1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

3
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

4
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

5
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

6
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

7
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

8
Minning

Megas er látinn

9
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

10
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

Til baka

Gagnrýnir harðlega drátt í sakamáli vegna andláts móður sinnar

„Er Ís­land réttar­ríki?“

Eva Hauksdóttir
Eva HauksdóttirEva Hauksdóttir vill fá svör
Mynd: Facebook

Lögmaðurinn Eva Hauksdóttir gagnrýnir harðlega langan málsmeðferðartíma hjá lögreglu og Héraðssaksóknari í máli sem varðar dauða móður hennar, sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í október 2019. Þetta kemur fram í pistli hennar sem birtist á Vísir í dag en í fyrirsögninni spyr hún: „Er Ís­land réttar­ríki?“ Mannlíf hefur í gegnum tíðina fjallað gaumgæfilega um málið.

Eva segir að liðin séu fimm ár frá því að hún og systkini hennar lögðu fram kæru á hendur þremur heilbrigðisstarfsmönnum vegna meðferðar móður þeirra. Kæran hafi verið lögð fram í kjölfar álits Embætti landlæknis frá 17. febrúar 2021, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að móðir hennar hefði verið sett á ótímabæra lífslokameðferð sem líklega hefði flýtt fyrir andláti hennar.

Sjá einnig: Ekki enn búið að ákveða hvort kæra eigi dr. Skúla Tómas – Grunaður um sex manndráp

Sjá einnig: Móðir Óla var sjúklingur Skúla: „Þú ert að fremja morð hérna beint fyrir framan okkur“

Eva vitnar orðrétt í niðurstöðu landlæknis þar sem segir meðal annars:

„Meðferð DJ frá fyrsta degi síðustu legunnar [var] í eðli sínu samsvarandi lífslokameðferð að eðli og framkvæmd. […] virðist áhersla meðferðar fyrst og fremst hafa verið á að bæla og slæva og hvers kyns eftirliti með ástandi hennar eða lífsuppihaldandi meðferð hætt.“ Þá segir enn fremur að þessi meðferð hafi haft þær afleiðingar að „í ellefu vikna langri legu hrakaði DJ; hún var með legusár, næringarskort og sýkingar allt fram til andlátsins, sem verður að telja líklegt að hafi orðið fyrr en ella vegna þeirrar meðferðar sem hún hlaut.“

Sjá einnig: Álit landlæknis á máli Skúla læknis: „Ómeðhöndlaðar sýkingar kunni að hafa verið aðal dánarorsök“

Eva segir að aðstandendur hafi fengið álitið afhent í febrúar 2021, en síðar hafi komið í ljós að sá læknir sem bar ábyrgð á meðferð móður hennar hafi þá þegar verið kominn aftur til starfa á Landspítalanum, eftir tímabundna sviptingu starfsleyfis. Hún segir hann hafa fengið takmarkað starfsleyfi í maí 2021 og fullt starfsleyfi um mitt ár 2024, þrátt fyrir að sakamálið væri enn til rannsóknar.

Að sögn Evu stóð lögreglurannsókn í tæp tvö ár. Málinu var síðar vísað til héraðssaksóknara snemma árs 2023. Hún segir að fjölskyldan hafi ítrekað leitað upplýsinga um stöðu málsins, án árangurs. „Þrátt fyrir að héraðssaksóknari hafi haft málið til meðferðar í þrjú ár, eftir tveggja ára lögreglurannsókn, og þótt héraðssaksóknari hafi lokið sinni athugun á málinu fyrir ári eða svo, hefur sem sagt enn ekki verið ákveðið hvort eigi ákæra,“ skrifar hún.

Eva segir óásættanlegt að mál liggi árum saman án niðurstöðu og bendir á að slíkur dráttur geti talist mannréttindabrot. Hún upplýsir jafnframt að hún hafi sent Umboðsmaður Alþingis kvörtun 3. febrúar síðastliðinn vegna málshraða og svarleysis.

Í lok pistilsins setur Eva spurningarmerki við getu íslenska ríkisins til að standa undir grundvallarreglum réttarríkisins. „Ef íslenska ríkið hefur ekki bolmagn til þess að halda uppi stjórnsýslu sem samræmist grundvallarreglum réttarríkis þá er Ísland ekki réttarríki,“ skrifar hún og bætir við: „Og þá vaknar sú spurning hvort við værum betur sett undir stjórn annarra.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu