1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

3
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

4
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

5
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi

6
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

7
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

8
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

9
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

10
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

Til baka

Þórarinn var lífshættulega háður ópíóðum

„Það er ekkert sem læknar þetta alveg“

Þórarinn Ævarsson
Þórarinn ÆvarssonHefur stýrt stærstu fyrirtækjum landsins

Þórarinn Ævarsson, fyrrverandi forstjóri IKEA og Domino's á Íslandi, telur að hæglát bylting sé að eiga sér stað í íslensku samfélagi þar sem sífellt fleiri dragi úr efnishyggju og leiti inn á við. Hann segir hugvíkkandi efni hafa átt þátt í þeirri þróun hjá mörgum.

Þórarinn er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í hlaðvarpi hans. Þar ræðir hann meðal annars eigin reynslu af kannabisolíu, sem hann segist hafa notað til að draga úr langvinnum verkjum og bæta svefn.

„Ég er búinn að glíma við króníska verki í talsverðan tíma og hef leitað allra leiða til að finna lausnir. Það er ekkert sem læknar þetta alveg, en kannabis hefur reynst mér frábærlega til að slá á verki og hjálpa við svefn og hvíld,“ segir Þórarinn.

Hann segist áður hafa orðið lífshættulega háður ópíóðum og vilji ekki fara aftur þá leið. Hann telur jafnframt tímabært að ræða kannabis og önnur hugvíkkandi efni af meiri yfirvegun og minni fordómum.

Þórarinn tekur þó fram að hann sé ekki að upphefja kannabis og segir neikvæðar hliðar fylgja notkun þess, sérstaklega meðal ungs fólks. Hann telur engu að síður að lögleiðing gæti haft jákvæð áhrif, meðal annars með því að færa sölu frá ólöglegum markaði og auðvelda stjórnvöldum að takmarka aðgengi ungs fólks.

Þórarinn segir eigin viðhorf hafa tekið miklum breytingum. Áður hafi hann dæmt fólk sem neytti kannabis en sjálfur drukkið áfengi án þess að velta því sérstaklega fyrir sér.

„Ég er sannfærður um að það sé hæglát bylting í gangi þar sem stór hópur fólks er að skipta um takt og tengjast sjálfu sér og öðrum,“ segir hann.

Að hans mati hefur mikil efnishyggja og samanburður einkennt íslenskt samfélag lengi. Hröð efnahagsleg uppbygging hafi skilað miklum lífsgæðum en jafnframt haft ákveðinn fórnarkostnað. Hann nefnir streitu, vanlíðan, lífsstílssjúkdóma og tengslarof í því samhengi.

Þórarinn tengir þessa þróun einnig við eigin lífsreynslu. Hann hafi alist upp við lítil efnisleg gæði og því lagt mikla áherslu á að afla peninga og ná árangri. Síðar hafi hann þurft að endurmeta forgangsröðun sína eftir erfið veikindi og vanlíðan.

„Við erum upp til hópa orðin mjög aftengd án þess að gera okkur grein fyrir því og höfum oft á tíðum misst sjónar af því sem raunverulega skiptir máli í lífinu,“ segir Þórarinn og nefnir þar fjölskyldu, vini og samskipti við annað fólk.

Hann segir baráttu sína við þunglyndi og lyfjafíkn hafa orðið til þess að hann ákvað að ræða reynslu sína opinberlega. Viðbrögðin hafi sýnt honum hversu margir glími við vanlíðan og langvarandi verki án þess að hafa fundið lausnir sem henti þeim.

Þórarinn segir það hafa verið mikilvægasta verkefni lífs síns að vinna sig út úr þunglyndi og lyfjafíkn og verða aftur til staðar fyrir fjölskyldu sína. Telur hann mikilvægt að fólk sem hafi fundið leiðir sem geti mögulega hjálpað öðrum þori að segja frá reynslu sinni.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla
Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks
Heimur

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote
Heimur

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl
Innlent

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð
Heimur

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð

Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

Landsliðsmaður Íslands á von á barni
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu
Myndir
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu
Myndir
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

Loka auglýsingu