1
Minning

Hallgrímur Jónasson er fallinn frá

2
Fólk

Gamaldags en notalegt hús í Mosfellsbæ til sölu

3
Innlent

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd

4
Heimur

Gengu í takt á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna með hvítar grímur

5
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

6
Innlent

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

7
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

8
Menning

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

9
Innlent

Eftirlýstur maður handtekinn

10
Heimur

Vélmenni missti stjórn á sér í miðri sýningu

Til baka

Ragnheiður Steindórsdóttir fékk heilablóðfall á Spáni

„Mamma er alveg skýr í kollinum og enn hún sjálf eins og við þekkjum hana“

Ragnheiður Steindórsdóttir
Ragnheiður SteindórsdóttirLeikkonan góðkunna er á batavegi
Mynd: Facebook

Ragnheiður Steindórsdóttir, leikkona og baráttukona, fékk heilablóðfall á Spáni milli jóla og nýárs eftir að hafa misst máttinn í gönguferð í sveitinni þar sem hún dvaldi. Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem börn hennar, Steindór Grétar Jónsson og Margrét Dórothea Jónsdóttir, hafa birt fyrir hennar hönd.

Ragnheiður Steindórsdóttir
Ragnheiður SteindórsdóttirRagnheiður hefur verið fastráðin hjá Þjóðleikhúsinu frá 1983
Mynd: Þjóðleikhúsið

Í færslunni lýsa þau því hvernig móðir þeirra lenti í alvarlegu áfalli fjarri heimahögum en tókst engu að síður að bjarga sér við erfiðar aðstæður. „Hún varð því miður fyrir því óláni að missa máttinn þegar hún var ein í gönguferð í sveitinni á Spáni á milli jóla og nýárs. Á ótrúlegan hátt náði hún að bjarga sér, vekja athygli íbúa á svæðinu og fá hjálp,“ skrifa þau.

Ragnheiður var í kjölfarið flutt á sjúkrahús í Málaga, þar sem Steindór var henni innan handar. „Hún var flutt á spítala í Malaga í fylgd með Steindóri og þar kom í ljós að hún hafði fengið heilablóðfall,“ segir í færslunni.

Samkvæmt börnum hennar er ástand Ragnheiðar stöðugt og hugur hennar skýr. „Mamma er alveg skýr í kollinum og enn hún sjálf eins og við þekkjum hana en þarf tíma og þjálfun til að endurheimta kraft í líkamanum,“ skrifa þau og bæta við að hún verði flutt heim til Íslands til frekari meðferðar. „Hún verður flutt til Íslands á morgun í fylgd með lækni og Steindóri og hlakkar til að takast á við endurhæfinguna framundan.“

Þau nefna einnig að dvölin á spænska sjúkrahúsinu hafi verið krefjandi en ekki án bjartari hliða. „Það verður líka gott að geta talað við heilbrigðisstarfsfólk á íslensku þó að mömmu hafi nánast tekist að læra spænsku frá grunni á þessum tveimur vikum á sjúkrahúsinu,“ segir í færslunni.

Í lokin minna systkinin á baráttu móður sinnar fyrir mannúðarmálum, einkum í þágu Palestínu í gegnum félagið Vonarbrú. „Öll sem þekkja hana vita hvað hún hefur verið virk, öflug og lífsglöð og að hún hafi látið sig málefni Palestínu varða með félaginu Vonarbrú,“ skrifa þau og benda á að starf hennar hafi skipt sköpum fyrir fjölskyldur á Gaza.

Þau hvetja almenning til að styðja félagið meðan Ragnheiður er frá störfum: „Við vitum að það mundi gleðja hana ef Vonarbrú fengi góð fjárframlög næstu vikurnar til að bæta upp fyrir fjarveru hennar. Við hvetjum því öll til að styrkja stríðshrjáðar barnafjölskyldur á Gaza með því að leggja inn á reikning almannaheillafélagsins Vonarbrúar (kennitala: 420625-1700, reikningsnúmer: 0565-26-006379).“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

„Það er hreinasta skemmtun að fylgjast með viðbrögðum fólks af ólíkum þjóðernum“
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

Flugvél nauðlenti í New York
Myndband
Heimur

Flugvél nauðlenti í New York

Heyannir á Árbæjarsafni
Myndir
Menning

Heyannir á Árbæjarsafni

Arnar Már hrækti á lögreglumann
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón
Innlent

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn
Heimur

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni
Myndir
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Sex slasaðir eftir að rúta valt í Suðursveit
Landið

Sex slasaðir eftir að rúta valt í Suðursveit

Mugison sló í gegn í Básum
Myndband
Menning

Mugison sló í gegn í Básum

Fundu lík ungs manns í vinsælu síki
Heimur

Fundu lík ungs manns í vinsælu síki

Ljósmyndir af fólki í neyð bannaðar
Heimur

Ljósmyndir af fólki í neyð bannaðar

Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

„Það er hreinasta skemmtun að fylgjast með viðbrögðum fólks af ólíkum þjóðernum“
Óska eftir nýjum presti í Kópavogi
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

Arnar Már hrækti á lögreglumann
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón
Innlent

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón

Loka auglýsingu