1
Heimur

Spítali kærir sjúkling sem neitar að fara

2
Innlent

Sóleyju Tómasdóttur hótað af ofbeldismanni

3
Menning

Birnir er enginn venjulegur gæi

4
Heimur

Faðir stúlku sem lést úr heilahimnubólgu í Kent lýsir veikindunum

5
Innlent

Lögreglan bað Slökkviliðið um aðstoð í nótt

6
Fólk

Óska eftir tilboðum í risastórt einbýli í Garðabæ

7
Landið

Þýskt herskip við Vopnafjörð

8
Pólitík

Guðmundur Árni og Kommúnistaflokkurinn ósammála um ástæðu Kínaferðar

9
Heimur

Fjórtán ára Svíi talinn sekur um morð og morðtilraun

10
Heimur

Buffy-stjarna lést í svefni

Til baka

Heiðrún rifjar upp erfiðan missi systur

„Ég vissi að þetta yrði endirinn“

Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu
Heiðrún JónsdóttirHeiðrún opnar sig um andlát systur sinnar
Mynd: Golli

Heiðrún Emilía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, kom fram í viðtalaröð Mannlífs við stjórnendur um síðustu helgi. Hún er lögmaður með fjölbreytta reynslu og hefur verið framkvæmdastjóri hjá KEA, Símanum og Eimskip á miklum umrótatímum.

Í viðtalinu fór hún yfir vítt svið, ræddi um sigra og sorgir og allt þar á milli. Þar ræddi hún meðal annars um það þegar hún missti systur sína úr krabbameini. Hér má sjá þann kafla viðtalsins:

Í lok árs 2020 greindist elsta systirin, Brynja, með lungnakrabbamein þá 53 ára gömul og lést hún fjórum mánuðum síðar. „Hún var verslunarstjóri Nettó í Grindavík, var með mikinn verk í baki, hélt að hún væri með brjósklos og fór í skoðun. Rannsókn leiddi í ljós að hún væri með lungnakrabbamein sem hafði dreift sér og voru komin sex æxli í mænuna. Ég vissi að þetta yrði endirinn, annars hefði kraftaverk þurft til.“

Brynja veiktist á Covid-tímanum. Heiðrún réð tíma sínum nokkuð sjálf, var varaformaður stjórnar Íslandsbanka og meðal annars í stjórn Royal Arctic Line á Grænlandi. „Ég gat farið með tölvuna til Brynju, tekið fundi þaðan og setið hjá henni. Brynja bjó í Grindavík og á tímum Covid var engin heimahjúkrun í boði. Annað hvort hefði hún þurft að vera ein heima virku dagana eða maðurinn hennar hefði þurft að vera hjá henni.“

Heiðrún Emilía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, og systur hennar Brynja og Díana
SysturnarDíana, Heiðrún og Brynja
Mynd: Úr einkasafni

Heiðrún taldi mikilvægt að hann væri ekki allan sólarhringinn hjá henni og fengi eitthvert andrými. Helga Jóna, dóttir þeirra, bjó líka í Grindavík og var mömmu sinni mikil stoð og stytta. „Ég var ákveðin í að styðja hana síðasta spölinn. Ég mætti flesta morgna og var hjá henni þar til um tvö til þrjú á daginn þegar dóttir þeirra kom heim. Á þessum tíma voru öflugir jarðskjálftar í Grindavík. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en þetta var yfirstaðið hvað þetta var erfitt. Ég sat hjá henni og hélt henni félagsskap, við ræddum um daginn og veginn eða bara prjónuðum í þögninni. Hún var staðráðin í því að vinna þessa baráttu. Ég spurði hana hvar hún vildi vera jörðuð, en hún sagðist ekki vera að deyja. Síðar talaði hún um að það væri svo skrýtið að bráðum yrði hún ekki til. Ég hafði engin svör við því og við prjónuðum í þögninni.

Þegar hún dó eftir ömurlega erfiða baráttu fann ég fyrir léttleika, var fegin hennar vegna að þessari hræðilegu baráttu væri lokið. Hún dó heima hjá sér með fjölskylduna hjá sér.“

Brynja lést í maí. Um hálfu ári síðar veiktist yngri systir Heiðrúnar, Díana, fékk hjartabilun að því er virtist og fór suður með sjúkraflugi. Í ljós kom að um var að ræða álag. Svokallað „broken heart syndrome“.

Heiðrún segist hafa fengið sjokk þegar hún hélt að yngri systir sín gæti líka verið að deyja. Hún talaði á þessum tíma við séra Vigfús Bjarna Albertsson sem hjálpaði mikið.

Telur Heiðrún að það sé eitthvað hinum megin? Að það taki eitthvað við eftir dauðann?

„Já, ég hef trú á því að það sé eitthvað þarna, hvað svo sem það er.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Donald Trump fagnar dauða Mueller
Heimur

Donald Trump fagnar dauða Mueller

„Gott, ég er glaður að hann sé dáinn“
Fimm ára drengur lést eftir að hafa andað að sér helíum
Heimur

Fimm ára drengur lést eftir að hafa andað að sér helíum

Sólveig Anna krefst leiguþaks og refsinga við launaþjófnaði
Peningar

Sólveig Anna krefst leiguþaks og refsinga við launaþjófnaði

Bloggarinn sem gagnrýndi Pútín kominn á geðsjúkrahús
Heimur

Bloggarinn sem gagnrýndi Pútín kominn á geðsjúkrahús

Fann járnvír flæktan í aspasnum
Innlent

Fann járnvír flæktan í aspasnum

Lögreglan bað Slökkviliðið um aðstoð í nótt
Innlent

Lögreglan bað Slökkviliðið um aðstoð í nótt

Segir samkomulag hafa verið í burðarliðnum þegar árásir hófust
Heimur

Segir samkomulag hafa verið í burðarliðnum þegar árásir hófust

Ísraelar banna bænir við Al-Aqsa á Eid-hátíðinni
Heimur

Ísraelar banna bænir við Al-Aqsa á Eid-hátíðinni

Shia LaBeouf tók tryllingskast á lögreglumenn
Myndband
Heimur

Shia LaBeouf tók tryllingskast á lögreglumenn

Einn látinn eftir sprenginguna í Korngörðum
Innlent

Einn látinn eftir sprenginguna í Korngörðum

Goðsögnin Chuck Norris er látin
Heimur

Goðsögnin Chuck Norris er látin

Fólk

Heiðrún rifjar upp erfiðan missi systur
Fólk

Heiðrún rifjar upp erfiðan missi systur

„Ég vissi að þetta yrði endirinn“
Selja dýrasta parhús landsins
Myndir
Fólk

Selja dýrasta parhús landsins

Ragga nagli varar við „endurkomu mjónulúkksins“
Fólk

Ragga nagli varar við „endurkomu mjónulúkksins“

Óska eftir tilboðum í risastórt einbýli í Garðabæ
Myndir
Fólk

Óska eftir tilboðum í risastórt einbýli í Garðabæ

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu
Myndir
Fólk

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús
Myndir
Fólk

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús

Loka auglýsingu