1
Minning

Hallgrímur Jónasson er fallinn frá

2
Fólk

Gamaldags en notalegt hús í Mosfellsbæ til sölu

3
Innlent

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd

4
Heimur

Gengu í takt á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna með hvítar grímur

5
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

6
Innlent

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

7
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

8
Menning

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

9
Innlent

Eftirlýstur maður handtekinn

10
Heimur

Vélmenni missti stjórn á sér í miðri sýningu

Til baka

Segir Ísland gæti orðið „Puerto Rico norðursins“

Illugi Jökulsson spurði gervigreindina um framtíð Íslands ef Grænland yrði innlimað í Bandaríkin.

island-ameriska

Illugi Jökulsson, rithöfundur og fjölmiðlamaður, veltir fyrir sér mögulegri stöðu Íslands ef Bandaríkin tækju þá ákvörðun að innlima Grænland eða leggja það undir sig með einhverjum hætti. Í Facebook-færslu sinni segir Illugi að hann hafi lagt „mjög hlutlausa spurningu“ fyrir gervigreind um hvert hlutskipti Íslands gæti orðið í slíkri sviðsmynd og birtir svarið, sem mörgum þykir ansi dökkt.

Samkvæmt svarinu myndi innlimun Grænlands valda mestu stjórnmálakreppu á Norðurlöndum og innan NATO frá upphafi bandalagsins. Þótt Evrópuríki myndu vart grípa til hernaðaraðgerða gegn Bandaríkjunum, væri talið að sambandið myndi stórskaðast og harðorð mótmæli fylgja í kjölfarið.

Í greiningunni kemur fram að Ísland yrði landfræðilega lykilríki fyrir Bandaríkin. Keflavíkurflugvöllur og íslenskar hafnir yrðu taldar ómissandi fyrir birgðaflutninga, stjórnsýslu og hernaðarviðveru Bandaríkjanna á Grænlandi, einkum yfir vetrartímann. Þá yrði algjör stjórn á loftrýminu milli Íslands og Grænlands talin nauðsynleg til að koma í veg fyrir afskipti annarra ríkja.

Gervigreindin bendir á að afar ólíklegt sé að Bandaríkin myndu láta Ísland vera afskiptalaust í slíkri stöðu. Þvert á móti yrði Ísland skyndilega „nágranni“ Bandaríkjanna á nýjan hátt, sem gæti leitt til aukinnar hervæðingar og varanlegrar endurkomu bandarísks hers til Keflavíkur í mun stærri mæli en áður. Markmiðið væri að tryggja að íslensk stjórnvöld gætu hvorki dregið stuðning sinn til baka né leitað annarra varnaraðila.

Í svarinu er jafnframt varað við því að Ísland gæti lent „milli steins og sleggju“: annars vegar með sterk tengsl við Norðurlönd og Evrópu, sem væru í áfalli vegna aðgerða Bandaríkjanna, og hins vegar með öryggi sitt algjörlega háð Bandaríkjunum. Þrýstingur gæti komið frá ESB og Norðurlandaráði um að takmarka aðstöðu Bandaríkjahers, en slíkt gæti leitt til harkalegra viðbragða, jafnvel hernáms á lykilinnviðum „til að tryggja stöðugleika“.

Efnahagslegar afleiðingar gætu einnig orðið miklar. Ef Evrópa setti viðskiptabann á nýjan „bandarískan norðurslóðageira“, þar með talið Ísland, gæti landið neyðst til að færa sig alfarið inn á bandarískt efnahagssvæði. Í greiningunni er jafnvel dregin upp mynd af Íslandi sem „Puerto Rico norðursins“ – formlega sjálfstæðu ríki sem í reynd væri undir hernaðar- og efnahagslegum yfirráðum Bandaríkjanna.

Að lokum er niðurstaðan sú að ef Grænland yrði innlimað myndi Ísland hætta að vera „brú yfir hafið“ og verða í staðinn framvörður Bandaríkjanna á norðurslóðum. Hvort sem sjálfstæði landsins héldi sér að nafninu til eða ekki, yrði Ísland í raun hluti af varnarkerfi Norður-Ameríku – „hvort sem okkur líkaði betur eða verr“, eins og Illugi dregur upp myndina.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

„Það er hreinasta skemmtun að fylgjast með viðbrögðum fólks af ólíkum þjóðernum“
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

Flugvél nauðlenti í New York
Myndband
Heimur

Flugvél nauðlenti í New York

Heyannir á Árbæjarsafni
Myndir
Menning

Heyannir á Árbæjarsafni

Arnar Már hrækti á lögreglumann
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón
Innlent

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn
Heimur

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni
Myndir
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Sex slasaðir eftir að rúta valt í Suðursveit
Landið

Sex slasaðir eftir að rúta valt í Suðursveit

Mugison sló í gegn í Básum
Myndband
Menning

Mugison sló í gegn í Básum

Fundu lík ungs manns í vinsælu síki
Heimur

Fundu lík ungs manns í vinsælu síki

Ljósmyndir af fólki í neyð bannaðar
Heimur

Ljósmyndir af fólki í neyð bannaðar

Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

„Það er hreinasta skemmtun að fylgjast með viðbrögðum fólks af ólíkum þjóðernum“
Óska eftir nýjum presti í Kópavogi
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

Arnar Már hrækti á lögreglumann
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón
Innlent

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón

Loka auglýsingu