­efni og í þessu til­felli þá er kannski einn af milljón konum sem eru bólu­settar sem mynda mótefni gegn blóð­flögum og við það mynd­ast ofnæmi gegn þessum blóð­flögum, þá verða til blóð­tappar í blá­æðum upp í heila og það er það sem hefur verið að leiða til dauða ein­stakra ungra kvenna sem eru bólu­settar með þessu bólu­efni.“

Er verið að þagga niður aukaverkanirnar hér á landi?

„Nei. Þagga það niður? Ég veit ekki um eitt ein­asta dæmi þar sem það hefur verið þaggað niður. Það er verið að lesa í alls­konar vit­leysu. Til dæmis þegar var verið að bólu­setja elstu ein­stak­ling­ana þá fórn­uðu menn höndum til him­ins vegna þess að fólk var að deyja sem hafði verið bólu­sett. Það eina sem bólu­efnið gerir er að verja þig gegn veirunni, það kemur ekki í veg fyrir að þú deyir þegar þú ert kom­inn að fótum fram.“

Þetta er ekkert töfralyf?

„Nei. En þetta er alveg ofboðs­lega effek­tív leið til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu af svona far­aldri. Og meira að segja með þessa bólu­setn­ingu sem við erum komin með núna þá er þetta farið að hafa meiri­háttar áhrif. Við erum alltaf að sjá af og til að það koma upp litlar hóp­sýk­ingar, það eru einn eða tveir eða þrír eða fjórir ein­stak­lingar sem sýkj­ast og þetta breið­ist ekki út. Það er meðal ann­ars út af því að við erum búin að bólu­setja ansi stóran hóp og nátt­úru­lega hins vegar líka út af þessum sótt­varn­ar­að­gerðum sem við höfum gripið til.“

Unnu myrkranna á milli

Aðspurður um aðkomu Íslenskrar erfða­grein­ingar að far­ald­ur­inn seg­ist hann vera glaður og kátur með að þau hafi haft eitt­hvað fram að færa.

„Og ekki stóð á fólki hér,“ segir Kári og heldur áfram. „Sér­stak­lega í byrjun far­ald­urs­ins þá vann fólk hér myrkr­anna á milli, sjö daga vik­unnar og það var eng­inn að kvarta undan vinnu­á­lagi. Og það hefur eng­inn kvartað undan vinnu­á­lagi síðan þetta byrj­aði. Nú eru menn hér aftur byrj­aðir að vinna á vöktum og ég hef ekki heyrt eitt ein­asta múkk þar sem nokkur maður hafi kvartað undan nokkrum sköp­uðum hlut.“

Segir hann nauð­syn­legt í svo litlu sam­fé­lagi að menn snúi bökum saman.

„Við erum lítið sam­fé­lag og til þess að takast á við þetta þurftu allir að koma að þessu og allt sem sam­fé­lagið átti. Annars vegar spít­al­inn, þessi rík­is­rekni spít­ali, rann­sókn­ar­stofan þar og sótt­varn­ar­yf­ir­völd og svo hins vegar einka­fyr­ir­tækið.“

Að hans mati hefur Ísland sem sam­fé­lag komið vel út úr far­aldr­inum.

„Það unnu allir saman og það var þörf fyrir alla. Og ef við horfum til baka getum við öll verið montin af því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina