
Rætt var við tæplega sextíu manns hér á landi í síðustu viku í tengslum við rannsókn írsku lögreglunnar á hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar í Dyflinni á Írlandi í febrúar árið 2019 en greint frá þessu í tilkynningu frá lögreglunni.
Þar segja að jafnframt hafi verið teknar formlegar skýrslur af fjörutíu og sex þeirra, en skýrslutökurnar voru á forræði og undir stjórn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að undangenginni samþykktri réttarbeiðni. Vinnan við þetta gekk mjög vel fyrir sig að sögn lögreglu, en írsku lögreglumennirnir héldu til síns heima um síðustu helgi.
Í framhaldinu munu þeir vinna úr þeim upplýsingum sem var aflað, en rannsókn málsins er á forræði írsku lögreglunnar.
Lögreglan hvetur fólk til að hafa samband hafi það upplýsingar um málið.
Komment