1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

6
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

7
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

8
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

9
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

10
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

Til baka

„Halda íslenskum neytendum í heljargreipum“

Björn Þorláksson gagnrýnir stjórnvöld harðlega

Alma Möller
Alma D. MöllerBjörn er gagnrýninn á hugmyndir ríkisstjórnarinnar
Mynd: Víkingur

Björn Þorláksson, fjölmiðlamaður hjá Samstöðinni, gagnrýnir stjórnvöld harðlega í Facebook-færslu í tilefni af umfjöllun um áform heilbrigðismálaráðherra um að setja af stað átak gegn offitu Íslendinga.

Björn segir ríkisstjórnina skorta skilning á raunverulegum aðstæðum neytenda og viðskiptalífs hér á landi og lýsir henni sem veruleikafirrtu afli sem horfi fram hjá rót vandans.

„Ríkisstjórnin virðist blind á umhverfi viðskiptalífs hér á landi,“ skrifar Björn og bendir á að stjórnvöld hafi ítrekað sýnt vantraust á eigin mati. „Hún hélt að hægt yrði að treysta olíufélögunum um áramótin þrátt fyrir blóðuga sögu verðsamráðs þeirra. Ríkisstjórnin heldur að hollt muni lækka í matvörubúðunum. Hún virðist innilokuð í óraunveruleika.“

Hann segir fákeppni, samráð og helmingaskipti ráða ríkjum á íslenskum markaði og halda almenningi í heljargreipum. Sérstaklega nefnir hann bankakerfið sem dæmi um viðurstyggilegt viðskiptasiðferði.

„Fákeppni, helmingaskipti og samráð halda íslenskum neytendum í heljargreipum, viðurstyggilegastir eru bankanir með mun á innláns- og útlánsvöxtum sem engin heilbrigð þjóð í heilbrigðu umhverfi myndi láta bjóða sér,“ skrifar hann.

Björn spyr jafnframt hvers vegna stjórnvöld beiti ekki eignarhaldi sínu í ríkisbanka landsins til að knýja fram breytingar.

„Af hverju sýnir Kristrún ekki hugrekki og þvingar Landsbankann sem er í eigu okkar til að ganga á undan með góðu fordæmi og lækka útlánsvexti? Hinir bankarnir myndu neyðast til að elta.“

Hann gagnrýnir einnig að stjórnvöld láti mál eins og viðskiptasiðferði tryggingafélaga liggja á milli hluta.

„Viðskiptasiðferði tryggingafélaganna? En um þetta ræðir ríkisstjórnin ekki.“

Varðandi hugmyndir um sykurskatt segist Björn ekki alfarið andvígur slíkum aðgerðum, en telur þær tilgangslausar án raunverulegs inngrips stjórnvalda.

„Hitt er svo annað mál að sykurskattur getur vel verið góð hugmynd – en það er sama hvað reynt er nema yfirvöld grípi raunverulega í taumana.“

Að lokum segir hann að staðan á íslenskum markaði einkennist af stöðugum hækkunum sem bitni á almenningi.

„Það sem á að lækka gerir það ekki en allt hækkar alltaf endalaust, vegna ofsagróðafíknar fyrirtækja sem eru ráðandi á markaði og vinna við það að taka okkur almenning á hverjum degi í rass – afsakið orðbragðið – annars eiturhrezz á fallegum degi…“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé
Menning

Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé

„Við erum sennilega eitt af þessum böndum sem trúa því að þau eigi eitthvað eftir ósagt.“
Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd
Heimur

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna
Heimur

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Vísar á bug sölu á Landsvirkjun
Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Loka auglýsingu