
Lögregla hefur borið kennsl á uppþornað lík sem fannst fyrr í vikunni í afskekktri gilskoru á eyjunni La Palma. Leifarnar fundust á mánudag þegar veiðimaður var á gangi um Barranco de Los Pajaritos, svæði sem erfitt er að komast að.
Yfirvöld hafa nú staðfest að líkið sé af konu sem bjó á svæðinu. Ríkislögreglan bíður nú niðurstaðna úr krufningu til að geta ákvarðað nákvæma dánarorsök.
Rannsóknarlögregla hefur útilokað fyrri tilgátu um að líkamsleifarnar gætu tilheyrt Nataliu Hernández Martínez, konu sem hvarf fyrir meira en þremur árum eftir að hún kom til La Palma-flugvallar.
Fannst af veiðimanni
Uppgötvunin átti sér stað þegar veiðimaður, sem var á ferð eftir botni gilsins, rakst á líkið og lét neyðarþjónustu strax vita. Lögreglumenn frá ríkislögreglunni komu á vettvang, lokuðu svæðinu af og staðfestu að líkið væri á langt komnu múmíustigi, sem bendir til þess að það hafi legið óvarið í gilinu í langan tíma. Leit það helst út eins og múmía.
Í kjölfar fundarins fór sérhæfð morðrannsóknardeild frá Tenerife til La Palma til að aðstoða við rannsóknina. Hefur vinna þeirra beinst að því að staðfesta formlega deili hins látna, meta hversu lengi líkið kann að hafa verið í gilinu og skýra aðstæður í kringum andlátið.
Að svo stöddu hafa yfirvöld ekki veitt frekari upplýsingar og bíða niðurstaðna krufningar áður en frekari ályktanir verða dregnar.

Komment