1
Sport

Umdeildasta stjarna íslenska knatt­spyrnu­lands­liðsins

2
Innlent

Stefán telur öruggt að hundsbitum muni fjölga

3
Leiðari

Þjóðarklofningur

4
Heimur

Brúður myrt í eigin brúðkaupi í Frakklandi

5
Heimur

Áhorfendur féllu úr stúku

6
Fólk

Andri „á flandri“ selur útsýnisíbúð

7
Pólitík

Íslendingar í klemmu á NATO-fundinum

8
Innlent

Geislavirkir límmiðar í umferð

9
Heimur

Trump vill núna MIGA

10
Innlent

Annað innbrot í Laugardalnum

Til baka

Bernie Sanders tryllir gesti á Coachella með óvæntri heimsókn

„Við erum nýja kynslóðin, við erum framtíð Bandaríkjanna.“

AFP__20250413__2209996679__v2__HighRes__2025CoachellaValleyMusicAndArtsFestivalWeeke
Clairo og SandersÓvænt heimsókn Sanders vakti mikla lukku.
Mynd: Getty Images via AFP

Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders var einn af óvæntum hápunktum Coachella-hátíðarinnar um helgina þegar hann birtist óvænt og dró til sín fjölda áhorfenda á laugardaginn.

Aðdáendur hlupu í áttina að honum með símana á lofti til að ná myndskeiðum af óvæntri ræðu hans sem hann hélt stuttu eftir magnaða tónleika söngkonunnar Charli XCX á nærliggjandi sviði.

„Ég ætla ekki að tala lengi en þessi þjóð stendur frammi fyrir mjög erfiðum áskorunum og framtíð Bandaríkjanna veltur á ykkar kynslóð,“ sagði Sanders við mikinn fögnuð. Hátíðin markar óopinberlega upphaf tónlistarhátíðatímabilsins í Bandaríkjunum.

„Þið getið ákveðið að horfa í aðra átt og hunsa það sem er að gerast, en þá gerið þið það á eigin ábyrgð. Við þurfum þess að þið standið upp og berjist fyrir réttlæti, efnahagslegu, kynþátta- og félagslegu réttlæti.“

Fyrr sama dag höfðu Sanders og þingkonan Alexandria Ocasio-Cortez haldið fjöldafund sem skipuleggjendur segja að hafi dregið að sér 36.000 manns. Sá fundur var hluti af „Baráttunni gegn auðræði“, ferð þeirra um landið sem meðal annars innihélt tónlistaratriði með Neil Young, Maggie Rogers og Joan Baez.

Sanders, sem flutti ræðuna undir fullu tungli, hvatti fólkið til að rísa gegn milljarðamæringum, sjúkratryggingafélögum og stjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta.

„Nú höfum við forseta Bandaríkjanna,“ byrjaði Sanders, en þá tók fólkið að baula og hæðast að nafni Trumps.

„Ég er sammála,“ hélt Sanders áfram. „Hann heldur að loftslagsbreytingar séu blekking. Hann hefur alvarlega rangt fyrir sér og við verðum að rísa gegn jarðefnaiðnaðinum og segja honum að hætta að eyðileggja þessa plánetu.“

„Nákvæmlega rétta hreyfingin“

Sanders kynnti síðan tónlistarkonuna Clairo á svið og þakkaði henni fyrir að nota áhrif sín í þágu félagslegs réttlætis.

„Ég er hér vegna þess að Clairo hefur notað frægð sína til að berjast fyrir réttindum kvenna og til að reyna að binda enda á hið hræðilega, grimmilega stríð á Gaza, þar sem þúsundir kvenna og barna hafa verið drepin,“ sagði hann. „Ég vil þakka Clairo ekki bara fyrir að vera í frábærri hljómsveit, heldur líka fyrir það mikilvæga starf sem hún vinnur.“

Skilaboðin höfðu áhrif: „Ég elska Bernie Sanders!“ hrópaði ein hátíðarstelpa þegar þingmaðurinn, sem er sósíalisti að eigin sögn og starfar með Demókrötum, lauk ræðu sinni.

Samara Guillory, 21 árs, var meðal þeirra sem hlupu að sviðinu þegar Sanders kom fram.

„Það skipti mig miklu máli að Sanders skyldi koma og tala beint til okkar,“ sagði hún í samtali við AFP. „Við erum nýja kynslóðin, við erum framtíð Bandaríkjanna.“

„Að mæta hingað, tala við okkur og auka meðvitund – þetta var nákvæmlega það sem þurfti, í alvöru talað.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Bergþór Ólason
Innlent

„Árið 2024 voru erlendir ríkisborgarar 42% fanga í fangelsum“

Þingmaðurinn Bergþór Ólason sendi dómsmálaráðherra fyrirspurn um erlenda ríkisborgara í fangelsum á Íslandi og hefur nú fengið svar
myvatn
Landið

Hrósað fyrir hóflegt verð

Landspítalinn
Innlent

Einn fluttur á sjúkrahús eftir rán og líkamsárás

Sigurður Fannar Þórsson
Innlent

Sigurður Fannar fundinn sekur

Kristrún Frostadóttir og Mark Rutte
Úttekt
Pólitík

Íslendingar í klemmu á NATO-fundinum

Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsókarnflokksins og fyrrverandi forsetaframbjóðandi
Fólk

Halla Hrund keypti fyrir 150 milljónir

Móðir og barn
Peningar

Mæður hafa um 30% lægri tekjur

Svöðufoss á Snæfellsnesi
Landið

Féll fimm metra ofan í Svöðu­foss

Litla_Sandfell
Innlent

Orkuveitunni meinað að gera tilraunir fyrir fleiri vindmyllur

Reykjanesbær Keflavík
Innlent

Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps

Dómkirkjan í Reykjavík
Innlent

„Villutrúartal tilheyrir óttasleginni kirkju“

Guðrún árný
Menning

Skorar á Þjóðhátíð að ráða konu fyrir fjölbreyttari hópsöng

Andri Freyr fasteign
Myndir
Fólk

Andri „á flandri“ selur útsýnisíbúð

Heimur

Alexander Dugin
Heimur

Heili Pútíns: „Þriðja heimsstyrjöldin er hafin“

Heimspekingur sem styður Pútín segir að engin mörk haldi lengur.
Brúður Myrt
Heimur

Brúður myrt í eigin brúðkaupi í Frakklandi

Unglingar Ohio
Myndband
Heimur

Unglingsdrengur skotinn í Ohio

Loka auglýsingu