1
Fólk

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein

2
Heimur

Pentagon birtir ný UFO-gögn

3
Sport

Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi

4
Fólk

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“

5
Pólitík

Landssamband eldri borgara mótmælir nýju komugjaldi í sjúkraþjálfun

6
Innlent

Bíl ekið á hús

7
Heimur

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“

8
Heimur

Trump ræddi við Lindsey Graham skömmu fyrir andlátið

9
Heimur

Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe

10
Heimur

Minnst 27 létust í gríðarlegum bruna á skemmtistað í Bangkok

Til baka

„Sumarnætur á Íslandi geta verið svo kraftmiklar, bjartar og rómantískar“

Tónlistarmaðurinn Auður Lúthersson gefur út glænýtt lag

Auðunn
Auðunn/AuðurTónlistarmaðurinn er að gefa út nýtt lag
Mynd: Aðsend

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, hefur gefið út nýtt lag sem hann segir innblásið af nostalgíu um reykvískar sumarnætur. Lagið blandar saman tilfinningaþrungnum hljómagangi og orkuríkum trommum.

„Þetta lag fjallar líka um þessa sterku tilfinningu að verða skotinn í einhverjum. Ég held að tónlist sé sá miðill sem kemst næst því að fanga augnablik og varðveita þau. Sumarnætur á Íslandi geta verið svo kraftmiklar, bjartar og rómantískar,“ segir Auður í fréttatilkynningu.

Í laginu syngur hann meðal annars:

Hún kyssir mig
undir berum næturhimni
tíminn er að blekkja
flugeldar
sprengjur ofan'í brjóstkassanum
málvillur rökleysi
hugsa ég með framheilanum?

Umslag smáskífunnar prýðir ljósmynd sem Hrafnhildur Lúthersdóttir tók á Ólafsfirði.

„Mig langaði í fallega mynd af sólsetri fyrir lagið og Hrafnhildur systir mín átti þessa geggjuðu mynd frá Ólafsfirði,“ segir Auður.

Söngvarinn, sem er ættaður úr Hafnarfirði, heldur tónleika þann 20. september í Bæjarbíói í heimabæ sínum.

Auðunn býr nú í Los Angeles þar sem hann vinnur við hljóðupptökur og lagasmíðar.

„Mér gengur svaka vel. Ég hef búið í LA núna í tvö ár og er kominn með ágætis tengslanet. Ég fæ að semja tónlist á hverjum degi og var að ljúka tökum á mjög metnaðarfullu tónlistarmyndbandi. Leikstjóri myndbandsins heitir David Telles. Ég lék aðalhlutverk í stuttmyndinni hans Freyr sem var frumsýnd á Tribeca Film Festival og kemur á Hulu í haust.“

Auður segist hlakka mikið til að snúa aftur heim á sviðið í Hafnarfirði.

„Það verður gaman að koma heim til Íslands og syngja í Bæjarbíói! Ég kem fram ásamt hljómsveit og er spenntur að fá að koma fram á móðurmálinu og syngja lögin mín.“

Hægt er að ná í nýja lagið hér.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Minnst 27 létust í gríðarlegum bruna á skemmtistað í Bangkok
Heimur

Minnst 27 létust í gríðarlegum bruna á skemmtistað í Bangkok

Slökkviliðsmönnum tókst að ná tökum á eldinum á um hálftíma.
Landssamband eldri borgara mótmælir nýju komugjaldi í sjúkraþjálfun
Pólitík

Landssamband eldri borgara mótmælir nýju komugjaldi í sjúkraþjálfun

Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi
Sport

Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi

Trump ræddi við Lindsey Graham skömmu fyrir andlátið
Heimur

Trump ræddi við Lindsey Graham skömmu fyrir andlátið

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“
Viðtal
Fólk

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein
Fólk

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein

Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe
Heimur

Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“
Heimur

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“

Pentagon birtir ný UFO-gögn
Myndband
Heimur

Pentagon birtir ný UFO-gögn

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland
Heimur

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst
Heimur

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“
Viðtal
Fólk

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“

Menning

Heyannir á Árbæjarsafni
Myndir
Menning

Heyannir á Árbæjarsafni

Sýnt verður hvernig hey var slegið með ljá, rakað með hrífum og unnið með handafli
Mugison sló í gegn í Básum
Myndband
Menning

Mugison sló í gegn í Básum

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“
Menning

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

Una Torfa verður í Vesturbænum
Menning

Una Torfa verður í Vesturbænum

Loka auglýsingu