
Það var vandræðalegt að fylgjast með Ásthildi Lóu Þórðardóttur, fyrrverandi ráðherra, tala í Rauða borðinu um þegar hún sagði af sér embætti mennta- og barnamálaráðherra en hún gerði það eftir að RÚV greindi frá því að Ásthildur hefði eignast barn með 16 ára gömlum pilti þegar hún var 23 ára gömul.
Í þættinum hjá Samstöðinni sagði ráðherrann fyrrverandi að fréttin væri mjög röng og að henni þætti ótrúlegt að hún hefði verið sú eina sem þurfti að segja af sér vegna málsins.
Hún minntist þó ekki á að hún hafi kært frétt RÚV til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands í fimm liðum og var RÚV dæmdur sigur að öllu nema einu leyti og var komist að þeirri niðurstöðu að RÚV hefði brotið af sér í einu tilfelli og hafi það brot verið ámælisvert en ekki alvarlegt eða mjög alvarlegt.
Þá skal því haldið til haga að Ásthildur sagði af sér áður en frétt RÚV fór í loftið þannig að allt tal um að hún hafi „þurft“ að segja af sér skrifast alfarið á hana en ekki fjölmiðla eða almenning ...

Komment