Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Páll Óskar stórskuldugur eftir Covid: „Fór að efast að maður ætti erindi í þennan bransa“

Páll Óskar stórskuldugur eftir Covid: „Fór að efast að maður ætti erindi í þennan bransa“

„Allt í einu var manni kippt úr úr eigin lífi svo auð­vitað fór maður að hugsa sinn gang. Hvort maður væri á réttum stað í líf­inu og fór jafn­vel að efast um hvort maður ætti erindi í þennan bransa. En svo þegar ég var búinn að flokka allar ljós­myndir í albúm og raða öllum salt- og pip­ar­korn­unum í rétta stauka þá vissi maður að þetta er það sem mér er ætlað að gera og hefur alltaf verið ætlað enda á ég 30 ára starfs­af­mæli í ár,“ segir Páll Óskar Hjálmtýs­son, eða bara Palli okkar eins og lands­menn þekkja hann.

Eins dauði er annars brauð

Palli hefur skemmt lands­mönnum sleitu­laust í þrjá ára­tugi frá því hann sló í gegn í söng­leiknum Rocky Horror og við­ur­kennir að inni­veran og aðgerð­ar­leysið í Covid hafi tekið á, þótt hann hafi aldrei lagt árar í bát. „Það var gott að geta dúll­ast heima en maður var auð­vitað tekju­laus. Tekju­falls­styrk­ur­inn og við­spyrnu­styrk­ur­inn björg­uðu mér fyrir horn svo ég náði alltaf að greiða mínar skuldir og eiga mjólk­ur­fernu í ísskápum. Svo héldu jarð­ar­far­irnar manni dálítið á floti því það nú þannig að eins manns dauði er ann­ars brauð.

En þetta minnti mann svo­lítið á gamla daga þegar maður var ungur að byrja og reyna að ná endum saman. Það er gott að finna aftur hvað það er sem raun­veru­lega skiptir máli”.

Palli sló fyrst ærlega í gegn í söng­leiknum Rocky Horror fyrir sléttum 30 árum.

Palli seg­ist ákveð­inn í því að skemmta lands­mönnum út árið. „Ég ætla ekki á neitt spreð­erí, engin fata­kaup né útlanda­ferðir. Ég ætla bara að njóta þess að koma aftur fram og borga mínar skuldir, ég er alveg stór­skuld­ugur eftir Covid. Work now, play later er mitt mottó núna. Svo er aldrei að vita nema maður leyfi sér kannski smá sól­ar­ferð í jan­úar sem er góður mán­uður í það”.

Aldrei fundið jafn fölskvalausa gleði

Hann getur ekki falið spenn­ing sinn yfir að geta farið að skemmta aftur eftir að Covid bönnum var aflétt enda var honum biðin erfið. „Það er bara ein­hver sprengja í gangi. Um leið og Svandís til­kynnti afnám haft­anna fór bara allt á fullt og við erum í kapp­hlaupi við tím­ann að skipu­leggja þetta allt saman. Það þurfti að hafa hraðar hendur við skipu­lagn­ingu því það er svo margt fram undan og kapp­hlaup við tím­ann að skipu­leggja allt”.

Palli spil­aði á fyrsta stóra ball­inu sínu á Stöðv­ar­firði í eitt og hálft ár fyrir sléttri viku og svo á Polla­mót­inu á Akureyri og er þessi helgi þétt­bókuð og er sömu sögu að segja alla laug­ar­daga út árið. „Ég verð að segja að ég hef aldrei á ævi minni kynnst og fundið fyrir jafn fölskvalausri gleði og núna. Það er bara sprengja í gangi. Þetta kom allt til baka og ríf­lega það.

Palla­böllin trylla. Mynd úr einka­safni.

Þá fékk ég aftur þessa full­vissu um að ég væri réttur maður á réttum stað að gera það sem ég geri best. Ég elska að eiga þetta sam­tal við áhorf­endur, gefa þeim orku og fá hana til baka. Réttu mér míkró­fón, ég er fæddur í þetta.” Palli hlær, getur ekki falið spenn­ingin að vera kom­inn aftur af stað.

Gleði og partýhungur

Komandi Gleði­ganga er að sjálf­sögðu ofar­lega í huga Palla og er hann á kafi við skipu­lagn­ingu Hinsegin daga. „Þetta verður sko alvöru partí, gleði­ganga með öllu”. Auk þess er hann bók­aður á bæj­ar­há­tíðir þvers og kruss um landið fram á haust. „Ég verð á Kóti­lett­unni í Selfossi í kvöld og í Hjálma­kletti í Borg­ar­nesi á morgun þar sem bæði er Hinsegin hátíð Vest­ur­lands og hesta­manna­móti. Það spái miklu stuði þar“

Palli segir að nú þurfi að bretta upp ermar því bæði þurfi að vinna upp tapað fjör frá í fyrra og halda uppi fjör­inu í ár. „Gleði, enda­laus gleði og partý­hungur. Það er það sem lífið gengur út á”.

En hvernig gengur Palla að vera alltaf svona hress? Verður hann aldrei þreyttur á að bruna lands­horn­anna milli til að skemmta? Hann er sko ekki á því. „Nei, veistu að ég hef alltaf lifað heil­brigðu lífi og farið vel með mig. Ef ég fæ minn 8 tíma svefn get ég troðið upp dag­lega. Og elska það”.

Hef ekkert að fela

Þegar Palli tekur sér frí horfir hann á gamlar bíó­myndir en hann á gríð­ar­legt safn klass­ískra kvik­mynda á filmu sem hann hefur safnað að sér í gegnum árin. „Ég held að ég eigi senni­lega alla klassík kvik­mynda­sög­unnar. Að upp­lifa filmu­bíó er eins og að hlusta á 78 snún­inga plötu og þannig næ ég minni hvíld og minni jarð­teng­ingu”.

Palli lenti í því í vor að óprútt­inn aðili, sem villti á sér heim­ildir, dreifði af honum nekt­ar­myndum sem Palli hafði sent honum í trún­aði í gegnum stefnu­móta­for­rit. Palli gefur lítið fyrir þessa upp­á­komu og seg­ist alveg standa á sama. „Skömmin er aldrei hjá þeim sem treystir, skömmin er hjá þeim brýtur traustið. Ég skil­aði skömminni fyrir 30 árum og hef ekk­ert að fela.”

Palli er ein­hleypur en er ein­hver róm­an­tík í loft­inu þetta gleði­sumar? Pallir hlær. „Nei, en endi­lega hringdu í mig ef þú veist um ein­hvern sem er skot­inn í mér. Nei, nei ann­ars, ég er bara að grín­ast. Ástin kemur þegar henni er ætlað að koma,” segir Palli sem þarf að rjúka. Hann þarf í sánd­tjekk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu