Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Stal bíl við Skeifuna og setti röng skráningarmerki á hann

Samkvæmt saka­vottorði á maðurinn tals­verðan sakaferil að baki

Skeifan
Skeifan Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Héraðs­dómur Reykja­víkur kvað í gær upp dóm yfir karlmanni fyrir nytja­stuld, skjala­brot, umferðar­lagabrot og þjófnað. Maðurinn var dæmdur í 90 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins.

Samkvæmt ákæru tók maðurinn bifreið ófrjálsri hendi við Skeifuna í Reykjavík í apríl 2024. Hann setti röng skráningar­merki á bifreiðina í blekkingar­skyni og ók henni þannig, sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Í blóðsýni mældist bæði metýlfenidat og morfín. Lögregla stöðvaði aksturinn við Höfða­bakka. Þá var maðurinn einnig ákærður fyrir að stela matvöru að verðmæti rúmlega 17 þúsund krónur úr verslun Krónunnar í júní sama ár.

Maðurinn játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og var málið dæmt án frekari sönnunar­færslu. Samkvæmt saka­vottorði á hann tals­verðan sakaferil að baki, meðal annars fyrri sáttir og dóma vegna aksturs undir áhrifum áfengis og fíkniefna, aksturs sviptur ökurétti og þjófnaðar. Meðal annars var honum árið 2024 gerð refsing í einu lagi þegar skilorð eldri dóms var dæmt upp.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að um ítrekuð brot væri að ræða innan ítrekunar­tíma, bæði hvað varðar akstur undir áhrifum og auðgunar­brot. Var það talið til refsiþyngingar, en skýlaus játning mannsins var á hinn bóginn metin honum til málsbóta. Ekki þótti tilefni til að skilorðs­binda refsinguna í ljósi saka­ferils hans.

Þá var maðurinn dæmdur til að greiða allan sakar­kostnað málsins, samtals 186.888 krónur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning