1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

3
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

4
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

5
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

6
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

7
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

8
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

9
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

10
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Til baka

Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé

„Við erum sennilega eitt af þessum böndum sem trúa því að þau eigi eitthvað eftir ósagt.“

Shape
ShapeRokkhljómsveitin Shape snýr aftur
Mynd: Hari

Austfirska hljómsveitin Shape hefur sent frá sér lagið Tar & Feather, sitt fyrsta nýja efni í 24 ár. Bassaleikarinn Logi Helgu segir sveitina hafa meira fram að færa og stefnir hún nú á að gefa út nýja plötu.

Það er orðið langt síðan síðast heyrðist nýtt efni frá austfirsku hljómsveitinni Shape, sem á tíunda áratugnum tryllti lýðinn fyrir austan á skólaböllum grunn- og framhaldsskólum, en nú hefur sveitin snúið aftur með lagið Tar & Feather. Síðast sendi hún frá sér efni á safnplötunni Drengurmaður árið 2002.

„Lagið Tar & Feather er fyrsta lagið sem kemur út frá okkur í 24 ár og er að hluta til vísun í heimsbókmenntir æsku okkar, það er að segja Lukku Láka og hvernig menn eru tjargaðir og fiðraðir fyrir syndir sínar,“ segir Logi Helguson, bassaleikari sveitarinnar í samtali við Mannlíf.

Lagið fjallar um baráttuna við syndirnar, sem fólk ýmist brennur fyrir innra með sér eða þarf að gjalda fyrir á opinberum vettvangi, líkt og í sögunum um Lukku Láka.

Upptökurnar tóku næstum 13 ár

Þótt 24 ár séu liðin frá síðustu útgáfu Shape hefur lagið Tar & Feather átt sér langan aðdraganda. Upptökuferlið tók tæp 13 ár og fyrstu trommuupptökurnar fóru fram í Reflex Studios í desember 2013. Hljóðverið hefur nú verið lagt niður.

Lagið er samið af meðlimum Shape. Prins Grímsson sá um upptökustjórn og hljóðblöndun en Axel Flex Árnason annaðist hljóðjöfnun. Auk núverandi meðlima sveitarinnar komu Bragi Hreinn Þorsteinsson, fyrrverandi meðlimur, og Axel Flex að upptökunum með tamborínum og kúabjöllu.

Stofnuð á Eiðum árið 1994

Shape var stofnuð í Alþýðuskólanum á Eiðum árið 1994 og var áberandi í tónlistarlífi Austurlands fram til ársins 1999. Sveitin komst meðal annars í úrslit Músíktilrauna árið 1996.

Á ferlinum gaf Shape út tvær stuttskífur, Limited Edition árið 1998 og Lost EP árið 2002. Sú fyrrnefnda var hljóðrituð í Studio RIS í Neskaupstað undir stjórn Jóns Hilmars Kárasonar en sú síðarnefnda í Studio Steinholti á Seyðisfirði og Hljóðrita í Hafnarfirði. Þá birtist tónlist sveitarinnar á nokkrum austfirskum safnplötum.

Shape
Mynd: Hari

Sveitin hefur alla tíð verið skipuð Austfirðingum. Núverandi meðlimir eru Magni Ásgeirsson, söngur og gítar, Hafþór Snjólfur Helgason, trommur og bakraddir, Prins Grímsson, gítar og bakraddir, Logi Helguson, bassi og bakraddir, og Sigursteinn Þór Einarsson, betur þekktur sem Diddi, sem syngur bakraddir.

Stefnan sett á næstu plötu

Shape lætur ekki staðar numið við endurkomulagið. Sveitin vinnur nú að frekara efni sem stefnt er að því að gefa út á næstu mánuðum.

„Við erum sennilega eitt af þessum böndum sem trúa því að þau eigi eitthvað eftir ósagt. Nú er stefnan bara sett á næstu plötu,“ segir Logi.

Áður en kemur að plötugerðinni bíður sveitarinnar þó tónleikahald. Shape stígur á svið á Eyrarrokki á Akureyri um helgina, þar sem meðal annarra koma fram Dr. Spokk, Dr. Gunni, Kolrassa Krókríðandi og Innvortis.

„En fyrst er það Eyrarrokk um helgina á Akureyri, djöfull verður það gaman!“ segir Logi að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

„Það væri svo sem ekkert nýtt á þeim bæ“
Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Sameina raddir sínar í Hallgrímskirkju til minningar um fórnarlömb stríðs
Menning

Sameina raddir sínar í Hallgrímskirkju til minningar um fórnarlömb stríðs

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar
Menning

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október
Myndband
Menning

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október

Ragnheiður, Guðmundur og Leifur dusta rykið af perlunum
Menning

Ragnheiður, Guðmundur og Leifur dusta rykið af perlunum

Íslensk eldstöð verður að fangelsi í tölvuleiknum Overwatch
Menning

Íslensk eldstöð verður að fangelsi í tölvuleiknum Overwatch

Loka auglýsingu