1
Heimur

Hátt í 100 veiktust af nóró-veiru á jólahlaðborði

2
Fólk

Eru komnar með nóg af Helga Björns

3
Menning

Emmsjé Gauti svarar dómi Jónasar Sen

4
Peningar

Annþór stofnar fyrirtæki

5
Heimur

Bresk fjölskylda reyndi að koma látinni konu í flug

6
Fólk

Selja einbýli við framkvæmdastjóragötu

7
Innlent

Neyðarboð barst frá strætisvagni

8
Heimur

Ungur mótorhjólamaður lést eftir árekstur á Kanarí

9
Heimur

Baba Vanga spáir vitundarvakningu árið 2026

10
Innlent

Ingibjörg hæfari en Eiríkur Elís

Til baka

Flytur ávarp hjá samtökum sem sæta rannsókn

Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra gagnrýndur fyrir hvítþvott

Jóhann Páll Jóhannsson
Jóhann Páll Jóhannsson ráðherraVill að leikreglum sé fylgt.
Mynd: Víkingur

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mun halda opnunarávarp á haustfundi SVEIT (Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði) í næstu viku en samtökin hafa verið harðlega gagnrýnd af stéttarfélögum landsins og sæta þau rannsókn Samkeppniseftirlitsins.

Hafa samtökin verið sökuð um að fara á svig við lög með því að hafa stofnað stéttarfélagið Virðingu, sem önnur stéttarfélög hafa kallað gervistéttarfélag, sem berst ekki fyrir réttindum félagsmanna heldur grefur undan þeim.

Segist standa með stéttarfélögum

Mannlíf hafði samband við Jóhann Pál að til spyrja hann út í ástæður þess af hverju hann taki þátt í þessum fundi og hvað hann muni ræða en Jóna Þórey Pétursdóttir, aðstoðarmaður Jóhanns, svaraði fyrirspurnum Mannlífs fyrir hönd Jóhanns.

„Erindi ráðherra fjallar um breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits sem eru í farvatninu og sem umhverfisráðherra og atvinnuvegaráðherra kynntu á blaðamannafundi fyrr í þessum mánuði,“ sagði Jóna í skriflegu svari.

„Hvað varðar spurningarnar að öðru leyti þá er afstaða ráðherra skýr og hefur komið ítrekað fram í þingræðum hans á síðustu árum: rík stéttarfélagsaðild og skipulagður vinnumarkaður eru lykillinn að velferð launafólks á Íslandi og límið í norrænu velferðarþjóðfélagi. Atvinnurekendur og samtök þeirra verða að virða leikreglurnar og gul stéttarfélög eru meinsemd sem þarf að uppræta.“

Efling ekki hrifið af þátttöku ráðherra

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur sent ráðherra áskorun um að hætta við þátttöku sína á viðburðinum.

„Ég lýsi furðu minni á því að þú skulir kjósa að taka þátt í viðburði á vegum SVEIT sem augljóslega þjónar þeim tilgangi að hvítþvo samtökin og ljá þeim yfirbragð virðuleika. Það kemur mér á óvart að þú viljir láta nota þig og stöðu þína sem ráðherra í ríkisstjórn Íslands á þennan hátt,“ segir í áskorun Sólveigar Önnu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Annþór stofnar fyrirtæki
Peningar

Annþór stofnar fyrirtæki

Segist hafa snúið við blaðinu
Trump flaug mun oftar með einkaþotu Epstein en áður var talið
Heimur

Trump flaug mun oftar með einkaþotu Epstein en áður var talið

Hitinn nær allt að 20 gráðum um jólin
Landið

Hitinn nær allt að 20 gráðum um jólin

Byrlaði eiginkonunni ólyfjan um árabil og nauðgaði
Heimur

Byrlaði eiginkonunni ólyfjan um árabil og nauðgaði

Ökumaður stórslasaði konu við Pizzuna
Innlent

Ökumaður stórslasaði konu við Pizzuna

„Er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu orðin útibú frá Miðflokknum?“
Innlent

„Er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu orðin útibú frá Miðflokknum?“

Umráðamaður sparkaði ítrekað í hund
Innlent

Umráðamaður sparkaði ítrekað í hund

Lúxus þakíbúð í miðborginni til sölu
Myndir
Fólk

Lúxus þakíbúð í miðborginni til sölu

Búðarþjófur beindi byssu að lögregluþjóni
Myndband
Heimur

Búðarþjófur beindi byssu að lögregluþjóni

Neyðarboð barst frá strætisvagni
Innlent

Neyðarboð barst frá strætisvagni

Girnd á leiðinni undir jólatréð
Viðtal
Menning

Girnd á leiðinni undir jólatréð

Selja einbýli við framkvæmdastjóragötu
Myndir
Fólk

Selja einbýli við framkvæmdastjóragötu

Pólitík

Össur lofar frammistöðu Valkyrjanna í Silfrinu
Pólitík

Össur lofar frammistöðu Valkyrjanna í Silfrinu

Gefur lítið fyrir frammistöðu formanns Sjálfstæðisflokksins
Sanna tilkynnir framboð
Myndband
Pólitík

Sanna tilkynnir framboð

Verkefnastjóri Miðflokksins vill ekki sjá „múslímskt höfuðfat“ á Íslandi
Pólitík

Verkefnastjóri Miðflokksins vill ekki sjá „múslímskt höfuðfat“ á Íslandi

Dóra Björt komin í Samfylkinguna
Pólitík

Dóra Björt komin í Samfylkinguna

„Er ekki kominn tími til að tala um eitthvað annað en útlendinga, t.d. húsnæðismál eða eitthvað?“
Pólitík

„Er ekki kominn tími til að tala um eitthvað annað en útlendinga, t.d. húsnæðismál eða eitthvað?“

„Hvað er eiginlega að þessu andskotans pakki í stjórnarandstöðunni?“
Pólitík

„Hvað er eiginlega að þessu andskotans pakki í stjórnarandstöðunni?“

Loka auglýsingu