1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

6
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

7
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

8
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

9
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

10
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

Til baka

Kona frá Suður-Afríku opnar sig um mansal og nauðganir Epsteins

„Þetta var ótrúlega ruglingsleg staða fyrir unga manneskju“

Juliette Bryant
Juliette BryantBryant segir frá raunum sínum í klóm Epsteins

Hin 43 ára Juliette Bryant lýsir „ósýnilegum fjötrum“ sem héldu henni í greipum Jeffrey Epstein árum saman. Bryant var nemi og dreymdi um fyrirsætuferil þegar Epstein lokkaði hana frá Höfðaborg í Suður-Afríku.

Bryant var ráðin af honum árið 2002, þá á fyrsta ári í háskólanámi, og segir frá reynslu sinni á sama tíma og kallað er eftir því að Andrew Mountbatten-Windsor skýri tengsl sín við Epstein á þeim tíma sem hann gegndi hlutverki viðskiptafulltrúa Bretlands. Andrew hefur ítrekað neitað allri sök.

Aðeins tvítug að aldri taldi Bryant að líf hennar væri á barmi stórra tækifæra. „Mér fannst eins og draumar mínir væru að rætast, því fjölskyldan mín átti í fjárhagserfiðleikum og ég vildi svo gjarnan gera eitthvað til að hjálpa,“ segir hún.

Þremur vikum eftir að hún hitti Epstein fyrst á veitingastað í Höfðaborg var hún á leið til New York í fyrstu utanlandsferð sinni. Þar var Epstein ásamt Bill Clinton, sem var í opinberri AIDS-vitundarherferð, í fylgd leikaranna Kevin Spacey og Chris Tucker.

Skömmu eftir komuna til New York var henni sagt að ferðinni yrði haldið áfram til Karíbahafsins. Ökumaður flutti hana að flugbraut á Teterboro-flugvelli í New Jersey, þar sem hún steig um borð í einkaþotu Epsteins. Þar voru einnig konur sem hún segir hafa ráðið hana upphaflega í Höfðaborg, á leið til einkaeignar hans.

„Hann klappaði á sætið við hlið sér … og ég settist þar. Þetta var ótrúlega ruglingsleg staða fyrir unga manneskju,“ sagði Bryant í samtali við Sky News. „Þegar flugvélin fór á loft byrjaði hann að þukla mig harkalega á milli læranna og ég fríkaði algjörlega út. Þá áttaði ég mig á því, guð minn góður, fjölskyldan mín mun aldrei sjá mig aftur, þetta fólk gæti drepið mig.“

Hún segir að konurnar um borð hafi hlegið. „Ég var skelfingu lostin,“ bætir hún við. Bryant segir að hún hafi ekki verið seld áfram til annarra karla, heldur verið ítrekað nauðgað af Epstein sjálfum.

Ólíklegt er að hún hafi verið eina unga konan sem Epstein notaði í mansal frá Höfðaborg. Tölvupóstar úr Epstein-skjölunum sýna flugupplýsingar ónefndra kvenna sem voru fluttar frá Höfðaborg til Lundúna, Atlanta og New York allt fram á síðla árs 2018. „Ég sá hann í morgunverði, hádegisverði og kvöldverði, og síðan var ég kölluð inn í herbergið hans. Annars sá ég lítið til hans, hann var alltaf við vinnu,“ segir hún. „Ég var oft ein. Sat við sundlaugina eða las bækur. Ég fann líka einnota myndavélar í eldhúsinu og tók myndir meðan ég var þar.“

Myndir Bryant sýna annars vegar brosandi augnablik í faðmi annarra ungra kvenna og hins vegar draugalegar myndir af einangrun og tómleika. „Það var engin leið að komast burt. Þau voru með vegabréfið mitt og við vorum komin til einnar af Karíbahafseyjunum og flutt í þyrlu á eyjuna hans. Það var engin undankomuleið. Ég er ekki nógu sterk til að synda í burtu.“

Árið 2022 sagði Bryant í viðtali við Mirror að Ghislaine Maxwell hefði „opnað dyr helvítis“, eftir að Maxwell var dæmd í 20 ára fangelsi.

Bryant lýsti einnig fyrir dómi martröðum sínum eftir að Maxwell hafði platað hana til Epstein þar sem hún var í tvö ár og sagði: „Í stuttu máli: hún er skrímsli.“

Á þeim tíma hvatti lögmaðurinn Brad Edwards, sem tryggði Virginia Giuffre 12 milljóna punda sáttagreiðslu utan dóms, FBI til að hætta ekki rannsókn sinni.

Aðspurður um aðra sem gætu tengst Maxwell og Epstein sagði hann: „Vonandi verða þeir næstir á listanum. Ef við fáum einhverju ráðið, þá mun það gerast.“ Hann naut þar stuðnings lögmannsins Spencer Kuvin, sem fer með mál nokkurra fórnarlamba Epsteins og Maxwell.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan rannsakar dánarorsök og reynir að bera kennsl á manninn.
Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Innlent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Myndir
Innlent

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pólitík

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan rannsakar dánarorsök og reynir að bera kennsl á manninn.
Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Loka auglýsingu