Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sorgir, sigrar og baráttan við Covid: „Stundum heldurðu að þú komist ekki í gegnum daginn“

Sorgir, sigrar og baráttan við Covid: „Stundum heldurðu að þú komist ekki í gegnum daginn“
Svandís Svav­ars­dóttir Heil­brig­iðs­ráð­herra. Mynd: Róbert Reynisson

„Íslend­ingar og við sem hér búum erum nokkuð sjóuð í að vera í sam­skiptum við öfl sem við ráðum ekki við, sem eru nátt­úru­öflin. Þannig að það er svo­lítið inn­gróið í þjóð­arsál­ina held ég að snúa bökum saman þegar eitt­hvað svona utan­að­kom­andi kemur upp á.“

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur verið í þunga­miðju bar­átt­unnar við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn á Íslandi. Ekki nóg með að gegna einu mik­il­væg­asta hlut­verki þjóð­ar­innar á þessum for­dæma­lausu tímum, þá hefur hún sam­hliða því þurft að glíma við mikil áföll í einka­líf­inu.
Svandís sett­ist niður með Mannlífi og fór yfir krefj­andi verk­efni síðan heims­far­ald­ur­inn skall á.

„Ég var einmitt að skoða núna á dög­unum fyrsta minn­is­blaðið frá Þórólfi sem kom í jan­úar 2020. Þá er hann að segja mér frá veiru sem hafi greinst í Kína og hann segir í þessu bréfi að hún muni ber­ast til Íslands. Og ég man eftir því hvað mér fannst hann eitt­hvað voða­lega svart­sýnn að halda að veiran kæmi hingað.“

Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, stóð fast á sínu og sagði að eng­inn vafi væri á því að veiran myndi koma til Íslands. Þá hafi hann strax frá upp­hafi verið með mjög skýra leið­sögn til ráð­herra og bent á mögu­lega veik­leika í kerf­inu sem þyrfti að styrkja og ráð­ast þyrfti í ýmsar aðgerðir, meðal ann­ars að tryggja aðskilnað á bráða­mót­tök­unni, þannig að þau sem mögu­lega væru með kór­ónu­veiruna færu inn ann­ars staðar, huga þyrfti að öllum bún­aði og vera vel á verði.

„Þannig að við í raun­inni erum að byrja grípa til ráð­staf­ana rúm­lega mán­uði áður en fyrsta smitið kemur hingað. Og það reynd­ist okkur mjög vel, að hafa verið með augun á bolt­anum alveg frá því áður en að far­ald­ur­inn kom hingað.“

Þá segir Svandís Þórólf einnig hafa verið með leið­sögn um hvernig þyrfti að umgang­ast far­þega frá til­teknum svæðum. „Við vorum á undan öðrum ríkjum á Norð­ur­löndum til dæmis að lýsa yfir að það væru ein­hver til­tekin hættu­svæði í Evrópu. Og Þórólfur var meira að segja með ábend­ingar til Norð­ur­landa­þjóð­anna að það væru til­tekin svæði á norður Ítalíu sem væru hættu­svæði. En það var ekki hlustað á það til að byrja með, það tók þá nokkra daga.“

Var Ísland þá vel undirbúið fyrir faraldurinn?

„Já, í meg­in­at­riðum vorum við það. Það sem var sterkt við okkar und­ir­bún­ing voru kannski fyrst og fremst þessar við­bragðs­á­ætl­anir almanna­varna.“ Hún bendir á að þær hafi nú ekki verið til fyrir covid, heldur fyrir inflú­ens­una, „en það voru við­bragðs­á­ætl­anir sem  giltu fyrir allt kerfið og maður sér það þegar þessi glíma fer svo af stað hvað það hefur verið far­sælt að vera með almanna­varnir og heil­brigð­is­yf­ir­völd svona nátengd þegar kemur að þessum stóru aðgerðum og þessum yfir­lýs­ingum um til dæmis hættu­stig og óvissu­stig.“

Ráðherra segir að án aðstoðar Íslenskrar erfða­grein­ingar hefði Ísland ekki kom­ist eins vel út úr far­aldr­inum og raun ber vitni. „Grein­ing­ar­getan hefur verið svona tak­mark­andi þáttur hér. Með sam­starf­inu við þau höfum við geta farið þessa leið að vera með mjög öfl­uga skimun, vera með öfl­uga rað­grein­ingu, vera með rakn­ingu sem er ein­stök og við erum að beita þessum aðferðum sem eru skimun, rakn­ing, sótt­kví, ein­angrun með mjög mark­vissum hætti eig­in­lega alveg frá fyrsta degi.“

Hvað með greiningargetu Landspítalans?

Ráðherra segir fljótt hafa komið í ljós að þörf yrði á stuðn­ingi Íslenskrar erfða­grein­ingar. Mynd/ Róbert Reyn­is­son.

„Já við vissum það í raun­inni fyrir að það var þarna ákveð­inn veik­leiki og það kom eig­in­lega strax fram þegar að við vorum að fara yfir stöð­una til­tölu­lega snemma í far­aldr­inum, hvað við hefðum og hvað okkur skorti.“

Segir hún að þá hafi sést svart á hvítu að það yrðu vand­ræði með þann þátt og að treysta þyrfti á stuðn­ing Íslenskrar erfða­grein­ingar.

„En þá setjum við í gang að útvega og festa kaup á bún­aði til þess að geta lesið úr sýnum. Svo eins og er á þessum tímum þá tekur allt lengri tíma en maður hélt og allir ferlar taka lengri tíma sömu­leiðis þannig að það hefði alveg mátt vera fyr­ir­séð að allt yrði sein­legra. En við erum núna betur í stakk búin fyrir næsta far­aldur ef hann kemur.“

Þannig það er ekk­ert sem hefði verið hægt að gera betur sem hefði flýtt fyrir þessu ferli?

„Nei, ekki þegar það lá fyrir að þetta væri svona á leið­inni. Þá var stuttur tími til stefnu. En við getum alveg horfst í augu við það að það lá fyrir um langt ára­bil að við værum ekki með nægi­lega góðan búnað hjá sýkla- og veiru­fræði­deild. Það hafði legið fyrir í mörg mörg ár. En það er eins og oft er að það er ekki fyrr en á reynir sem að kerfið og sam­fé­lagið upp­götvar hversu afdrifa­ríkt getur verið að vera ekki með nægi­lega öflug tæki.“

En hvernig voru sam­skipti yfir­valda við Íslenska erfða­grein­ingu, var gengið að aðstoð þeirra sem vísri?

„Nei, ég get nú alls ekki sagt það. Þetta end­ur­spegl­að­ist svo­lítið í þessu fámenn­ings sam­fé­lagi sem við erum í, þannig að sam­skiptin voru oftar óform­leg en form­leg og sner­ust auð­vitað um traust og trúnað á milli sótt­varna­læknis og for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar sem reynd­ist vera sú brú sem hjálp­aði til við ákvarð­an­irnar þarna. Og það gerð­ist ein­hvern veg­inn mjög hratt að það varð þessi stemmn­ing í sam­fé­lag­inu að við ætl­uðum öll að róa í sömu átt og við ætl­uðum öll að snúa bökum saman. Og það var mjög hik­laust og óveru­legir hnökrar í raun og veru svona eftir á að hyggja sem að komu upp í því ferli.“

En nú hefur Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, talað um að sam­skiptin hefðu mátt vera betri eða upp­lýs­inga­flæðið betra. Að þeir hafi fengið upp­lýs­ing­arnar liggur við um leið og almenn­ingur fékk þær þegar þeir áttu að stíga inn í.

„Já ég held að það sé alveg rétt að margt hafi mátt fara betur í sam­skipt­unum og að við hefðum mátt stilla betur saman strengi. En þegar öllu er á botn­inn hvolft þá gekk þetta rosa­lega vel. Og Íslensk erfða­grein­ing kom inn með mjög mynd­ar­legum hætti líka í því að fara í skimun í sam­fé­lag­inu sem var gert á til­teknum tíma­punkti, til þess að kanna hvort veiran væri útbreidd í sam­fé­lag­inu og hver staða hennar væri.“

Þá segir Svandís sér­þekk­ing­una sem þar er gera kleift að rað­greina veiruna, sem hún segir hafa hjálpað gríð­ar­lega í bar­átt­unni við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn.

„Það hefur hjálpað sér­stak­lega núna þegar við erum með til­tölu­lega fá smit í sam­fé­lag­inu, að geta alltaf sagt nákvæm­lega hvaðan smitið er upp­runnið og svo fram­vegis, en að það dúkki ekki bara upp sem ein­hver tala heldur sé hægt að fara í þessa ætt­fræði veirunnar í hvert skipti. Sem hefur verið ómet­an­legt.“

Afléttingar á landamærunum

Frá og með deg­inum í dag, 26. júní, er öllum tak­mörk­unum inn­an­lands aflétt. Er það í fyrsta sinn síðan far­ald­ur­inn hófst, í mars 2020, sem engar tak­mark­anir eru í gildi inn­an­lands.

Þann 1. júlí næst­kom­andi verða aflétt­ingar á landa­mær­unum. Þá verður hætt að skima börn fædd 2005 og síðar og þá sem fram­vísa gildum vott­orðum um bólu­setn­ingu eða fyrri sýk­ingu af völdum kór­ónu­veirunnar. Þurfa þeir jafn­framt ekki að sýna fram á nei­kvætt PCR próf.
En ennþá verður gert ráð fyrir að þeir aðilar sem ekki geta sýnt fram á bólu­setn­ingu eða fyrri covid-19 sýk­ingu komi með nei­kvætt PCR vott­orð og fari í tvö­falda skimun með sótt­kví á milli.

Var þörf á að end­ur­meta þá ákvörðun í ljósi hins nýja afbrigðis kór­ónu­veirunnar, hinu svo­kall­aða delta afbrigði?

„Já þessi stökk­breyttu afbrigði gefa alltaf til­efni til þess að staldra við og þá þarf nátt­úr­lega ýmis­legt að kanna, hver er útbreiðslan, hver er smit­stuð­ull­inn, hversu vel vinna bólu­efnin á við­kom­andi afbrigði og svo fram­vegis. Og þetta er nátt­úr­lega þekk­ing sem vís­inda­sam­fé­lagið er að byggja upp bara jafn harðan, þannig að við vitum alltaf meira í dag heldur en við vissum í gær og við fylgj­umst með almennri opin­berri umræðu og svo umræðu meðal vís­inda­manna um þetta,“ segir ráð­herra og heldur áfram.

„Þetta er sam­spil aðgerða og kallar á stöðugt mat og end­ur­mat, sem við höfum verið í allan tím­ann. Við höfum alltaf verið til­búin að fram­lengja aðgerðir, að herða þær og slaka á þeim, en núna eftir að bólu­setn­ing­arnar urðu svona almennar og við erum sýn­ist mér núna, sem verður örugg­lega fljótt úrelt, í 6. sæti í heim­inum í bólu­setn­ingu. Þannig að við erum komin þangað að það ætti að vera orðin tölu­vert góð almenn vörn í sam­fé­lag­inu.“

Nú bera ferða­menn engan kostnað af þeim skimunum sem þeim ber að fara í við kom­una til lands­ins, né þurfa að greiða fyrir gist­ingu eða mat dvelji þeir á sótt­kví­ar­hót­elum. Hví var sú ákvörðun tekin að ríkið skyldi bera allan kostnað?

„Fyrst og fremst til að halda í þá hvata að fólk teldi það vera til góðs  að vera þar. Þetta eru nátt­úr­lega skyldu­bundnar ákvarð­anir og við töldum þá rétt að það væri ekki þannig að við værum að rukka fólk. Við vorum og erum alltaf að vega og meta, það er þannig að eftir því sem tak­mark­anir eru lengri og meiri þeim mun meiri tekjum verður rík­is­sjóður af.“

Telur hún þann kostnað sem ríkið beri af sótt­kví­ar­hót­elum vera óveru­legan þegar taldar eru tekjur rík­is­sjóðs af bara ferða­mönnum til dæmis.

„Þannig að þetta var sam­eig­in­legt mat okkar að fara þessa leið.“

„Allir tala út frá sínum hagsmunum og sinni stöðu“

Aðspurð hvort hún hafi orðið fyrir þrýst­ingi hags­muna­að­ila um að aflétta hömlum fyrr, segir ráð­herra svo vera.

„Já, ég meina, við höfum öll skoð­anir á þessu. Og allir tala út frá sínum hags­munum og sinni stöðu,“ sem hún segir jákvætt og sjálfri líki henni vel að vera í sam­fé­lagi þar sem þykir gott að fólk segi sína skoðun.

„Þannig að ég veit ekki hvað er þrýst­ingur, en ég hef sann­ar­lega fengið tölvu­pósta og fund­ar­beiðnir og allt mögu­legt frá alls­konar fólki sem hefur haft hags­muni af því að aflétt­ingar væru öðru­vísi en þær síðan voru.“

Segir hún þó þegar öllu er á botn­inn hvolft hafi Ísland verið með miklu opn­ara sam­fé­lag en flest löndin í kring.

En hverjar hafa verið erf­ið­ustu ákvarð­an­irnar á þessum tíma?

„Það er alltaf leið­in­leg­ast að fara til baka í herð­ingum, það er rosa­lega leið­in­legt. Það eru mikil von­brigði í sam­fé­lag­inu þegar það ger­ist.“

Þó segir hún það oft­ast hafi verið þannig að sam­fé­lagið hafi verið til­búið og farið að kalla eftir til­mælum.

„Það var bæði núna í fyrra­haust og svo núna í byrjun mars þegar við þurftum að snar­herða og fórum alveg niður í tíu þarna á einum degi. Það var rosa­lega leið­in­legt. En það var líka nauð­syn­legt.“

Segist Svandís bæði vera ótrú­lega hissa og þakk­lát fyrir hvað sam­fé­lagið hefur staðið vel saman og segir það svo­lítið sér­stakt.

„Við höfum verið ótrú­lega öflug í því að standa saman og hjálp­ast að. Það er svona ánægju­lega hliðin á þessu öllu saman.“

„Þetta er svolítið eins og vísindaskáldsaga“

„Ég hélt ekki að það ætti eftir að ger­ast nokkurn tím­ann að settar yrðu á alls­herjar sam­komu­tak­mark­anir,“ segir Svandís og útskýrir að þetta sé heim­ilt sam­kvæmt sótt­varn­ar­lögum.

„Sam­komu­bann,“ segir hún með áherslu í rödd­inni, „þetta er rosa­lega dramat­ískt. Þetta er svo­lítið eins og vís­inda­skáld­saga, en svo þegar tím­inn líður þá er þetta orðið bara eitt­hvað sem við tölum um eins og ekk­ert sé sjálf­sagð­ara. Tölum um sótt­kví sem að manni finnst til­heyra umræð­unni um 1918 eða eitt­hvað.“

Segir hún þetta vera mikla grund­vall­ar­breyt­ingu á sam­fé­lag­inu, að setja á sam­komu­bann.  „Þetta var svona laga­heim­ild sem að mér fannst rosa­lega skrítið að grípa til, mér fannst rosa­lega skrítið að vera í þeim sporum að opna þennan kafla í sög­unni að skrifa undir reglu­gerð um að banna sam­komu­hald.“

Hvernig er að gegna embætti heilbrigðisráðherra á þessum fordæmalausu tímum?

„Það er fyrst og fremst alveg ofboðs­lega mikil ábyrgð og það reynir á mjög marga þætti; seiglu, úthald og það að reyna – skellir upp úr – að hafa haus­inn skrúf­aðan á allan tím­ann. Að skilja hismið frá kjarn­anum, þetta reynir svo­lítið á það.“

Þá segir hún mik­il­vægt að anda og muna hvað það skipti miklu máli að halda fókus.

„Þetta eru svo­lítið svona eig­in­leikar sem reynir á undir þessum kring­um­stæðum og snú­ast að sumu leyti um, kannski bara reynslu, en nei, ekki reynslu – maður hefur svo sem ekki reynslu af þessu, en þetta er svona eitt­hvert æðru­leysi því maður hefur ekki allar aðstæður á sínu valdi.“

Nauð­syn­legt sé að taka eitt skref í einu og reyna að hafa það eins skyn­sam­legt og maður getur, eins og hún orðar það.

„Það er ofsa­lega stórt að vera með alla þessa þætti í sam­fé­lag­inu í fang­inu. En sem betur fer hefur okkur lán­ast að vera mjög sam­stíga, sam­fé­lagið allt.“

Svandís segir þjóð­ina ofboðs­lega heppna með mönnun „í þessum lyk­ilfronti“ og á þar við sótt­varna­lækni, land­lækni og yfir­lög­reglu­þjón almanna­varna. „Þetta er allt alveg magnað fólk, sterkar mann­eskjur fyrir utan það að vera flottir emb­ætt­is­menn og sér­fræð­ingar á sínu sviði og búa líka yfir að vera traust­vekj­andi í sam­skiptum við sam­fé­lagið sem skiptir mjög miklu máli.“

Aðspurð hvort það sé eitt­hvað sem hún hefði viljað gera öðru­vísi segir hún aðeins of snemmt að meta það. „En í grunn­inn þá vitum við það að hlut­falls­lega, hvort sem við erum að tala um hversu margir urðu fyrir sjúk­dómnum, eða hversu margir lét­ust eða hversu vel okkur gengur með bólu­setn­ingar eða hvað það er, sam­an­burð­ur­inn er okkur í vil eig­in­lega í öllum þessum tölum. Þannig að það sem verður spurt um að lokum er árang­ur­inn.“

„Ég held að það sem er mik­il­væg­ast alltaf þegar að sorgin bankar upp á og þegar maður lendir í áföllum sé að muna að maður er ekki einn.“ Mynd/ Róbert Reyn­is­son.

Mikið gengið á í einkalífinu

Starf heil­brigð­is­ráð­herra hefur verið einkar krefj­andi síðan heims­far­ald­ur­inn skall á og er óhætt að segja að einka­líf Svan­dísar hafi verið það sömu­leiðis. Það var fyrir um ári síðan sem dóttir Svan­dísar, tón­list­ar­konan Una Torfa­dóttir greind­ist með æxli í heila og skömmu síðar veikt­ist faðir hennar fyrrum ráð­herr­ann og þing­mað­ur­inn, Svavar Gestsson.

„Þetta var nátt­úr­lega í miðjum far­aldri, Una veik­ist, það er eig­in­lega akkúrat ár síðan. Hún veik­ist 18. júní og fór í heila­skurð­að­gerð og allt í kjöl­farið,“ segir Svandís og heldur áfram. „Svo veik­ist pabbi 1. októ­ber og hann var sko bara spræk­asti maður í heim­inum. Nokkrum dögum síðar fer Una í seg­u­l­ómun og fékk góðar nið­ur­stöður úr henni, en pabbi bara veik­ist meira og meira og það var svo í jan­úar sem hann dó. Ég sakna hans ógur­lega.“

Svandís segir þetta vissu­lega hafa verið ansi stóra við­bót við störf ráð­herra. „Stundum held­urðu að þú kom­ist ekki í gegnum dag­inn, en svo bara gerir maður það. Það er alveg ótrú­legt, með ein­hverri extra orku sem er ein­hvers staðar. Ég á líka mikið af góðu fólki, sem betur fer.“ 

Hvernig tekst maður á við svona erfitt verk­efni út á við þegar sorgin bankar upp á og erf­ið­leikar eru í einka­líf­inu?

„Ég held að það sem er mik­il­væg­ast þegar sorgin bankar upp á og þegar maður lendir í áföllum sé að muna að maður er ekki einn. Manni líður eins og maður sé það, en það er ekki þannig. Það eru svo ótal margir sem eru að glíma við erf­iða hluti.“

Þá segir hún lang­flesta lenda í þessum kafla ein­hvern tím­ann í líf­inu að þurfa að glíma við sorg, áföll eða missi og það sé mik­il­vægt að muna að það sé sammann­legt verk­efni að takast á við þján­ingu.

„Svo skiptir máli að muna að sofa og að anda. Því að stundum gleymir maður því, bara að anda djúpt.“ Svandís segir mik­il­vægt að njóta lífs­ins, hafa gaman og gleðj­ast yfir því sem er skemmti­legt og muna eftir öllum þeim dýr­mætu tengslum sem maður á við fólk, „af því að það er þangað sem maður sækir ork­una sína, í tengsl og sam­skipti og til­gang. Þannig að þetta er bara svona ævi­verk­efni,“ segir hún og heldur áfram.

„En ég neita því ekki að það er á köflum ansi stór pakki að vera svo líka heil­brigð­is­ráð­herra í gegnum heims­far­aldur.“

Þannig að ákveðið æðru­leysi er kannski mik­il­vægt?

„Já ætli þetta heiti ekki það, æðru­leysi, það er mjög mik­il­vægt að tengja sig við æðru­leysi og þakk­læti held ég líka. Af því að það er margt sem maður getur stoppað við og verið þakk­látur fyrir.“

Hún segir dóttur sína vera nokkuð bratta akkúrat núna. „Hún fór nátt­úr­lega í gegnum mjög þunga með­ferð, skurð­að­gerð, geisla­með­ferð og lyfja­með­ferð. En núna lítur allt vel út og hún nýtur þess að vera ung og glöð. Það er æði. Og það er sumar,“ segir ráð­herra með bros á vör og heldur í frí frá þingi og hyggst ferð­ast um landið og kúpla sig aðeins út.

„Það verður dásam­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina