1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

3
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

4
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

5
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

6
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

7
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

8
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

9
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

10
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

Til baka

Gunnar Smári frá vegna alvarlegra veikinda

„Það er skrítið að vera svona, ekki þjáður en alveg glataður einhvern veginn.“

Gunnar Smári Egilsson
Gunnar Smári EgilssonGunnar Smári á að gera sem minnst næstu daga
Mynd: Samstöðin/Skjáskot

Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, greinir frá því í færslu á Facebook að hann muni ekki vera við störf næstu daga eftir að læknir sendi hann heim og ráðlagði honum að gera sem minnst. Hann segist glíma við alvarleg heilsufarsvandamál sem hafi dregið verulega úr orku hans og starfsgetu.

Í færslunni lýsir Gunnar Smári stöðu sinni með eftirfarandi orðum:

„Ég verð ekki á Samstöðinni næstu daga, var sendur heim af lækni til að gera sem minnst. Ég er ekki beint veikur en svolítið bilaður, er með blóðtappa í fæti, lungum og hjarta og ekkert af þessu virkar sem skyldi, ég er því orkulítill og einhvern veginn þrjátíu árum eldri en ég var fyrir nokkrum vikum.“

Hann segir ástandið sérkennilegt og erfitt að sætta sig við, þrátt fyrir að vera ekki í miklum líkamlegum þjáningum.

„Það er skrítið að vera svona, ekki þjáður en alveg glataður einhvern veginn.“

Gunnar Smári lýsir því að hann hafi alla tíð haft mikla starfsorku og getað tekist á við flókin verkefni, en nú sé staðan allt önnur.

„Ég hef alla tíð verið blessaður með öflugri vél innra með mér, hef getað gert allt sem mér hefur dottið í hug, jafnvel ráðist á ókleyfa múra. En nú er ég magnþrota gagnvart minnstu hindrunum, get ekki hugsað mig í gegnum neitt, ekki drifið nokkurn skapaðan hlut af.“

Hann greinir jafnframt frá því að fyrirhugað hafi verið að grípa til inngrips vegna hjartsláttar, en það hafi ekki verið talið öruggt vegna blóðtappa í hjartanu.

„Í gær stóð til að gefa mér stuð svo hjartað færi að slá í eðlilegum takti en það er víst ekki hægt þegar það finnast blóðtappar í hjartanu, sem gætu stokkið upp í heila og strokað út allskyns getu og persónuleika. Ég verð því að lifa sem maður á tíræðisaldri einhverja daga til viðbótar.“

Í færslunni útskýrir Gunnar Smári einnig hvers vegna hann kaus að greina opinberlega frá heilsufari sínu

„Hvers vegna er ég að segja ykkur frá þessu? Ég veit að mörg ykkar horfið og hlustið á Samstöðina og vildi ekki líða þar burt eins og reykurinn, vildi hósta aðeins í hljóðnemann og tilkynna vonandi stuttar fjarvistir.“

Hann veltir jafnframt fyrir sér eðli tjáningar á samfélagsmiðlum og mikilvægi þess að deila ekki aðeins sigri og sannfæringu heldur einnig óvissu og myrkari hugsunum.

„Svo hef ég verið að velta fyrir mér tjáningu inn í þessum helli sem Facebook er, hvort við ættum ekki líka að deila myrkum hugsunum, döprum og óljósum, hvort það sé ekki nauðsynleg íblöndunarefni með öllum þessum sigrum og sannfæringu sem lekur af mörgu sem hér er sagt og skrifað.“

Að hans mati er slík tjáning forsenda raunverulegs samfélags.

„Með tjáningu okkar sköpum við samfélag og það verður aldrei mannlegt og frjótt nema við blöndum það úr öllum mannlegum tilfinningum, ekki bara þeim sem tilheyra óskalöndum okkar.“

Í lok færslunnar segir Gunnar Smári að hann eigi erfitt með að klára hugsanir sem áður hefðu verið honum auðveldar og lýsir því hvernig heilsan setji honum skorður.

„En ég hef bara ekki þrek til að klára þessa hugsun, lungu mín grípa ekki þennan anda og hjarta mitt finnur ekki réttan takt.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki
Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki

Lík lágu á víð og dreif um götuna eftir árásina
Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999
Innlent

Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir
Innlent

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Pólitík

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

„Einn af kostunum við að eldast er að hafa gott og umhyggjusamt fólk í kringum sig“
Stefán má loksins gefa blóð aftur
Fólk

Stefán má loksins gefa blóð aftur

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins
Myndir
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

Loka auglýsingu