1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

4
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

5
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

6
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

7
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

8
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

9
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

10
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Til baka

Sigmundur Davíð hrósar innflytjendum

Miðflokksformaðurinn vill styrkja íshokkí-íþróttina hér á landi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð GunnlaugssonSigmundur Davíð minnist Fálkanna
Mynd: Víkingur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokkurinn, rifjar upp söguleg tengsl Vestur-Íslendinga við íshokkí á Ólympíuleikum í færslu á samfélagsmiðlinum X, í kjölfar úrslitaleiks karla þar sem Bandaríkin sigruðu Kanada.

„Í dag tapaði Kanada fyrir Bandaríkjunum í úrslitaleik íshokkíkeppni karla á Ólympíuleikunum. Það var fyrsti sigur Bandaríkjanna frá því þeir unnu Sóvíetríkin í sögufrægum leik árið 1980,“ skrifar Sigmundur.

Hann bendir jafnframt á að Kanada hafi lengst af verið sigursælasta þjóðin í greininni. „Kanada hefur unnið oftast allra og sigraði fyrstu íshokkíkeppni Ólympíuleikanna árið 1920 með fræknu liði Vestur Íslendinga,“ segir hann og vísar þar í lið íslenskra innflytjenda í Kanada.

Innflytjendaliðið Winnipeg Falcons keppti fyrir hönd Kanada. „Þá kepptu Fálkarnir (Winnipeg Falcons) fyrir Kanada. Liðið var stofnað af Íslendingum þar í landi og að öllu leyti skipað Íslendingum að frátöldum einum „Englendingi“,“ skrifar hann og bætir við að þannig tali sumir Vestur-Íslendingar enn um aðra þjóðflokka.

Sigmundur segir söguna vel þekkta meðal Vestur-Íslendinga. „Allir sem hafa heimsótt Vestur Íslendinga þekkja þessa sögu. Þar er minning liðsins enn í hávegum höfð og við ættum að gera það líka, m.a. með því að styðja við íshokkí á Íslandi,“ skrifar hann.

Hann nefnir jafnframt að í merki íslenska íshokkílandsliðsins sé vísun í þennan arf. „Í merki íslenska landsliðsins má sjá skemmtilega tilvísun í þetta fræga lið, lítið hlynslauf (tákn Kanada), til minningar um hinn frækna sigur Fálkanna,“ segir hann.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

„Ég hef engin takmörk“
Fimm bjargað úr báti og kona sótt úr sjó á Kanaríeyjum
Heimur

Fimm bjargað úr báti og kona sótt úr sjó á Kanaríeyjum

Kalla eftir aukinni réttarvernd dýra
Innlent

Kalla eftir aukinni réttarvernd dýra

Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza
Heimur

Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum
Heimur

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi
Heimur

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum
Fólk

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn
Heimur

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“
Heimur

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti
Myndband
Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti

„Hann þarf að læra af þessu.“
Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku
Sport

Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar
Sport

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan
Sport

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli
Myndir
Sport

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð
Sport

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð

Loka auglýsingu