1
Peningar

Annþór stofnar fyrirtæki

2
Innlent

Neyðarboð barst frá strætisvagni

3
Innlent

Ökumaður stórslasaði konu við Pizzuna

4
Innlent

„Er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu orðin útibú frá Miðflokknum?“

5
Fólk

Lúxus þakíbúð í miðborginni til sölu

6
Heimur

Byrlaði eiginkonunni ólyfjan um árabil og nauðgaði

7
Heimur

Búðarþjófur beindi byssu að lögregluþjóni

8
Innlent

Umráðamaður sparkaði ítrekað í hund

9
Heimur

Trump flaug mun oftar með einkaþotu Epstein en áður var talið

10
Landið

Hitinn nær allt að 20 gráðum um jólin

Til baka

Bendir á áhuga Guðrúnar á ESB fyrir ellefu árum

„Vissu Sjálfstæðismenn um þennan vilja Guðrúnar þegar hún var kjörin formaður flokksins?“

Alþingi 71. grein
Guðrún HafsteinsdóttirGuðrún skoðar eitthvað merkilegt í síma aðstoðarmanns síns
Mynd: Víkingur

Samfélagsrýnirinn frá Grindavík, Björn Birgisson kastar fram bombu, ef svo má að orði komast, í nýrri Facebook-færslu. Þar bendir hann á tvískinnungshátt Guðrúnar Hafsteinsdóttur varðandi Evrópusambandsviðræður Íslands.

„Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins birti kostaða færslu á Facebook í tilefni heimsóknar Ursulu von der Leyen, framkvæmdarstjóra ESB til Íslands, þar sem hún segir heimsóknina vera meðvitaða pólitíska yfirlýsingu og sagði meðal annars eftirfarandi:

Við í Sjálfstæðisflokknum höfum alltaf lagt ríka áherslu á gott og faglegt samstarf við önnur ríki og alþjóðastofnanir. En við gerum skýran greinarmun á samstarfi og yfirráðum. Ísland á ekki að láta aðra móta stefnu okkar í sjávarútvegi, orkumálum, eða varnarmálum. Það er okkar að gera það.

Við munum ekki sitja hljóð og horfa á meðan þessu er stýrt áfram með þöglu samþykki. Við ætlum að leiða umræðuna um þessi stóru mál. Sjálfstæðisflokkurinn mun standa vörð um hagsmuni Íslands. Við viljum framtíð byggða á frelsi, ábyrgð og traustri þátttöku í alþjóðasamfélaginu - en á forsendum þjóðarinnar sjálfrar.“

Svar Björns

„Guðrún Hafsteinsdóttir vildi verða formaður Samtaka iðnaðarins 2014 og henni tókst það út á boðaða stefnu sína, meðal annars að hún vildi ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og láta þjóðina kjósa um aðildarsamning.“ Björn byrjar færslu sína á þennan hátt en hún hefur vakið talsverða athygli á Facebook.

Rifjar Björn upp kosningar um formann Samtaka iðnaðarins árið 2014:

„Í kosningunni um formann Samtaka iðnaðarins 2014 voru tveir frambjóðendur í kjöri:

Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjörís og stjórnarmaður í SI.

Svana Helen Björnsdóttir, þáverandi formaður stjórnar SI og stofnandi/stjórnarformaður Stika ehf.

Á aðalfundi SI sem haldinn var í Laugardalshöll þann 6. mars 2014 var mjög jöfn keppni milli Guðrúnar og Svönu.

Guðrún fékk 52,4 % (106.151 atkvæði)
Svana Helen fékk 43,8 % (88.684 atkvæði)
Aðrir fengu 3,8 % atkvæðanna.

Því var Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður SI, með tæplega 8 prósentustiga forskoti.“

Segir hann Guðrúnu hafa lýst afstöðu sinni á skýran hátt fyrir kosningar, til aðilarviðræðna við ESB.

„Guðrún lýsti afstöðu sinni skýrt í ræðu fyrir kosningu, þar á meðal varðandi aðildarviðræður við ESB, afnám virðisaukaskatts á vinnu iðnaðarmanna, einföldun skattkerfis og eflingu átaksins “Allir vinna” til að draga úr svörtum vinnumarkaði.

Guðrún gegndi svo formennsku hjá Samtökum iðnaðarins frá mars 2014 til ársins 2020.“

Því næst vitnar Björn í orð Guðrúnar um hið mikla hitamál sem aðildarumsókn að ESB er:

„Guðrún sagði í tilkynningu um framboðið 2014 að hún vildi ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og kjósa um aðildarsamning.

Í tilkynningu hennar sagði orðrétt:

„Ná þarf sem hagstæðustu samningum fyrir allar atvinnugreinar og almenning og leggja niðurstöðuna í dóm kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ég treysti dómgreind þjóðarinnar í þessu stóra máli.

Afnema ætti virðisaukaskatt af vinnu iðnaðarmanna á byggingarstað. Það er gríðarlega mikilvægt að minnka svarta vinnu og ég vil festa í sessi átakið „Allir vinna“.

Þá þarf að einfalda regluverk atvinnulífsins og stóran hluta skattkerfisins.

Endurskoða þarf VSK-skattkerfið frá grunni. Við þurfum hagfellt skattkerfi og hvata fyrir nýsköpun og skapandi greinar.

Ég vil endurskoða tolla- og vörugjalda kerfið. Það stendur íslenskum iðnaði stórlega fyrir þrifum og hækkar verðlag í landinu. Þetta er afleitt kerfi sem skilar litlu.

Við verðum að koma fjárfestingum af stað og það verður að lækka vexti.

Þetta háa vaxtastig er meinsemd í íslensku samfélagi.

Gera þarf átak á sviði samgönguframkvæmda og Samtök iðnaðarins þurfa að vinna með stjórnvöldum að því marki.

Þá er aldrei of oft sagt að það er forgangsmál að losa landið úr gjaldeyrishöftum.

Breiddin í Samtökum iðnaðarins er mikil og við þurfum að gæta hagsmuna allra, smárra jafnt sem stórra fyrirtækja.“

Að lokum spyr Björn Sjálfstæðismenn hvort þeir hafi vitað um vilja Guðrúnar er hún hlaut kosningu sem formaður flokksins:

„Vissu Sjálfstæðismenn um þennan vilja Guðrúnar þegar hún var kjörin formaður flokksins?

"Ná þarf sem hagstæðustu samningum við Evrópusambandið fyrir allar atvinnugreinar og almenning og leggja niðurstöðuna í dóm kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu".“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Fundu aldraða konu sem hafði týnst á Tenerife
Heimur

Fundu aldraða konu sem hafði týnst á Tenerife

Fjölskyldumeðlimir, vinir og íbúar á staðnum tóku þátt í leitinni
Enginn dýralæknir á bakvakt fyrir austan yfir jólin
Landið

Enginn dýralæknir á bakvakt fyrir austan yfir jólin

Maður fluttur á slysadeild eftir að ekið var á hann
Innlent

Maður fluttur á slysadeild eftir að ekið var á hann

Trump flaug mun oftar með einkaþotu Epstein en áður var talið
Heimur

Trump flaug mun oftar með einkaþotu Epstein en áður var talið

Hitinn nær allt að 20 gráðum um jólin
Landið

Hitinn nær allt að 20 gráðum um jólin

Byrlaði eiginkonunni ólyfjan um árabil og nauðgaði
Heimur

Byrlaði eiginkonunni ólyfjan um árabil og nauðgaði

Ökumaður stórslasaði konu við Pizzuna
Innlent

Ökumaður stórslasaði konu við Pizzuna

„Er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu orðin útibú frá Miðflokknum?“
Innlent

„Er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu orðin útibú frá Miðflokknum?“

Umráðamaður sparkaði ítrekað í hund
Innlent

Umráðamaður sparkaði ítrekað í hund

Lúxus þakíbúð í miðborginni til sölu
Myndir
Fólk

Lúxus þakíbúð í miðborginni til sölu

Búðarþjófur beindi byssu að lögregluþjóni
Myndband
Heimur

Búðarþjófur beindi byssu að lögregluþjóni

Pólitík

Össur lofar frammistöðu Valkyrjanna í Silfrinu
Pólitík

Össur lofar frammistöðu Valkyrjanna í Silfrinu

Gefur lítið fyrir frammistöðu formanns Sjálfstæðisflokksins
Sanna tilkynnir framboð
Myndband
Pólitík

Sanna tilkynnir framboð

Verkefnastjóri Miðflokksins vill ekki sjá „múslímskt höfuðfat“ á Íslandi
Pólitík

Verkefnastjóri Miðflokksins vill ekki sjá „múslímskt höfuðfat“ á Íslandi

Dóra Björt komin í Samfylkinguna
Pólitík

Dóra Björt komin í Samfylkinguna

„Er ekki kominn tími til að tala um eitthvað annað en útlendinga, t.d. húsnæðismál eða eitthvað?“
Pólitík

„Er ekki kominn tími til að tala um eitthvað annað en útlendinga, t.d. húsnæðismál eða eitthvað?“

„Hvað er eiginlega að þessu andskotans pakki í stjórnarandstöðunni?“
Pólitík

„Hvað er eiginlega að þessu andskotans pakki í stjórnarandstöðunni?“

Loka auglýsingu