1
Pólitík

Lilja Rafney missir sæti sitt

2
Peningar

Penninn Eymundsson skellir í lás

3
Innlent

„Stolinn“ matarvagn auglýstur til sölu

4
Innlent

Verðmætum stolið úr bíl Björns

5
Minning

Guðmundur Andri minnist látins bekkjarbróður

6
Innlent

Tvö börn hafa kært Írisi „eltihrelli“

7
Heimur

„Rusldrottning“ Svíþjóðar gæti fengið sex ára dóm

8
Landið

Séra Karen fer heim á Snæfellsnes

9
Minning

Vilhjálmur Rafnsson er fallinn frá

10
Pólitík

Bráðamóttakan stækkuð til muna

Til baka

Fjölskylda brúðgumans sem lést í steggjun á Spáni syrgir „fallega drenginn“ sinn

„Þú ert mitt Waterloo.“

Oliver
Oliver og PaigeSorg ríkir í fjölskyldu og vinahópi Olivers.

Oliver Holroyd, 29 ára eins barns faðir frá Halifax á Englandi, lést þann 22. mars eftir að hafa fallið aftur fyrir sig af barstól á barnum Funky Flamingo á Benidorm, í miðju steggjapartýi þar sem hann var með föður sínum og vinum.

Oliver missti meðvitund eftir að höfuð hans skall í gólfið. Starfsfólk staðarins reyndi hjartahnoð í um það bil 15 mínútur áður en sjúkrabíll kom á vettvang. Læknar gáfu honum adrenalín og reyndu frekari endurlífgun, en allt kom fyrir ekki.

Oliver átti að giftast unnustu sinni, Paige Whiteley, í næsta mánuði. Fjölskylda og vinir hafa birt hjartnæmar kveðjur á samfélagsmiðlum.

Móðir hans, Karen, skrifaði:

„Við söknum þín svo mikið, Oliver Holroyd. Fallegi drengurinn okkar, lífið er óbærilegt án þín. Elskum þig til tunglsins og til baka, strákur ... Get varla beðið eftir að við verðum öll saman aftur.“

Unnusta hans, Paige, skrifaði:

„Oliver minn, ég get ekki trúað þessu. Þetta ætti ekki að vera raunverulegt. Ég sakna þín svo mikið. Þú varst besti vinur minn, faðir fallega drengsins okkar, besti hundapabbi allra tíma, unnusti minn, sálufélagi minn.

Ekkert verður eins aftur, en ég lofa að reyna mitt besta fyrir litla drenginn okkar. Ég vona að þú sjáir okkur á hverjum degi og að ég geri þig stoltan. Ég er svo miður mín að þetta kom fyrir þig, elskan. Ég elska þig af öllu hjarta, að eilífu og alltaf. Þangað til við hittumst aftur, elskan. Þú ert mitt Waterloo.“

Paige deildi einnig hlekk á JustGiving-síðu þar sem vinur Olivers, Ben Capper, safnar fé fyrir Stroke Foundation. Ben hyggst hlaupa í Leeds-maraþoninu í minningu vinar síns. Á söfnunarsíðunni segir:

„Þann 22. mars misstum við kæran vin okkar, Oliver, vegna heilablóðfalls, aðeins 29 ára gamlan. Hann lætur eftir sig fallega unnustu og eins árs son. Ég hleyp maraþonið í hans nafni til að safna fé og vekja athygli á baráttu samtakanna.“

Spænska lögreglan gaf út yfirlýsingu eftir andlátið:

„Við getum staðfest að maður fékk einhvers konar heilsuvandamál og lést á vettvangi. Hann fékk aðstoð frá þeim sem voru á vettvangi og síðar sjúkraflutningamönnum sem komu að. Dánarorsök er óþekkt.“

Gaston Luciano, barstjóri Funky Flamingo, sagði við Mail

„Ég var sjálfur að framkvæma hjartahnoð ásamt öðrum viðskiptavini. Hann sýndi viðbrögð í um 60 sekúndur, svo ekkert meira. Við reyndum í um 15 mínútur áður en sjúkrabíllinn kom, og þeir héldu áfram í um það bil 45 mínútur. Þeir gáfu honum adrenalín og tengdu hann við tæki, þeir gerðu allt sem þeir gátu. Þetta var svo sorglegt. Vinir hans voru í losti fyrst, en svo rann raunveruleikinn upp fyrir þeim, þeir grétu og voru niðurbrotnir.“

Einn sjónarvottur lýsti því að lögreglubílar og tveir sjúkrabílar hefðu verið fyrir utan barinn. Annar lýsti miklu blóði sem rann frá höfði Olivers.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


cocaine kókaín
Heimur

Barbie í lykilhlutverki í fíkniefnaheimi Suður-Ameríku

Flugvallastarfsmaðurinn
Myndband
Heimur

Starfsmenn flugfélags sem hæddust að viðskiptavini sagt upp

Marta Wieczorek
Innlent

Opnað fyrir tilnefningar um „Reykvíking ársins“

Jón Gnarr árið 2025
Fólk

Jón Gnarr át úldinn sviðakjamma

matarvagn páll hafþór
Innlent

„Stolinn“ matarvagn auglýstur til sölu

Karl III
Heimur

Karl konungur pirraðist á minningarathöfn um Sigurdaginn

shutterstock_2462352431
Menning

Nemo fordæmir þátttöku Ísraels í Eurovision og gagnrýnir bann á Pride-fánum