Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Glímir við eina mestu ráðgátu norrænnar sögu í nýjustu bók sinni

Valur Gunn­ars­son snýr sjónum sínum að dul­ar­fullu hvarfi nor­rænna manna frá Græn­landi

Glímir við eina mestu ráðgátu norrænnar sögu í nýjustu bók sinni
Valur Gunn­ars­son Valur ræðst ekki á garð­inn þar sem hann er lægstur Mynd: Víkingur

Valur Gunn­ars­son, rit­höf­undur og sagn­fræð­ingur, hefur um ára­bil vakið athygli fyrir lif­andi frá­sagnir af sögu og sam­fé­lagi, en í nýj­ustu bók sinni snýr hann sjónum að einni mögn­uð­ustu ráð­gátu nor­rænnar sögu: hvarfi nor­rænna manna á Græn­landi. Hug­myndin kvikn­aði þegar ferð til Græn­lands tók óvænta stefnu og leiddi hann um slóðir Eiríks rauða, að fornri kirkju í Hvalsey og inn í heim sem speglar bæði Ísland og Evrópu, en er um leið allt ann­ars eðlis. Í bók­inni sam­einar Valur ferða­sögu, sagn­fræði og per­sónu­legt sjón­ar­horn þar sem hann leit­ast við að ráða í örlög sam­fé­lags sem tal­aði íslensku, lifði þar í 500 ár, og hvarf svo spor­laust á 15. öld. Þar flétt­ast saman lofts­lags­breyt­ingar, nýlendu­stefna, menn­ing­ar­mót, þjóð­fé­lags­um­ræða, og jafn­vel eld­gos.

Mannlíf ræddi við Val um nýju bók­ina.

Hvernig datt þér í hug að skrifa bók um Grænland og sögu nor­rænna manna þar í landi?

„Eins og allt var þetta blanda af til­vilj­unum og óhjá­kvæmi­leika. Mér var boðið í heim­sókn af íslenskum hrein­dýra­bónda á Græn­landi en sökum harm­leiks sem sagt er frá í bók­inni fest­ist ég í bænum Narsaq á leið­inni. Eftir dvöl­ina á hrein­dýra­bú­inu ferð­að­ist ég svo um Suður-Grænland þar sem flestir nor­rænir menn bjuggu áður, meðal ann­ars Bröttu­hlíð Eiríks rauða. Í Hvalsey sá ég kirkju byggða um 1300 sem er mun glæsi­legri en nokkuð sem við höfum frá mið­öldum. Ég varð mjög for­vit­inn um þetta sam­fé­lag sem taldi um 3000 manns þegar mest var og tal­aði íslensku en hvarf svo skyndi­lega á 15. öld. Ég er svo að hluta til upp­al­inn í Noregi og hef lært í Finn­landi, Danmörku og jafn­vel í Fróð­leiks­setr­inu á Færeyjum og fannst nauð­syn­legt að gera til­raun til að leysa þessa mestu gátu nor­rænnar sögu.“

Hvernig mynd­irðu lýsa bók­inni?

„Þetta er sagn­fræði­leg ráð­gáta og ferða­saga í bland, að hætti húss­ins. Siglt er í gegnum ísjaka­belti og kíkt á bar­inn og spjallað við heima­menn og minjar skoð­aðar. Rakin er saga Græn­lands frá því Danir sneru aftur á 18. öld og fram á dag­inn í dag, nútíma­væð­ingu og nýlendu­stefnu, lykkju­mál og her­mál og Trump. En fyrst og síð­ast er verið að fjalla um lífs­bar­áttu nor­rænna manna á Græn­landi í 500 ár og hvað af þeim varð, fólkið sem hvarf.“

Hvað stóð upp úr ferða­lagi þínu um Grænland að þínu mati?

„Grænland er svo nálægt okkur en samt svo fjar­rænt. Sumpart er þetta annar heimur með allt annarri menn­ingu, en stundum eins og speg­il­mynd af Íslandi. Ísland er eitt yngsta land í heimi með virkum eld­fjöllum, Grænland er eitt elsta land í heimi með bakt­er­íum sem eru mun eldri en við og því ekki óhætt að drekka lind­ar­vatnið. Að ein­hverju leyti er Grænland jafn ósnert og Ísland var fyrir nokkrum ára­tugum, það eru engir útsýnis­pallar og fáar minja­gripa­búðir og ekki einu sinni slóði að kirkj­unni í Hvalsey. Hann er víst kom­inn núna og hlut­irnir að breyt­ast. Græn­lend­ingar vita mikið um okkur og margir hafa komið hingað og merki­legt nokk sjá þeir Ísland sem fyr­ir­mynd í sjálf­stæð­is­heimti sínu. Við vitum hins vegar sára­lítið um þá og hér er reynt að bæta úr að ein­hverju leyti.“

Nú fjallar bókin að miklu leyti um dul­ar­fullt hvarf nor­rænna manna sem bjuggu í Græn­landi, ertu búinn að leysa ráð­gát­una um hvarfið?

„Ég tek fyrir þær kenn­ingar sem settar hafa verið fram í ald­anna rás og skoða hvað er hæft. Framan af voru menn mest upp­teknir af átaka­kenn­ingum, hvort sem Inúítum eða jafn­vel enskum sjó­ræn­ingjum var kennt um árásir. Í seinni tíð hafa lofts­lags­málin skipt meira máli, enda vitum við að það varð kald­ara. Einnig hafa sumir lagt til efna­hags­hrun eða far­sótt, eitt­hvað sem við sjálf þekkjum. Kenn­ing­arnar segja okkur sitt­hvað um hvar við sjálf erum stödd, enda sjáum við sög­una út frá eigin sam­tíma. En já, ég legg til eina til­gátu. Eldgos kemur við sögu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu