Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Farðu bara í sánu“ Þrír sænsku­mæl­andi Finnar eru taldir sig­ur­strang­leg­astir í Eurovision - fyrir hönd Sví­þjóðar. Mynd: Wikipedia / Adam Fröjdfeldt

Þetta eru líklegustu sigurvegarar Eurovision 2025

Ísrael er á lista yfir efstu kepp­endur í veð­bönkum.

Eurovision er stærsta hæfi­leika­keppni heims, með fram­lög frá 37 þjóðum, en eitt land virð­ist reglu­lega ráða ríkjum í umræð­unni og á verð­launa­pall­inum: Svíþjóð.

Mánuður er þar til úrslitin fara fram í Basel í Sviss 17. maí og allt getur gerst.

Svíþjóð, sem hefur þegar unnið þessa glæsi­legu glam­úr­há­tíð sjö sinnum – jafn oft og Írland – er enn og aftur talin sig­ur­strang­leg­ust.

Veð­bankar spá Svíþjóð 29 pró­senta sig­ur­líkum, þar á eftir kemur Aust­ur­ríki með 19 pró­sent, Frakk­land með 10 pró­sent og Ísrael með sex pró­sent.

Ísland er í þriðja neðsta sæti veð­banka sem stendur með fram­lag VÆB, Róa. Því virð­ist þungur róður framundan.

Hér er yfir­lit yfir atriðin sem tróna á toppnum:

Svíþjóð: Finnskt sánulag

Í ár er atriðið sem keppir fyrir Svíþjóð í Eurovision í raun grín­þrí­eyki þung­bú­inna Finna, sem er frá­brugðið þeim fág­uðu og glitr­andi sýn­ingum sem Svíþjóð færir Evrópu vana­lega.

Þrír karl­menn úr sænsku­mæl­andi sam­fé­lagi Finn­lands sem skipa KAJ – Kevin, Axel og Jakob – stefna að því að vinna átt­unda sig­ur­inn fyrir Svíþjóð, með sér­stæðum lof­söng til heið­urs sánu­gleð­innar.

„Bara bada bastu“ (Farðu bara í sánu), með fyndnu og gríp­andi við­lagi, er sungið á finnsku­bland­aðri sænsku við und­ir­leik harm­on­ikkunnar.

Á svið­inu klæð­ast þre­menn­ing­arnir jakka­fötum sem líkja eftir sánu, umkringdir dönsurum í hand­klæðum og ull­ar­húfum, vopn­aðir birki­hrísluknippum sem saunaunn­endur nota til að örva blóð­flæðið.

„Svíþjóð hefur vanið okkur á mjög vel fram­leidd, næstum glitr­andi atriði,“ sagði Fabien Randanne, blaða­maður hjá 20 Minutes og Eurovision sér­fræð­ingur, við AFP.

„Í dag virð­ist almenn­ingur vera opn­ari fyrir hrjúfum brúnum, frum­leika og sér­visku.“

Eft­ir­minni­leg­asti Eurovision-sigur Sví­þjóðar var lík­lega þegar popp­hljóm­sveitin ABBA skaust upp á stjörnu­him­in­inn með sig­ur­lag­inu Waterloo árið 1974.

Síðast vann Svíþjóð árið 2023, með hefð­bundn­ara popp­lagi, Tattoo, með Loreen, sem einnig vann keppn­ina árið 2012.

Austurríki: Með vaxandi raddstyrk

Wasted Love, sungið af aust­ur­rísk-fil­ip­p­eyska kontra­ten­órnum Johannes Pietsch, þekktum sem JJ, blandar saman poppi og lýrískum pörtum í vax­andi styrk sem renna út í teknóhljóma.

Söngv­ar­inn, sem er 23 ára gam­all, ólst upp í Dúbaí áður en hann upp­götv­aði klass­íska tón­list í Vín­ar­borg, þar sem hann er nú að slípa hæfi­leika sína á milli söngvakeppna og smá­hlut­verka í óper­unni.

Í Eurovision-lag­inu sínu, sem fjallar um reynslu af óend­ur­gold­inni ást, sveifl­ast hann frá hátóna sópran yfir í blöndu af lýrík og ball­öðum, áður en hann endar með teknóá­hrifum.

Falsettó­röddin minnir á Þjóð­verj­ann Klaus Nomi og vísar til klass­íska tón­list­ar­arfs Aust­ur­ríkis.

Óperu­á­hrifin og blöndun tón­list­ar­stefna í lag­inu hans hafa einnig verið borin saman við The Code – sig­ur­lag sviss­neska kynsegin söngv­ar­ans Nemo í Eurovision 2024 í Malmö, Svíþjóð, sem ávann Sviss rétt­inn til að halda keppn­ina í ár.

JJ, sem sækir einnig inn­blástur í stíl Mariah Carey og Önnu Netrebko – upp­á­halds­lista­manna sinna – von­ast til að tryggja Aust­ur­ríki þriðja Eurovision sig­ur­inn, en landið vann síð­ast með atriði skeggj­aða draglista­manns­ins Conchitu Wurst árið 2014.

Frakkland: Loksins sigur?

Söng- og leik­konan 28 ára gamla, Louane, sem er vel þekkt í Frakk­landi, hefur kveikt von um að landið hennar gæti loks­ins unnið Eurovision í fyrsta sinn í næstum hálfa öld.

Louane, sem heitir réttu nafni Anne Peichert, sló í gegn í Frakk­landi árið 2013 þegar hún tók þátt í sjón­varps­þætt­inum The Voice.

Ballaða hennar, „Maman“, til­einkuð móður hennar sem lést úr krabba­meini árið 2014, inni­heldur meðal ann­ars text­ann: „Að lokum, sérðu, ég byggði líf mitt ... Ég er orðin full­orðin. Frá þér hef ég haldið öllu sem gerir mig að þeirri sem ég er.“

Frakk­land hefur þegar fimm Eurovision sigra í fartesk­inu, en sá síð­asti var fyrir tæpum fimm ára­tugum, árið 1977.

Marie Myriam, sem vann það ár með lag­inu „L'oiseau et l'enfant“, eða „Fuglinn og barnið“, sagði að hún von­að­ist til að val árs­ins gæti loks­ins bundið enda á tap­hrin­una.

„Ég vil trúa því að Frakk­land muni loks­ins fagna sigri í gegnum rödd og frammi­stöðu Louane, undir augna­ráði feg­urstu stjörn­unnar, hennar stjörnu,“ sagði hún við AFP.

Ísrael: Út úr myrkr­inu

Yuval Raphael, sem lifði af ban­væna árás Hamas þann 7. októ­ber 2023, verður full­trúi Ísraels í Eurovision keppn­inni í ár.

Þegar víga­menn Hamas drápu yfir 370 manns á Nova tón­list­ar­há­tíð­inni, lifði 24 ára Raphael af með því að fela sig undir hrúgu af líkum inni í loft­varn­ar­byrgi við veg­inn.

Raphael byrj­aði ekki að syngja að atvinnu fyrr en eftir árás­ina, sem var hans leið til að takast á við áfallið.

Hún var valin til að vera full­trúi Ísraels eftir að hafa unnið raun­veru­leika­þátta­keppn­ina „Hakochav Haba“ (Rísandi stjarna) með kraft­mik­illi ball­öðu­út­gáfu af „Dancing Queen“ eftir ABBA.

Í Eurovision mun hún flytja kraft­ball­öð­una „New Day Will Rise“, með texta á ensku, hebr­esku og frönsku. Lagið fjallar um að lifa af eftir harm­leik. Ekkert er þó þar sungið um yfir­stand­andi harm­leik Palest­ínu­manna á Gaza og Vest­ur­bakk­anum.

Í fyrra, þegar reiði ríkti vegna stríðs Ísraels á Gaza, stóð kepp­andi Ísraels, Eden Golan, frammi fyrir hót­unum og fjölda­mót­mælum á Eurovision keppn­inni sem haldin var í Svíþjóð.

Einnig hafa verið uppi kröfur í ár um að Ísrael verði bannað að taka þátt í Eurovision.

En Evrópska útvarps­sam­bands­fé­lagið, sem hefur umsjón með keppn­inni og sem rík­is­út­varp Ísraels er aðili að, hefur tekið fyrir að úti­loka Ísrael úr keppn­inni.

Ísrael, sem hefur tekið þátt í keppn­inni síðan 1973, hefur unnið fjórum sinnum, síð­ast með flutn­ingi Nettu Barzilai á „Toy“ árið 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu