
Dramatísk myndskeið sýnir augnablikið þegar ferðamenn komu móður og dóttur hennar til bjargar eftir að þær féllu í ískalda á í Kína.
Samkvæmt heimildum stökk móðirin út í ána á ferðamannasvæðinu Kansas Scenic Area í Xinjiang til að bjarga barni sínu. Skömmu síðar tók straumurinn hana með sér niður ána, sem varð til þess að vegfarendur á bökkunum gripu inn í.
Atvikið átti sér stað 10. febrúar 2025 en var birt í Vestrænum fjölmiðlum í gær. Ferðamenn sem stóðu við árbakkann fóru úr yfirhöfnum sínum og réttu litlu stúlkunni fötin til að halda í, og tókst með samstilltu átaki að draga hana í land.
Móðirin var í kjölfarið dregin í öryggi á gagnstæða árbakkann með aðstoð þriggja manna.
Engin meiðsl hlustust af atvikinu.
Yfirvöld minntu heimamenn og ferðamenn á að vera á varðbergi nálægt ám, forðast að ganga á ísilögðum svæðum og hafa náið eftirlit með börnum nálægt straumhörðu vatni.

Komment