Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Játa að vera drullusokkar

Frænd­urnir Bergur og Sebast­ian eru á hraðri upp­leið

Játa að vera drullusokkar
Bergur og Sebast­ian eru Drullu­sokk­arnir Segja nafnið eiga rétt á sér Mynd: Víkingur

Hljóm­sveitin Drullu­sokk­arnir hefur verið á hraði upp­leið síðan þeir gáfu út lagið Pabbapen­ingar árið 2022 en frænd­urnir Bergur Davíð Eiríks­son og Sebast­ian Óli Sig­geirs­son skipa sveit­ina. Rapp­ar­arnir gáfu út plötu í ágúst og ræddi Mannlíf við Berg Davíð í til­efni þess.

„Hún er mjög góð,“ sagði Bergur þegar hann var spurður út hvernig til­finn­ing það væri að platan væri komin út en hann semur tón­list­ina fyrir sveit­ina og hljóð­blandar. „Það var svo mikil vinna sem fór í þetta þannig að þetta er ákveð­inn léttir.“

Frænd­urnir settu hljóm­sveit­ina tíma­bundið í hlé meðan Bergur hélt til Japans í nám. Hann segir að Japan hafi ekki veitt honum mik­inn inn­blástur, tón­list­ar­lega séð.

„Ég er ekk­ert voða­lega hrif­inn af asískri tón­list, tón­list­ar­menn­ingin þar er svo mikið keyrð áfram af fyr­ir­tækjum. Ég kynnt­ist ein­hverju K-pop bandi þarna úti og það fer allt í gegnum fyr­ir­tæki. Þeir eru í raun ekk­ert að semja þetta sjálfir,“ sagði Bergur.

Bergur mundar sprey­brús­ann

Hljóm­sveitin hefur verið dug­leg að koma fram síð­ustu mán­uði og spil­uðu á fimm tón­leikum síð­ustu helgi, meðal ann­ars á hátíð­inni Í tún­inu heima.

„Stærsta dæmið var eig­in­lega ball sem Bólið var að halda,“ en það er félags­mið­stöð í Mos­fellsbæ „Ég myndi segja að þetta hafi verið alveg 150 til 200 manns. Það var alveg pakkað og lang­flestir kunnu Pabbapen­ingar og Kvenna­gull,“ sagði Bergur en hann býr sjálfur í Mos­fellsbæ en Sebast­ian í Garði.

„Sebast­ian er alveg voða­lega lengi að keyra til mín. Kemur yfir­leitt um helgar og er kall­aður fóst­ur­son­ur­inn af for­eldrum mínum.“

Nafn sveit­ar­innar kemur einmitt frá fjöl­skyldu þeirra og að eigin sögn er það alveg rétt­læt­an­legt.

„Við erum algjörir drullu­sokkar,“ sagði Bergur hlæj­andi. „Við erum alltaf að lenda í vand­ræðum og eitt­hvað að prakk­ar­ast. Það er aðeins minna núna, maður kemst ekki upp með jafn mikið. Við vorum mikið að gera dyraöt og símaöt. Það er fullt af fólki og fyr­ir­tækjum sem kann­ast við radd­irnar okkar. Okkur hefur verið hótað lög­reglu nokkuð oft.“

Þeir eru algjörir prakk­arar að eigin sögn

Bergur segir þá frændur nokkuð stór­huga þegar kemur að næstu mán­uðum.

„Við erum að pæla í að taka svona góð­gerð­ar­mánuð, sem við munum aug­lýsa á TikTok, og fá fólk til að velja góð­gerð­ar­sam­tök. Svo ætlum við að reyna „gigga“ eins mikið og við getum og allur pen­ing­ur­inn fer í góð­gerð­ar­sam­tökin sem fólkið valdi,“ og segir Bergur að almenn­ingur sé að taka nokkuð vel í þá og plöt­una.

Sebast­ian þarf að keyra alla leið úr Garði á tón­leika
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu