
Hljómsveitin Fjöll gefur í dag út nýtt lag, „Holur“, sem er fjórða lagið sem hljómsveitin sendir frá sér.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá hljómsveitinni er lagið Holur afslappað indírokk með óvæntum hliðarskrefum og er það aðgengilegt í tveimur útgáfum, einni alltof langri, sem er þó nákvæmlega nógu löng, eins og það er orðað í tilkynningunni og annarri styttri.
Hljómsveitin undirbýr sig jafnframt fyrir tónleika, en sveitin mun spila á Lemmy að kvöldi sumardagsins fyrsta, 24. apríl næstkomandi. Fjöll er nýkomin úr upptökuferð til Valencia, þar sem lagður var grunnur að fyrstu stóru plötu sveitarinnar sem nú er í vinnslu. Bandið er því í dúndurformi og hlakkar til að kynna nýtt efni á Lemmy, segir í fréttatilkynningunni.
Fjöll eru þeir Guðmundur Annas Árnason söngvari og hljómborðsleikari, Snorri Gunnarsson söngvari og gítarleikari, Guðmundur Freyr Jónasson gítarleikari, Kristinn Jón Arnarson bassaleikari og Ragnar Þór Ingólfsson trommari.
Komment