1
Fólk

Leikarahjón selja huggulega íbúð í Laugardalnum

2
Heimur

Ferðamaður í lífshættu eftir alvarlegt slys á Tenerife

3
Peningar

Halldór Benjamín og félagar halda áfram að mokgræða

4
Innlent

MAST varar við leysiefnum í hrísgrjónum

5
Innlent

Strætó stofnaði lífi ökumanna í hættu

6
Pólitík

„Halda íslenskum neytendum í heljargreipum“

7
Fólk

Selja óklárað einbýli á 300 milljónir

8
Pólitík

Olga býður sig fram og varar við fasisma

9
Heimur

Skólastjóri í Svíþjóð grunaður um nauðgun á barni

10
Heimur

Framleiðandi þáttaraðarinnar Tehran fannst látinn á hótelherbergi

Til baka

„Fólk deyr úr einelti”

Helgi Hrafn Gunnarsson talar um slaufunarmenninguna í nýjasta hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar

Helgi Hrafn
Helgi Hrafn GunnarssonHelgi Hrafn er nýjast gestur Sölva
Mynd: YouTube-skjáskot

Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, segist aldrei geta samþykkt að það sé í lagi að meiða fólk til hlýðni við ákveðnar skoðanir. Helgi, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar skrifaði fyrir skömmu færslu þar sem hann gagnrýndi slaufunaræðið sem hér gekk yfir fyrir nokkrum árum. Hann segist enn ekki hafa lesið viðbrögðin við því sem hann skrifaði á Facebook, enda sé hann meðvitaður um að mörg skoðanasystkyna hans almennt séu ósammála honum þegar kemur að þessu:

„Ég var alveg þessarrar skoðunar þegar þetta tímabil gekk yfir. En það hefði ekkert þýtt að viðra þessa skoðun þá. Þú gerir ekki mikið í miðju snjóflóði annað en að rúlla bara með því. Það má alveg segja að ég hafi sýnt ákveðna meðvirkni á þessu tímabili, en ég var líka í grunninn sammála mörgu af því sem fólk var að berjast fyrir. En aðferðirnar voru bara rangar. Það er fullt af fólki mín megin í pólitík sem er á sömu skoðun og ég, en þorir bara ekki að segja það af ótta við félagsleg viðbrögð. Ég var það líka lengi og ég hef ekki ennþá lesið „commentin” við því sem ég skrifaði á Facebook, af því að mig langar ekki að loka á vini mína, þó að við séum ósammála þegar kemur að þessu. Ég veit að margir vina minna eru með aðra skoðun en ég á þessu, en ég get bara ekki samþykkt þá skoðun að það sé réttlætt að meiða fólk til hlýðni við ákveðnar skoðanir. Það er það sem birtist óafvitandi í mörgum af þessum hugmyndum og ég er bara ósammála því,” segir Helgi og heldur áfram:

„Vonandi erum við loksins komin á þann stað að fólki megi tjá þessa tegund af skoðunum án þess að vera óttaslegið við að missa vinnuna eða annað þvíumlíkt. Svona tímabil líða alltaf hjá, en þetta tímabil var á margan hátt bara alls ekki í lagi. Þetta var ákveðin tegund af ofbeldismenningu, þar sem hópar fólks tóku sig saman og meiddu og skemmdu fyrir þeim sem voru þeim ósammála. Svo fylgdu þessu miklir hetjustælar og kátína yfir því að hafa eyðilagt fyrir einhverjum. Það var svo bara réttlætt með að fólk ætti þetta skilið af því að það væri í forréttindastöðu eða annað slíkt. Það er ekkert sem réttlætir að leggja fólk í rúst og eyðileggja líf þeirra. Fólk deyr úr einelti og þeir sem ekki hafa lent í slíku hafa ekki skilning á því hvað það er alvarlegt. Það er ógeðsleg staða að vera einn og varnarlaus í samfélagi með fólki sem lítur út eins og þú, nema það hatar þig. Það er eitt hvort einhver málsstaður sé góður, en svo er allt annar hlutur hvaða aðferðir þú notar til að berjast fyrir málsstaðnum.“

Í þættinum tala Helgi og Sölvi um þá tilhneigingu að skilgreina hluti út frá hópum en ekki einstaklingum og hvernig hægt sé að taka það út í öfgar. Helgi segir að það geti skemmt fyrir málsstaðnum ef allt sé sett undir gleraugu þess hvaða þjóðfélagshóp þú tilheyrir:

„Það er allt í lagi að greina hluti út frá ákveðnum hópum til þess að skilja samfélagið betur og hvað býr að baki. Eins og til dæmis að yfirgnæfandi meirihluti forstjóra í fyrirtækjum séu hvítir karlmenn á ákveðnum aldri. Það er alveg klárlega „relevant” þegar verið er að greina samfélagið og skilja hvaðan við erum að koma og hvað þurfi mögulega að bæta. En þegar við erum fari að dæma fólk nær eingöngu á grundvelli kyns og kynþáttar, þá erum við komin á ranga braut. Við kölluðum það einu sinni bara sexisma og rasisma. Þegar fólk fer of langt í öfgar í þá átt að skilgreina allt á þennan hátt, þá endar það á að skemma það sem í grunninn var góður málsstaður. Þetta getur svo oft endað með því að fólk sem raunverulega er að berjast fyrir mannréttindum, lýðræði og betra samfélagi verður sjálft fyrir barðinu á fólki sem tekur málstaðinn í öfgar.”

Helgi Hrafn segist almennt þeirrar skoðunar að það sé rangt að reyna að útiloka ákveðnar skoðanir eða banna ákveðnu fólki að fá „platform”. Hins vegar lifum við á tímum þar sem þeir sem hafa náð langt í að einfalda skilaboð sín nái stundum auðveldar í gegn, sama hvort þeir segi satt eða ekki:

„Þú færð það ekki upp úr mér að ég sé á móti umræðu. Þó að sumar skoðanir séu mjög slæmar er alls ekki endilega rétt að þagga þær, heldur þvert á móti taka rökræðuna. Hins vegar lifum við á tímum þar sem ákveðin valdhyggjuöfl hafa náð inn og það þarf að vera vel undirbúinn til þess að rökræða við valdhyggju-fanta, af því að þeir hafa ekki mikinn áhuga á vitsmunum og rökstuðningi. Það er mikil vinna að vera það vel undirbúinn að þú getir sigrað rökræður við einhvern sem hefur engan áhuga á sannleikanum. Raunveruleikinn og lífið geta verið flókin fyrirbæri og þess vegna geta verið takmörk fyrir því hvað það er hægt að einfalda sannleikann mikið. Það eru hins vegar engin takmörk fyrir því hvað þú getur einfaldað lygina mikið, þannig að á þann hátt er lygin alltaf með ákveðið forskot.”

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Íþróttalýsir gagnrýndi ísraelskan keppanda í beinni á Vetrarólympíuleikunum
Sport

Íþróttalýsir gagnrýndi ísraelskan keppanda í beinni á Vetrarólympíuleikunum

„Adam Edelman hefur birt fjölda skilaboða á samfélagsmiðlum þar sem hann styður þjóðarmorðið á Gaza.“
Ildar „Scar“ Galiyev yfirheyrður vegna morðsins á Einár
Heimur

Ildar „Scar“ Galiyev yfirheyrður vegna morðsins á Einár

Selja óklárað einbýli á 300 milljónir
Myndir
Fólk

Selja óklárað einbýli á 300 milljónir

Ráðist á Óskarsverðlaunaleikstjóra á heimili hans
Heimur

Ráðist á Óskarsverðlaunaleikstjóra á heimili hans

Meintur fíkniefnasali ákærður fyrir peningaþvætti
Innlent

Meintur fíkniefnasali ákærður fyrir peningaþvætti

Strætó stofnaði lífi ökumanna í hættu
Myndband
Innlent

Strætó stofnaði lífi ökumanna í hættu

Áreitti starfsfólk og braut rúðu
Innlent

Áreitti starfsfólk og braut rúðu

Olga býður sig fram og varar við fasisma
Pólitík

Olga býður sig fram og varar við fasisma

Skólastjóri í Svíþjóð grunaður um nauðgun á barni
Heimur

Skólastjóri í Svíþjóð grunaður um nauðgun á barni

Sjúkrahúsið á Akureyri missir forstjóra
Landið

Sjúkrahúsið á Akureyri missir forstjóra

British Museum fjarlægir heitið „Palestína“ úr sýningum eftir þrýsting hagsmunahóps
Heimur

British Museum fjarlægir heitið „Palestína“ úr sýningum eftir þrýsting hagsmunahóps

Sólveig Anna gagnrýnir gleymsku samtímans
Innlent

Sólveig Anna gagnrýnir gleymsku samtímans

Fólk

Selja óklárað einbýli á 300 milljónir
Myndir
Fólk

Selja óklárað einbýli á 300 milljónir

Nokkuð gott útsýni er í húsinu
Eitt dýrasta hús Íslands selst ekki
Myndir
Fólk

Eitt dýrasta hús Íslands selst ekki

Leikarahjón selja huggulega íbúð í Laugardalnum
Myndir
Fólk

Leikarahjón selja huggulega íbúð í Laugardalnum

Brynjar daðraði of mikið við Önnu Kristjáns
Fólk

Brynjar daðraði of mikið við Önnu Kristjáns

Helga Sigrún rúmliggjandi eftir að hafa hjólað á Hopp hjól
Fólk

Helga Sigrún rúmliggjandi eftir að hafa hjólað á Hopp hjól

Loka auglýsingu