1
Stjórnandinn

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla

2
Innlent

Segir frá ofbeldi fyrrverandi tengdadóttur

3
Fólk

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista

4
Pólitík

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu

5
Pólitík

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump

Til baka

„Ég þakka fyrir samstarfið“

Jón Þór Hauksson hefur hætt störfum sem þjálfari karlaliðs ÍA í knattspyrnu

Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA
Jón Þór hefur nú lokið keppniHættur þjálfun hjá uppeldisfélaginu sínu ÍA á Akranesi
Mynd: Knattspyrnudeild ÍA.

Jón Þór Hauksson er hættur sem þjálfari ÍA í Bestu deild karla í fótbolta, en liðið situr í botnsæti deildarinnar. Með 9 stig eftir 11 leiki.

Þessi tíðindi af Jóni Þóri koma fram í tilkynningu frá knattspyrnudeild ÍA. Segir þar að ákvörðun um starfslokin hafi verið tekin í sameiningu af Jóni Þóri og stjórn knattspyrnudeildar félagsins, en hann tók við þjálfun ÍA árið 2022.

Liðið endaði í fimmta sæti Bestu deildarinnar í fyrra; var lengi vel í baráttu um Evrópusæti, sem hafðist þó ekki.

Hins vegar hefur gengið upp og ofan í sumar á Íslandsmótinu, og 4-1 tap gegn Aftureldingu í gærkvöld var kornið sem fyllti mælinn.

Ákvörðun var tekin að skipta um þjálfara.

Ekki kemur fram í fréttatilkynningunni hver það sé sem tekur við stjórn liðis, en Dean Martin aðstoðarþjálfari hefur stýrt ÍA í tveimur leikjum í sumar er Jón Þór tók út leikbann og því ekki talið ólíklegt að Dean Martin taki við þjálfun liðsins.

Fréttatilkynning ÍA:

Knattspyrnufélag ÍA tilkynnir að Jón Þór Hauksson hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla.

Ákvörðunin var tekin í samráði milli Jóns Þórs og stjórnar félagsins. Jón Þór tók við þjálfun liðsins þann 1. febrúar 2022 og hefur gegnt starfinu af ábyrgð og festu á þeim tíma sem hann hefur verið hjá félaginu.

Bæði hann og stjórn félagsins voru sammála um að nú væri rétt að gera breytingar, með hagsmuni liðsins og framtíðaruppbyggingu að leiðarljósi.

„Ég vil þakka Knattspyrnufélagi ÍA fyrir samstarfið síðustu ár. Það hefur verið mér bæði lærdómsríkt og ánægjulegt að starfa með leikmönnum og starfsfólki félagsins. Ég óska liðinu og öllum sem að því koma góðs gengis í framtíðinni.“

ÍA þakkar Jóni Þór fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar í næstu verkefnum.

Stjórnin hefur hafið undirbúning að ráðningu nýs þjálfara og verður tilkynnt um framhaldið þegar það liggur fyrir.

F.h. stjórnar Knattspyrnufélags ÍA,

Eggert Herbertsson, formaður.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Segir frá ofbeldi fyrrverandi tengdadóttur
Innlent

Segir frá ofbeldi fyrrverandi tengdadóttur

Stúlkan hafi hótað öllu illu og lagt piltinn í lífshættu.
Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump
Pólitík

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu
Pólitík

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista
Myndir
Fólk

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla
Viðtal
Stjórnandinn

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði
Myndir
Fólk

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði

Hver er Lúkas Geir?
Nærmynd
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

Sport

Skráði sig í sögubækurnar með hvelli
Myndband
Sport

Skráði sig í sögubækurnar með hvelli

Ótrúlegur leikur Bam Adebayo mun seint gleymast
Guðmundur fær tólf mánaða styrk
Sport

Guðmundur fær tólf mánaða styrk

Sigmundur Davíð hrósar innflytjendum
Sport

Sigmundur Davíð hrósar innflytjendum

Íþróttalýsir gagnrýndi ísraelskan keppanda í beinni á Vetrarólympíuleikunum
Sport

Íþróttalýsir gagnrýndi ísraelskan keppanda í beinni á Vetrarólympíuleikunum

Stelpurnar mæta heimsmeisturunum
Sport

Stelpurnar mæta heimsmeisturunum

Reykjavíkurborg leyfir bjórnum að flæða
Sport

Reykjavíkurborg leyfir bjórnum að flæða

Loka auglýsingu