
Barnavernd Garðabæjar rannsakar nú grun um brot gegn barni á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi. Málið kom upp í síðustu viku og foreldrar barna á leikskólanum voru upplýstir um stöðuna á fundi í morgun. RÚV sagði frá málinu.
Samkvæmt heimildum kom upp ábending um málið á fimmtudag í síðustu viku. Í kjölfarið voru foreldrar boðaðir á fund þar sem farið var yfir málið og viðbrögð.
Guðný Hrönn Antonsdóttir, samskiptastjóri Garðabæjar, staðfestir að barnavernd hafi málið til skoðunar vegna gruns um brot á barnaverndarlögum. Hún segir þó ekki unnt að greina frá eðli brotsins eða hvort starfsmaður komi við sögu. Einnig liggur ekki fyrir hvort málið hafi verið tilkynnt til lögreglu.
Krakkakot er leikskóli á Álftanesi þar sem börn á aldrinum eins til fimm ára stunda nám. Þar eru um hundrað börn og tæplega þrjátíu starfsmenn. Tveir fundir voru haldnir með foreldrum í morgun og stóðu fram yfir hádegi.
Undanfarið hafa fleiri mál af svipuðum toga komið upp á leikskólum víða um land. Nýlega var greint frá rannsókn á starfsmanni leikskóla á Akranesi vegna gruns um kynferðisbrot, auk þess sem lögregla rannsakar mál tengt Brákaborg í Reykjavík. Þá hefur starfsmaður Múlaborgar verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn einu barni, en hefur einnig verið grunaður um brot gegn minnst tíu börnum á leikskólanum en málið er í rannsókn.
Uppfært
Upphaflega var mynd af röngum leikskóla birt með fréttinni, beðist er velvirðingar á því.

Komment