Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Amma er geitin í eldhúsinu“

Stella starf­aði á Bessa­stöðum en býr nú til list með barna­barn­inu

„Amma er geitin í eldhúsinu“
Stella og Haukur í eld­hús­inu Haukur segir ilm­inn úr því vera lokk­andi. Mynd: Víkingur

Tón­list­ar­mað­ur­inn Haukur Páll Árnason gaf nýverið út sína fyrstu plötu en hann hefur starfað að tjalda­baki í íslensku rappi í um það bil ára­tug þrátt fyrir ungan aldur.

Platan hans, sem nefn­ist Kyrrðin, kom út 21. nóv­em­ber og eru margir góðir gestir á henni og er hægt nefna t.d. Trausti~, Saint Pete og B-Ruff.

Haukur starfar einnig sem hljóð­maður í kvik­mynda­brans­anum og er mjög metn­að­ar­gjarn þegar kemur að tón­list­ar­mynd­böndum eins og sjá má í tón­list­ar­mynd­band­inu við lagið Kjaftæði.

Vænt­an­legt er nýtt mynd­band frá Hauki þar sem hann fékk ömmu sína til að leika í mynd­band­inu við lagið Kex & Kakómalt en hún heitir Sig­ur­lína Stella Árna­dóttir, kölluð Stella, og er 81 árs gömul.

Mannlíf ræddi við Hauk um plöt­una, mynd­böndin og Stellu.

„Kex & Kakómalt er mest­megnis samið um til­finn­ing­una sem maður fékk sem ung­lingur þegar maður þurfti virki­lega á smá slökun að halda, hvort sem það var skól­inn, stelpur eða vin­irnir þá fékk hug­ur­inn enga ró,“ segir Haukur þegar hann er spurður út í hvernig það kom til að hann fékk ömmu sína í mynd­bandið.

„Þá var best að kíkja til ömmu og afa, fá sér allt það góða sem amma lagði á borðið en þar var einmitt alltaf til kex og kakómalt. Svo var spilað smá Ólsen ólsen og talað um lífið og til­ver­una. Það kom auð­vitað ekk­ert annað til greina en að fá ömmu í mynd­bandið til að skapa sömu stemn­ingu og lagið gefur mér, mér líður bara eins og ég sé kom­inn aftur í tím­ann þegar ég hlusta á það.“

Stella er 81 árs gömulHefur starfað í eld­húsum allt sitt líf.

En hvernig hefur sam­band þitt verið við ömmu þína í gegnum árin?

„Við amma höfum alltaf verið mjög náin, og það á einnig um hina ömmu mína og afa mína,“ segir Haukur.

„Amma og afi bjuggu einmitt í næsta húsi við grunn­skól­ann minn svo ef það var ekki spenn­andi matur í skól­anum tölti ég yfir til þeirra og fékk grill­aða sam­loku og, jú oft­ast var sötrað á kakómalti. Vinum mínum fannst sam­lok­urnar svo góðar að það mynd­að­ist stundum smá biðlisti um hver fengi að koma með mér til ömmu. Amma er geitin í eld­hús­inu enda hefur hún meira og minna starfað í eld­húsum allt sitt líf, svo ég sagði henni bara að það væri það sem hún myndi gera í mynd­band­inu og þá var hún til. Amma starf­aði meðal ann­ars í eld­hús­inu á Bessa­stöðum fyrir Ásgeir Ásgeirs­son, hafra­graut­ur­inn á morgn­ana var í upp­á­haldi og ég get tekið undir það með fyrrum for­seta Íslands.“ 

Hvað hefur þú lært af ömmu þinni yfir ævina?

„Ef ég ætti að taka ein­hvern lær­dóm frá ömmu er það að maður þarf að vinna hart fyrir því sem maður brennur fyrir, okkar kyn­slóð mun aldrei skilja harkið sem fólk á hennar aldri hefur þurft að taka á sig til að standa á eigin fótum. Hún hugsar svo vel um fólkið í kringum sig og það er eitt­hvað sem maður getur dáðst að.“ 

Haukur og Stella eru náinHaukur eyðir mörgum stundum með ömmu sinni.

Hvernig er fólk að taka í plöt­una?

„Platan hefur fengið virki­lega góðar við­tökur og ég er bara sjúk­lega spenntur að gefa frá mér meiri tón­list og vinna með alls konar tón­list­ar­fólki, ég er pródúser í grunn­inn svo ég er alltaf að gera eitt­hvað nýtt og spenn­andi sama hvað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu