Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einar Már Guð­munds­son Er með nýja bók í ár, en hlaut bók­mennta­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs árið 1995 fyrir Engla alheims­ins. Mynd: Víkingur

Fólk skammaðist sín

Einar Már Guð­munds­son rit­höf­undur lifir sig inn í heima sögu­per­són­anna sem hann galdrar fram og fyrir honum er rit­listin þátt­taka í sam­fé­lag­inu. Hann var verð­laun­aður fyrir bók sína um bróður sinn, sem lifði í skammar­krók sam­fé­lags­ins. Í við­tali við Mannlíf lítur hann yfir far­inn veg á rit­vell­inum.

Einar Már Guð­munds­son er búinn að skrifa nýja bók. Allt frá hatti oní skó er heiti hennar og vísar hún þar með í aug­lýs­ingu herra­fata­versl­un­ar­innar Herra­deild P&Ó við Aust­ur­stræti á sínum tíma.

Bókin segir frá Haraldi sem ætlar að verða skáld og með það að mark­miði flytur hann til Kaup­manna­hafnar með kærust­unni sum­arið 1979. Þar lendir hann strax í suðu­potti menn­ingar og sköp­unar og kynn­ist margs konar fólki, hrein­gern­inga­konum, lista­mönnum og skáldum, gömlum vinum sem skjóta upp koll­inum, og nýjum skáld­skap, nýjum við­horfum og tón­list. Þetta er fjörug bók og per­són­urnar eru skraut­legar og á þessum óró­legu tímum birt­ist Haraldur með sinn nýstár­lega skáld­skap og hefur sinn feril sem skáld.

Í smíðum allan ferilinn

„Ég nota þroska­sögu skálds­ins til að segja ýmsar aðrar sögur,“ segir Einar Már. „Fyrir mér var þetta meira spurn­ing um að finna sig í sköp­un­inni. Ég man ekki eftir að hafa tekið ákvörð­un­ina: „Ég ætla að verða skáld.“ Ég hugsa að ég hafi bara verið það frá byrjun. En ég fékk mark­vissan áhuga á að skrifa upp úr tví­tugu. Um þetta má líka lesa í sög­unni Passa­myndir sem kom út árið 2017. Hún og þessi nýja saga, Allt frá hatti oní skó, hafa verið í smíðum allan minn feril. Fyrir mér hefur rit­listin verið lífs­stíll, til­raun til að ráða sér sjálfur. Það þýðir ekki að þú vinnir minna, jafn­vel öfugt, að þú vinnir meira.“

Nýja sagan, Allt frá hatti oní skó, segir frá tíma Einars Más í Kaup­manna­höfn, í byrjun níunda ára­tug­ar­ins, frá 1979 til 1985, og hún lýsir líka sam­bandi land­anna, Íslands og Danmörku, þess­ari löngu sögu, þessu langa hjóna­bandi.

Mikið um að vera

Það er nóg að gera á aðvent­unni, ekki síst hjá rit­höf­undum sem fara víða til að lesa upp úr nýút­komnum bókum sínum. „Það er eins og þeir sögðu í gamla daga, þeir í Rolling Stones: „I've been around for a very long time“. Þeir voru að vísu að tala um Lúsífer en þetta hefur verið mín vinna í næstum því hálfa öld, að skrifa bækur, og þessi tími er alltaf dálítið sér­stakur þegar bækur eru að koma út. Það er alltaf eitt­hvað svipað en aldrei eins.

Ég hef staðið með bók­unum og gert það sem ég hef getað fyrir þær. Ég lít á þær eins og börnin mín eða þannig, ég geri ekki upp á milli þeirra. Ég þekki allar útgáfur af þessu; að bókum gangi vel eða að bókum gangi illa. En þegar upp er staðið gengur bókum kannski ekki vel eða illa. Þær bara standa fyrir sínu eða ekki,“ segir Einar Már.

„Nútíminn er yfir­borðs­kenndur.“

Líf bóka veltur ekki á sölu, segir hann. „Sölu­listar breyta engu þar um. Bækur festa sig í sessi óháð öllu ver­ald­ar­vafstri. Hins vegar er allt of mikil þannig hugsun í gangi. Menn eiga að ræða það sem stendur í bók­unum. En þetta er dálítið tím­anna tákn. Nútíminn er yfir­borðs­kenndur. Mjög svo. Eða kannski er það bara hrað­inn. Í minn­ing­unni er þetta oft mjög spenn­andi tími en þetta er orðið rólegra á seinni árum eða kemur mér minna á óvart. Það er að vísu mikið um að vera núna, í þess­ari ver­tíð. Svo eru líka komnar nýjar kyn­slóðir þó að ekk­ert sé nýtt undir sól­inni þegar bók­menntir eru ann­ars vegar. Þetta hefur oft verið skemmti­legur tími við að fara í fyr­ir­tæki og skóla og ein­hverjar jóla­há­tíðir og lesa upp og kynna og vera svona á svið­inu í við­tölum og fá að tala um bók­menntir. Fyrir mér er þetta bara hluti af því sem ég hef að miðla. Viðtöl geta verið leið til að koma hugs­unum á fram­færi. Það fylgir þessu ákveð­inn asi sem er mjög gef­andi. En maður slakar meira á með árunum. Þetta verður bara að hafa sinn gang.“

Engillinn og dauðinn

Einar Már ætl­aði að verða skáld og hann varð skáld - alveg eins og Haraldur. Og hann á sína sögu alveg eins og Haraldur. Sögu sem mót­aði skáldið sem hann varð.

Hann var barn sem ólst upp í Voga­hverfi og fjórtán ára gam­all, um það leyti sem hann gekk í full­orð­inna manna tölu, flutti fjöl­skyldan í Breið­holtið. „Við fluttum í Breið­holtið þegar allt var glæ­nýtt þar. For­eldrar mínir byggðu ein­býl­is­hús í Stekkj­unum í Neðra-Breið­holti. Þar var stutt í Elliða­ár­dal­inn og stutt í nátt­úr­una. Efra-Breið­holtið var ekki til. Ég fylgd­ist með Breið­holt­inu vaxa. Á meðan for­eldrar mínir voru að byggja log­aði eitt ljós í Breið­holt­inu.“

Það eru kaflar um Breið­holtið í nýju bók­inni.

„Voga­hverfið og Breið­holtið voru líkir en ólíkir heimar. Mið­bær­inn var líka minn heimur, og eftir að við fluttum heim frá Kaup­manna­höfn um miðjan níunda ára­tug­inn bjuggum við fimm ár í mið­bænum, við Lokastíg. Svo fluttum við í Graf­ar­vog­inn. Ég er svona úthverfa­maður, hef alist upp í þremur nýjum hverfum. Samt var mið­bær­inn mitt pláss þegar ég var strákur að selja blöð og fara í bíó og rann­saka bæinn upp á eigin spýtur og á ung­lings­ár­unum þegar ég var í Mennta­skól­anum við Tjörnina og tók þátt í alls konar starf­semi í mið­bænum, menn­ing­ar­starf­semi, upp­á­komum og póli­tík. Ég þekki gömlu Reykja­vík eða hef búið mér til mynd af henni. Ég hef lýst þessum gamla heimi, borg sem var full af forn­bóka­búðum og dul­hyggju­mönnum. Ég kem stundum í aðrar borgir sem minna mig á gömlu Reykja­vík sem í sjálfu sér er ekk­ert gömul, því að Reykja­vík er ung borg.“

Veikindi bróðurins

Þau voru nokkur systk­inin. Pálmi var fimm árum eldri. Og um hann er senni­lega stór­kost­leg­asta sagan sem Einar már hefur skrifað: Englar alheims­ins. Pálmi fór að breyt­ast í kringum tví­tugt. „Það er vana­lega þannig. Þó er erfitt að festa fingur á þetta. Englar alheims­ins lýsa þessu ágæt­lega, held ég. Þetta er auð­vitað hluti af minni reynslu þannig að ég get ekki beint ímyndað mér neitt annað,“ segir Einar Már sem var að verða ung­lingur þegar bróðir hans veik­ist.

„Dýptin í ham­ingj­unni er óham­ingja.“

„Ég elska fyrstu setn­ing­una í Önnu Karenínu eftir Leo Tolstoi: „Allar ham­ingju­samar fjöl­skyldur eru hver annarri líkar, en óham­ingju­söm fjöl­skylda er jafnan ógæfu­söm á sinn sér­staka hátt.“ Ég vil jafn­vel ganga lengra og segja að engin ein­tóm ham­ingja sé til. Hamingja án óham­ingju er bara inn­an­tómur glamúr og þar með tóm­leiki og ekki ham­ingja. Dýptin í ham­ingj­unni er óham­ingja. Þó að ég viti ekki um aðrar fjöl­skyldur þá tel ég að veik­indi Pálma bróður míns hafi fært fjöl­skyld­unni ýmis­legt. Við þurftum að ræða margt sem ann­ars hefði ekki verið rætt. Ógæfan er stundum gæfa, þó að ekki óski maður neinum að ganga í gegnum þetta og hefði eflaust valið að sleppa því. En svona ger­ist lífið og það hvað margir hafa getað tengt sig við margt sem stendur í bók­inni bendir til þess að maður sé með fing­ur­inn á ein­hverjum púlsi.“

Einar Már segir að Pálmi hafi verið manískur og hafi fengið rang­hug­myndir. „En þetta var auð­vitað allt í tíma­bilum og sveifl­að­ist mikið. Það voru margar grein­ingar í gangi, ein var geð­klofi, önnur mania drepressive. Þetta kall­ast senni­lega bipolar, geð­hvörf, í dag. Þetta heitir allt nýjum nöfnum. Mér fannst þessar skil­grein­ingar, þessar grein­ingar, oft segja mér mjög lítið. Sértæk hug­tök eru oft fjarri upp­lifun­inni. Það er jú ein ástæðan fyrir því að skrif­aðar eru skáld­sögur. Til að kom­ast inn í heim orð­anna, heim skil­grein­inga. Skil­grein­ingar segja oft ekki neitt og enda sem klisjur.“

Erfiðir tímar styrkja

Einar Már segir að það hafi skipst á skin og skúrir, góðir tímar og erf­iðir tímar.

Hann und­ir­strikar það sem hann er búinn að vera að segja: „Þótt það sé ofboðs­lega erfitt fyrir fjöl­skyldur að takast á við svona, og ég gerði mér ekki grein fyrir hvaða áhrif þetta hafði á mann, þá hef ég líka sagt að svona lagað styrkti fjöl­skyld­una. Fjöl­skyldan þurfti að standa saman og opna sig og tala um aðra hluti en aðrar fjöl­skyldur. Stundum við fag­menn, stundum bara við sjálf. Þannig að maður horfir svo­lítið á þetta þannig. Það styrkti meðal ann­ars önnur tengsl innan fjöl­skyld­unnar að þurfa að horfast í augu við svona erf­ið­leika vegna þess að það er ekki hægt að búast við því að fólk sigli lygnan sjó í gegnum allt lífið. Það var mik­ill lær­dómur í þessu fólg­inn. Þetta var á þeim tíma þegar það var ofboðs­lega erfitt að tala um svona hluti.“

Var það tabú?

„Þetta var svo­lítið tabú og fólk skamm­að­ist sín. Bæði skömm­uð­ust sín þeir sem voru veikir fyrir að vera veikir og þeir sem voru aðstand­endur hinna veiku skömmuðst sín fyrir að vera aðstand­endur þeirra. Og svo skömm­uð­ust menn sín fyrir að skamm­ast sín. Það voru alls konar hlutir sem voru erf­iðir hvað það varðar.

Ég var að mörgu leyti hepp­inn. Á þessum tíma var talað um að þjóð­fé­lagið væri svo brenglað og það var ákveðin róm­an­tík gagn­vart því að vera öðru­vísi, já gagn­vart geð­veika snill­ingnum. Þetta við­horf gegn­sýrði hippa­kyn­slóð­ina og ´68 kyn­slóð­ina. Horft var á geggjun, ef svo má segja, sem við­brögð gagn­vart sam­fé­lag­inu. Sama hversu rétt eða rangt það var þá hjálp­aði það. Ég var sjálfur að verða ung­lingur þegar þetta gerð­ist þannig að ég var til dæmis ekki að fela þetta fyrir vinum mínum sem komu mikið heim. Þetta var svo­lítið meira mál fyrir systk­ini mín sem voru yngri af því að vinir þeirra voru yngri en vinir mínir og óþroskaðri. Mörgum af vinum mínum lík­aði vel við Pálma bróður minn og hann gat verið mjög skemmti­legur og klár. Menn í þess­ari stöðu er oft erf­ið­astir við sitt fólk, sína nán­ustu.“

Manían sem kraftur í lífinu

Einar Már talar um brenglað þjóð­fé­lag og hann segir að það sé margt merki­legt með svona veik­indi. „Við höfum held ég þetta í okkur öll - svona maníu og dep­urð og alls konar til­finn­ingar sem eru sem betur fer í ein­hvers konar jafn­vægi hjá flestum. Fyrir suma er manía kannski kraft­ur­inn í líf­inu. Og ein­hvern veg­inn var þetta þannig þegar ég hugsa til baka. Þegar lækn­arnir sögðu við bróður minn heit­inn að hann væri ekki lengur veikur, en það er sagt að þegar fólk veik­ist um tví­tugt þá sé það oft búið þegar menn væru fer­tugir, þá hvarf ein­hver líf­sneisti. Ég get ekki skýrt það nánar. Það var eins og til lengdar fynd­ist honum ekk­ert gaman að vera normal. Þetta er rosa flókið. Stundum hætti hann að taka lyfin í ákveð­inn tíma og þá leið honum betur og honum leið vel á leið­inni upp í maníu. Það eru alls konar til­vist­ar­legar spurn­ingar í kringum svona mál. Ég hef skrifað um þetta í bók sem heitir Laun­synir orð­anna og fjallar um frá­sagn­ar­list­ina. Þar er talað um þá þver­sögn að þegar þeim veika líður vel og er hátt uppi þá líður þeim sem eru í kringum hann illa og svo öfugt, þegar hann, hinn veiki, er góður eins og sagt er þá líður þeim eru í kringum hann vel en honum líður illa. Það er voða erfitt að festa fingur á þetta,“ segir Einar Már.

„Einn dag­inn vildi Pálmi ekki lifa lengur og við þekkjum nið­ur­stöð­una af því. Hann tók sitt eigið líf, fyr­ir­fór sér. Það var áfall fyrir fjöl­skyld­una. Ég var þá 37 ára. Full­orð­inn maður. Þetta kom ekki að öllu leyti á óvart. Hann hafði talað um þetta og gert til­raunir sem manni fannst oft meira ákall á hjálp. Að skrifa Engla alheims­ins var ein­hvers konar sálu­messa. Ég skrif­aði fyrst minn­ing­ar­grein og við þau skrif opn­uð­ust heimar. Ég átti mikið efni um þessi mál­efni. Það rað­aði sér allt í einu upp og tónn­inn kom. Það eru til sögur sem tengj­ast Englum alheims­ins alveg aftur til 1988, í smá­sagna­safn­inu Leitin að dýra­garð­inum. Sagan Regn­bogar myrk­urs­ins og sagan Garð­yrkju­menn­irnir. Síðan er fullt af sögum sem hafa komið á eftir, sögur í smá­sagna­safn­inu Kannski er póst­ur­inn svangur og kom út árið 2001. Leitin að dýra­garð­inum kom út fimm árum á undan Englum alheims­ins. Þannig að þetta er mikil gerjun, efni­viður sem ein­hvern veg­inn hefur alltaf verið með mér.“

Fólkið í skammarkróknum

Einar Már hugsar sig aðeins um en segir svo: „Eftir á að hyggja vildi ég ekki bara skrifa bók um hann, ekki bein­línis um hann, en líka um hann og aðra í þess­ari stöðu. Ég var alltaf mjög upp­tek­inn af þess­ari stöðu manna eins og Pálma bróður í til­ver­unni - að standa svona fyrir utan sam­fé­lagið, vera í skammar­króknum. Þessu fylgdi ákveðin sýn á heim­inn, önnur sýn getum við sagt. Hún er oft fyndin, upp­reisn­ar­gjörn en sorg­leg um leið. Saga bróður míns væri ekki áhuga­verð nema af því að hún er saga svo margra ann­arra. En það má alveg lesa þetta sem mitt sorg­ar­ferli. Svona tók ég á þessu.“

Pálmi heit­inn hvílir í Foss­vogs­kirkju­garði, í leiði hjá afa þeirra og ömmu. Hann gæti verið kom­inn í annan heim, af öðrum toga.

Minning hans lifir meðal ann­ars í sög­unni um engla alheims­ins og fyrir þá bók hlaut litli bróðir hans Bók­mennta­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs árið 1995.

Að elskast á Þjóðminjasafninu

Orðin tog­uðu í Einar Má. Setn­ing­arnar. Kafl­arnir. Bækurnar. Þessi heimur sem bæk­urnar bjóða upp á. Hann sem ólst upp fram á ferm­ing­ar­aldur í Voga­hverf­inu fór í stræt­is­vagni niður í miðbæ en hann stund­aði nám við Mennta­skól­ann við Tjörnina. Bók­menn­irnar og sagan tog­uðu líka í hann og stund­aði hann síðar nám í bók­mennta­fræði og sagn­fræði við Háskóla Íslands. Árið 1979 lá leiðin til kóngs­ins Köben þar sem hann stund­aði fram­halds­nám í bók­menntum við Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla en hann bjó í höf­uð­staðnum danska í sex ár. Og sá tími og sú reynsla kemur fram í nýju bók­inni hans um Harald sem ætlar að verða skáld.

Einar Már fór ekki einn til Kaup­manna­hafnar. Með honum í för var ástin í lífi hans, eig­in­konan Þórunn Jóns­dóttir.

„Ég var svona að byrja,“ segir hann um rit­höf­und­ar­fer­il­inn. „Ég var búinn að skrifa tals­vert en ég var að móta þetta ætl­un­ar­verk að verða rit­höf­undur og þá var oft gott að fara aðeins í burtu. Ég not­aði þetta svo­lítið sem tæki­færi til að geta skrifað í friði.“

Fyrstu ljóðin birt­ust í Lesbók Morg­un­blaðs­ins og Tímariti Máls og menn­ingar sem og tíma­rit­inu Svart og hvítu sem hann gaf út ásamt vinum úr Gallerí Suð­ur­gata 7. Þetta var á háskóla­ár­unum hér heima, frá 1975 til 1979, og þessi ár voru jafn­framt árin úti á veg­unum, ár mót­unar og ferða­laga og vinnu hingað og þangað í ver­öld­inni, eins og hann orðar það. Frá þessum tíma segir líka í sög­unni Passa­myndir frá 2017 sem og í þeirri nýju Allt frá hatti oní skó.

„Svo hélt ég áfram að vinna þarna úti í mínum skáld­skap og allt í einu var ég búinn með fyrstu þrjár ljóða­bæk­urnar og þar með talið Er nokkur í kór­óna­fötum hér inni? og Sendi­sveinn­inn er ein­mana, sem komu út árið 1980, og Róbinson krúsó sem kom út ári síðar.“

Einar Már, sem bendir á að hann hafi á þessum tíma verið óskrifað blað, hafði sent bæk­urnar til for­lags og segir hann að þeim hafi án efa fund­ist hann vera stór upp á sig. Hann kímir. Hlær. „Gaur að senda heilar þrjár ljóða­bækur og ætl­ast til að þeir gefi þær allar út. Og ég fékk neitun. En þetta voru þannig tímar í kringum 1980 að ef maður fékk neitun á einum stað þá leit­aði maður bara á öðrum stað. Það var ansi margt að breyt­ast. Þetta var pönk­tím­inn og í pönk­inu sögðu menn „gerðu hlut­ina bara sjálfur“. Það var hefð fyrir því á Íslandi að menn gæfu bæk­urnar út sjálfir. Ég fékk prent­ara í Odda til að prenta bæk­urnar og gaf þær sjálfur út. Notaði nafnið á Gall­er­í­inu sem ég var tengdur, Gallerí Suð­ur­gata 7 hét það. Ég kalla það Gallerí Von­ar­stræti í nýju sög­unni. Ljóða­bæk­urnar seld­ust upp. Þetta var stórt og mikið for­lag sem hafði ekki viljað gefa þær út og er for­lagið mitt í dag. For­ráða­menn­irnir sáu eftir því seinna vegna þess að bæk­urnar urðu mjög vin­sælar. Þetta er gömul saga og ný.“

Einar Már segir að í Kór­óna­föt­unum hafi verið stuttar athuga­semdir. Svolítið ábyrgð­ar­lausar.

Það eru skila­boð í ljóð­unum. Hér eru dæmi:

væri ég

bilað sjón­varp

myndi ég örugg­lega

valda frek­ari trufl­unum

í lífi ykkar

„Merki­legt að þetta sé fyrsta setn­ingin í fyrstu bók­inni minni,“ segir Einar Már, „vegna þess að það má segja að þetta sé yfir­lýs­ing. Dálítið djörf yfir­lýs­ing. Eða fífldjörf. Það er hægt að túlka hana.“

Hann les líka upp ást­ar­ljóð.

eftir ca 2000 ár

þegar for­leifa­fræð­ing­arnir finna bein okkar

getum við ef til vill elskast á Þjóð­minja­safn­inu

„Þetta er allt ljóðið,“ segir Einar Már. „Svo er annað sem heitir Drög að skil­grein­ingu.“

skyndi­lega

stoppa ég og skoða

hlykkj­ótt spor mín í snjónum

mér er spurn

hvort ég hafi lagt

krók á leið mína einsog

evr­ópu­komm­ún­ist­arnir

nei ég er bara fullur

„Skáld­skap­ur­inn gekk út á að vera ekki kor­rekt. Að synda á móti straumnum. Nú þykir ekki lengur fínt að synda á móti straumnum og allir eiga að vera kor­rekt. Ég veit ekki hvort þetta sé jákvætt eða nei­kvætt, en það er miklu meiri sátt­fýsi við „sýstemið“ í dag og minni upp­reisn­ar­girni. En kannski er þetta bara þannig í dag, að það er svo margt í gangi.“

„Nú þykir ekki lengur fínt að synda á móti straumnum“

Einar Már átti ekki Kór­óna­föt á þessum árum. „Málið var að ég átti leð­ur­jakka með ótal rennilásum sem mér hafði áskotn­ast árið áður þegar pönkið var að byrja í London. Þar hafði einn af þvæl­ingum mínum endað.“

Einar Már, sem fædd­ist árið 1954, seg­ist hafa verið of ungur til að ger­ast hippi og of gam­all til að verða pönk­ari. Hann var mitt á milli að eigin sögn og fíl­aði hvort tveggja sem kom vel út þegar upp var staðið.

Handritin heim

Einar Már segir að það hafi verið tals­vert líf í tusk­unum hjá Íslend­ing­unum í Kaup­manna­höfn. Hann nefnir leik­hópa og hljóm­sveitir og talar um svo­lítið bóhema­líf á lið­inu. „Það höfðu margir flúið; fólk sem vildi lifa öðru­vísi eins og sam­kyn­hneigðir og fleiri og fannst auð­veld­ara að búa þar. Það var stór og sterk íslensk nýlenda og við sem vorum að skrifa gátum verið með upp­lestra svo sem í Jónshúsi og það var vel mætt.

Þetta voru mjög áhuga­verðir tímar, bæði hérna heima og líka úti í Danmörku. Það voru ákveðin upp­gjör. Það höfðu verið tímar þar sem var lögð ógur­leg áhersla á raun­sæi og boð­skap og töldu margir að hlut­verk skáld­skap­ar­ins væri að frelsa fólk. Mínir jafn­aldrar fóru að leggja meiri áherslu á að ljóðið þyrfti líka að vera gott. Við getum sagt að það hafi orðið ákveðin áhersla á fag­ur­fræði. Sjálfum fannst mér ég vera með fæt­urna á báðum stöðum - að maður þyrfti að vera að segja eitt­hvað mik­il­vægt um sam­fé­lagið og tím­ann og líka að maður yrði að gera það með góðum skáld­skap. Rétt­læt­ing bók­mennta gat ekki bara verið sú að segja ein­hvern sann­leika. Oft þegar fólk er að tala fyrir ein­hverjum stefnum þá verður þetta oft á eina bók­ina lært, þegar allt er í raun­inni mjög fjöl­skrúð­ugt. Bók­mennta­stefnur eru hjálp­ar­tæki, ekki kreddur. Þetta kemur bara til manns.“

Einar Már segir að árin sex í Kaup­manna­höfn hafi verið gef­andi og að ein­hverju leyti efni­viður nýju sög­unnar, Allt frá hatti oní skó.

„Á þeim árum komu út þessar þrjár ljóða­bækur og svo kom út Riddarar hring­stig­ans sem er skáld­saga. Ég skrif­aði hana úti; á meðan ég bjó úti. Og líka næstu, Vængja­slátt í þak­rennum. Ég átti gríð­ar­lega mikið efni og ég skrif­aði mjög mikið. Þarna úti. Ég þorði ekki annað þegar við fluttum heim en að taka þetta í hand­far­angri. Ég held þetta hafi verið um tutt­ugu kíló af hand­ritum.“

Draumar og veruleiki

Einar Már Guð­munds­son er lista­maður. Lista­maður orðs­ins. Skrifar eins og galdra­maður.

Hann talar um draum­kenndan stíl sem hann er hrif­inn af. Hann nefnir draum­inn um hest­ana í Englum alheims­ins en það er draumur sem móður hans dreymdi í raun og veru. Það er líka hægt að sjá þennan stíl í Fótspor á himnum og Draumum á jörðu. Hann bendir á að í bók­inni Eft­ir­málar regn­dropanna séu skilin á milli draums og veru­leika óskýr. „Draumar og veru­leiki hafa alltaf höfðað til mín.“

„Langt úti í tún­inu sá hún fjóra hesta. Þeir stóðu allir á beit, spöl­korn hver frá öðrum. Hún hafði ekki séð þessa hesta áður. Þetta voru ekki hest­arnir hans afa.

En þetta voru vel­skap­aðir, hnar­reistir og fal­legir hestar: Einn var rauður, annar brúnn, sá þriðji jarpur en sá fjórði skjóttur.

Mömmu fannst hún eiga þessa hesta. Þeir voru í hættu. Hún varð að bjarga þeim.

Þegar hest­arnir hlupu af stað dróst sá skjótti aftur úr. Hann hljóp í hringi og hag­aði sér afar und­ar­lega. Svo ætl­aði hann að taka á rás, eins og hinir hest­arnir, en þá hras­aði hann og datt.

Þegar mamma kom að honum lá hann dauður á jörð­inni. Mamma horfði and­ar­tak inn í opin augu hans, en í næstu andrá lá hún vak­andi, því ég var far­inn að sprikla og sparka og vildi ólmur kom­ast inn í þennan heim sem ég síðar hvarf úr.“

„Ég verð að trúa hinu ótrú­lega.“

Einar Már er spurður hvort hann telji að það sé eitt­hvað meira til en margir vilja við­ur­kenna. „Já, ég geng alveg út frá því. Annars væri ég ekki það skáld sem ég er. Ég verð að trúa hinu ótrú­lega. Ég held að skáld­skapur sé að mörgu leyti leifar af gömlum veru­leika. Að veru­leik­inn á mið­öldum hafi til dæmis verið miklu stærri. Áður voru draum­arnir hluti af veru­leik­anum. Þessir fyr­ir­bæri grein­ast í sundur með tækni og fram­förum, sem eru kannski ekki fram­farir.“

Finnst honum hann stundum týn­ast í ein­hverjum öðrum heimi þegar hann er að skrifa?

„Eflaust má segja að maður hafi að hluta til lifað í öðrum heimi þótt það sé ekk­ert póst­númer þar. Fyrir mér snýst þetta um að lifa sig inn í þann heim sem maður er að skrifa um. Menn tala um töfrarauna­sæi, en fyrir mér eru töfr­arnir bara hluti af veru­leik­anum. Að minnsta kosti ef maður er að skrifa skáld­skap. Skáld­skap­ur­inn er ákveðin sýn á heim­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu