Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé

„Við erum senni­lega eitt af þessum böndum sem trúa því að þau eigi eitt­hvað eftir ósagt.“

Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé
Shape Rokk­hljóm­sveitin Shape snýr aftur Mynd: Hari

Aust­firska hljóm­sveitin Shape hefur sent frá sér lagið Tar & Feather, sitt fyrsta nýja efni í 24 ár. Bassa­leik­ar­inn Logi Helgu segir sveit­ina hafa meira fram að færa og stefnir hún nú á að gefa út nýja plötu.

Það er orðið langt síðan síð­ast heyrð­ist nýtt efni frá aust­firsku hljóm­sveit­inni Shape, sem á tíunda ára­tugnum tryllti lýð­inn fyrir austan á skóla­böllum grunn- og fram­halds­skólum, en nú hefur sveitin snúið aftur með lagið Tar & Feather. Síðast sendi hún frá sér efni á safn­plöt­unni Dreng­ur­maður árið 2002.

„Lagið Tar & Feather er fyrsta lagið sem kemur út frá okkur í 24 ár og er að hluta til vísun í heims­bók­menntir æsku okkar, það er að segja Lukku Láka og hvernig menn eru tjarg­aðir og fiðraðir fyrir syndir sínar,“ segir Logi Helguson, bassa­leik­ari sveit­ar­innar í sam­tali við Mannlíf.

Lagið fjallar um bar­átt­una við synd­irnar, sem fólk ýmist brennur fyrir innra með sér eða þarf að gjalda fyrir á opin­berum vett­vangi, líkt og í sög­unum um Lukku Láka.

Upptökurnar tóku næstum 13 ár

Þótt 24 ár séu liðin frá síð­ustu útgáfu Shape hefur lagið Tar & Feather átt sér langan aðdrag­anda. Upp­töku­ferlið tók tæp 13 ár og fyrstu trommu­upp­tök­urnar fóru fram í Reflex Studios í des­em­ber 2013. Hljóð­verið hefur nú verið lagt niður.

Lagið er samið af með­limum Shape. Prins Grímsson sá um upp­töku­stjórn og hljóð­blöndun en Axel Flex Árnason ann­að­ist hljóð­jöfnun. Auk núver­andi með­lima sveit­ar­innar komu Bragi Hreinn Þor­steins­son, fyrr­ver­andi með­limur, og Axel Flex að upp­tök­unum með tam­bor­ínum og kúa­bjöllu.

Stofnuð á Eiðum árið 1994

Shape var stofnuð í Alþýðu­skól­anum á Eiðum árið 1994 og var áber­andi í tón­list­ar­lífi Aust­ur­lands fram til árs­ins 1999. Sveitin komst meðal ann­ars í úrslit Mús­íktil­rauna árið 1996.

Á ferl­inum gaf Shape út tvær stutt­skífur, Limited Edition árið 1998 og Lost EP árið 2002. Sú fyrr­nefnda var hljóð­rituð í Studio RIS í Nes­kaup­stað undir stjórn Jóns Hilmars Kára­sonar en sú síð­ar­nefnda í Studio Stein­holti á Seyð­is­firði og Hljóð­rita í Hafn­ar­firði. Þá birt­ist tón­list sveit­ar­innar á nokkrum aust­firskum safn­plötum.

Sveitin hefur alla tíð verið skipuð Aust­firð­ingum. Núver­andi með­limir eru Magni Ásgeirs­son, söngur og gítar, Hafþór Snjólfur Helgason, trommur og bak­raddir, Prins Grímsson, gítar og bak­raddir, Logi Helguson, bassi og bak­raddir, og Sig­ur­steinn Þór Ein­ars­son, betur þekktur sem Diddi, sem syngur bak­raddir.

Stefnan sett á næstu plötu

Shape lætur ekki staðar numið við end­ur­komu­lagið. Sveitin vinnur nú að frekara efni sem stefnt er að því að gefa út á næstu mán­uðum.

„Við erum senni­lega eitt af þessum böndum sem trúa því að þau eigi eitt­hvað eftir ósagt. Nú er stefnan bara sett á næstu plötu,“ segir Logi.

Áður en kemur að plötu­gerð­inni bíður sveit­ar­innar þó tón­leika­hald. Shape stígur á svið á Eyr­ar­rokki á Akureyri um helg­ina, þar sem meðal ann­arra koma fram Dr. Spokk, Dr. Gunni, Kolrassa Krókríð­andi og Inn­vortis.

„En fyrst er það Eyr­ar­rokk um helg­ina á Akureyri, djöf­ull verður það gaman!“ segir Logi að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu